Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 4
Áskrifendur Læknablaðsins erlendis íslenskir læknar erlendis verða að greiða áskriftargjald að Læknablaðinu til að fá það sent. Áskriftargjald hefur verið óbreytt síðustu árin eða 500 danskar krónur (jafngildi um 5000 íslenskra króna) en hækkar nú í 600 DKK. Áskriftargjöld hafa verið innheimt frá Danmörk, þar sem Læknablaðið er prentað. Ymsum hefur þótt umhendis að greiða áskriftargjald til Kaup- mannahafnar og hafa komist í all miklar skuldir vegna þess. Það er afskaplega erfitt fyrir okkur að fylgja eftir innheimtu áskriftargjalda og í kjölfar rukk- unarbréfa og áminninga á síðasta ári voru hreinsaðir út skuldseigir áskrifendur sem ekki höfðu sinnt ítrekuðum tilmælum. Margir læknar sem dvelja erlendis hafa um- boðsmann hér heima. Þeim væri því í lófa lagið að biðja umboðsmann að greiða áskriftargjald að Læknablaðinu, og senda okkur jafnframt nafn og heimilisfang umboðsmanns. Þá færi innheimta fram héðan og yrði í alla staði ein- faldari. Fréttabréf lækna er stöðugt sent til íslenskra lækna sem dvelja erlendis, óháð því hvort við- komandi er áskrifandi að Læknablaðinu eða ekki. Þessu fylgir að sjálfsögðu all nokkur kostnaður, en læknafélögin hafa talið rétt að hafa þennan háttinn á til þess að halda uppi lágmarkstengslum við kollega erlendis. Ritstj.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.