Læknablaðið - 15.01.1994, Qupperneq 48
38
LÆKNABLAÐIÐ
NÝJUNGAR í MEÐFERÐ
Margar og merkar nýjungar hafa
verið á döfinni varðandi meðferð á
þvagfærasjúkdómum á síðustu árum. Segja
má að þar hafi rannsóknir í heimilislækningum
verið í fararbroddi. Bakterían Staphylococcus
saprophyticus er sérstæð að því leyti að hana
er einkum að finna hjá fólki utan sjúkrahúsa
(14,15). Hún var áður talin meinlaus eins
og nafnið gefur til kynna og sýkingarmáttur
hennar í þvagfærasýkingum uppgötvaðist
ekki fyrr en farið var að rannsaka sjúklinga
utan sjúkrahúsa. Dr. Mabeck, nú prófessor
í heimilislækningum í Arósum, lýsti einna
fyrstur einkennum og náttúrulegum gangi
einfaldra þvagfærasýkinga hjá konum sem
leituðu til heimilislækna og reyndust vera
með coagulasa negatíva stafílokokka í
þvagi. Rannsóknir sýndu að bakterían er
næst algengasta orsök þvagfærasýkinga hjá
konum á frjósemisskeiði. Frekari rannsóknir á
þvagfærasýkingum hjá fólki utan sjúkrahúsa
hafa leitt í ljós að hægt er að meðhöndla
þessar einföldu sýkingar í mun skemmri
tíma en áður eða frá einum upp í fimm daga
í stað tveggja vikna áður fyrr og verður
að telja þetta til merkari nýjunga innan
læknisfræðinnar með tilliti til minni kostnaðar,
minni hættu á þróun ónæmra bakteríustofna
og minni óþæginda fyrir sjúklinginn.
Það telst einnig til merkra nýjunga í
heimilislækningum hér á landi að læknar
eru farnir að hugsa um það í alvöru að nota
hollensku aðferðina við meðferð á eymabólgu,
en hún felst í því að nota ekki sýklalyf við
meðhöndlun á eyrnabólgum hjá börnum eldri
en tveggja ára. Þessi afstaða á nú vaxandi
fylgi að fagna vegna nýrra upplýsinga um
aukna tíðni ónæmra bakteríustofna svo
sem betalactamasa framleiðandi baktería og
fjölónæmra pneumókokka (16).
Notkun acíklóvír eða Zovirax í töfluformi við
Herpes zoster útbrotum fer vaxandi. Þetta lyf
er mjög dýrt og því þýðingarmikið að vita
hvort nokkuit gagn er í slíkri meðferð. Islensk
rannsókn á fylgikvillum ristilútbrota bendir
til þess að fylgikvillar þessa sjúkdóms séu
óverulegir hjá yngra fólki (17). Hugsanleg
lyfjameðferð getur því helst komið til álita hjá
gömlum konum með þennan sjúkdóm.
Lengi hefur verið deilt um það hvort gagn sé
í að leita að blóði í hægðum með hemókúlti
hjá einkennalausu fólki. Nýverið birtust í The
New England Journal of Medicine niðurstöður
rannsókna sem sýna gagnsemi í þá áttina (18)
og því er að vænta að heimilislæknar muni nú
taka aukinn þátt í reglubundinni kembileit að
ristilkrabbameini með því að leita að blóði í
hægðum.
Á síðustu árum hafa komið fram mörg ný
lyf á markaðinn, sem talin eru mun betri en
þau gömlu. Má þar nefna lyf við háþrýstingi,
mígreni, sveppasýkingum, magasári, astma og
háum blóðfitum. Fyrir utan betri virkni á sínu
sviði er það sameiginlegt flestum þessara lyfja,
að þau eru mjög dýr. Það vekur yfirvöld til
unthugsunar um það hvort þjóðin hafi efni á
að nota hvaða lyf sem er og hvort allir hafi
rétt á mestu og bestu læknismeðferð sem völ
er á.
Undirmiga er algeng meðal barna og þetta
því algengt vandamál í fjölskyldum. Áður var
talið að hér væri um sálrænan sjúkdóm að
ræða en nýjustu rannsóknir hafa leitt ýmislegt
annað í ljós. Flestir eru nú löngu hættir
að nota lyf eins og tofraníl sem meðferð á
undirmigu. Heilsugæslan hefur á síðustu árum
boðið vætuvara til láns eða sölu fyrir börn
með þetta vandamál. Þvaghemlandi hormónið
ADH hefur lengi verið til í lyfjaformi.
Á síðustu árum var það eingöngu notað
tilfallandi hjá undirmigubörnum sem vildu
fara í útilegur eða sofa hjá vinum sínum.
Nú er komin það góð reynsla á þetta lyf að
þorandi er að nota það í lengri tíma. Þessi
nýjung telst til verulegra framfara innan
barnalækninga og heimilislækninga.
LOKAORÐ
Hér að framan hefur aðeins verið
stiklað á stóru og fjallað um hluta allra
nýjunga í heimilislækningum á síðustu
árum. Ekki hefur skapast rými til að
nefna allar tækninýjungarnar í búnaði,
svo sem eymasmásjána, handhæg
blóðsykursmælingartæki og blóðþrýstingsmæla
til notkunar í heimahúsum, hraðpróf (kits) við
sjúkdómsgreiningar og svo framvegis. Ég
hef lagt sérstaka áherslu á það að nýjungar
í faginu fjalla ekki bara um ný tæki og ný
lyf. Það vekur hins vegar athygli í þessu
samhengi, að í sumum tilvikum tekur það
meira en 20 ár að festa merkar nýjungar
í sessi, sérstaklega þegar um er að ræða
skipulagsbreytingar og kennslu, en aðrar svo