Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ . -jj 77 sjúkrahús gengust 25 undir skurðaðgerð. Aðra meðferð, meðal annars sérhæfða lyfjameðferð, fengu 14 sjúklingar og einn fékk endurlífgunarmeðferð. Fjórtán sjúklingar voru innlagðir til eftirlits. A gjörgæsludeild voru 29 sjúklingar meðhöndlaðir og var meðallegutími þar 5,5 dagar. Stysta lega var einn dagur og sú lengsta 23 dagar. Meðallegutími á spítala var 11,1 dagur. Skemmst einn dagur en lengsta legan var 61 dagur. í nokkrum tilfellum voru sjúklingar fluttir á aðrar deildir eða önnur sjúkrahús til áframhaldandi meðferðar og nokkrir sjúklinganna þurftu að leggjast aftur inn á spítala vegna áverka sinna, en þær legur eru ekki taldar með hér. Við útskrift af spítala töldust 12 einstaklingar frískir samkvæmt sjúkraskrám spítalanna. Frekari meðferð, sem fólst í eftirliti og/eða endurhæfingu, þurftu 38 sjúklingar og eru þar taldir með fjórir þeirra sjúklinga sem fengu meðferð á slysadeild en lögðust ekki inn á spítala. Fjórir sjúklingar létust á sjúkrahúsi. Gagnsemi þyrlu og lœknis: Við mat á gagnsemi þyrlu og læknis varð niðurstaðan sú að þyrla var talin nauðsynleg í 32 tilvikum, þýðingarmikil í 39 tilvikum og óþörf einu sinni. Læknir var talinn nauðsynlegur í 13 tilvikum, þýðingarmikill 29 sinnum og gagnlegur í 30 tilvikum. Talið var að um ótvíræða björgun á mannslífum hafi verið að ræða hjá 14% fluttra eða 10 einstaklingum. Atta þeirra var bjargað úr sjávarháska og tvisvar var um slys að ræða. I nokkrum tilvikum að auki var um hugsanlega björgun á mannslífum að ræða. UMRÆÐA Þjónusta þyrlusveitar LHG virðist orðin föst í sessi svo sem sjá má á jöfnum fjölda útkalla þau ár sem þyrluvakt lækna hefur starfað. Ljóst er af fremur jafnri dreifingu útkalla að þjónustunnar er þörf allan sólarhringinn, allan ársins hring. Um dýra þjónustu er að ræða, en áætlað er að hver flugtími á TF- SIF kosti 90.000 krónur (á verðlagi ársins 1992). Auk þess að sinna útköllum, veita læknar þyrlusveitarinnar aðstoð símleiðis við minniháttar veikindi eða áverka, sé eftir því leitað. Einnig á meðan hjálp er að berast eða þegar veður hamlar flugi. Veitir þetta sjómönnum og öðrum þeim, sem fjarri eru læknishjálp, öryggi. Landfræðilega skiptust útköll jafnt og getur heildarútkallstími, um þrjár klukkukkundir, ekki talist langur miðað við vegalengdir og aðrar aðstæður. Meðaltími á vettvangi, 20 mínútur, er sambærilegur og hiá þyrlusveitum erlendis (8,9). Viðbragðstími áhafnar er vel viðunandi, um 30-40 mínútur að jafnaði. LHG áætlar að klukkustund þurfi frá því beiðni berst þar til haldið er af stað. Ef til vill væri rétt að miða við styttri viðbragðstíma svo áætlaður viðbragðstími þurfi ekki að aftra mönnum frá að biðja um aðstoð. Rannsóknir hafa ótvírætt sýnt fram á gildi þess að hafa lækni í þyrluáhöfn (8,10-13), en til þess að starfið sé markvisst og öryggis sjúklings sem best gætt er nauðsynlegt að læknirinn sé vel þjálfaður til þessa starfs (14). Mikilvægi góðrar þekkingar og þjálfunar flug- og stýrimanna auk læknis er augljóst því þótt um 80% sjúkraflugs hafi verið við góðar aðstæður voru 20% flugs við verri aðstæður. Því er Ijóst að sjúkraflugi með þyrlu fylgir alltaf viss áhætta fyrir áhöfnina þótt rík áhersla sé lögð á að öryggi áhafnar sitji í fyrirrúmi. Læknar báðu oftast um aðstoð þyrlusveitarinnar eða í nær helmingi tilvika. Æskilegt er að beiðni um svo dýra og oft áhættusama þjónustu berist frá faglegum eða opinberum aðilum. Mikilvægt er þó að almennir borgarar geti óskað aðstoðar milliliðalaust þar sem þeir eru oft staddir fjarri læknisþjónustu, í óbyggðum eða á hafi úti. Flestar beiðnir voru vegna slysa eins og verið hefur undanfarin ár eða nær 70% en einungis 21% vegna veikinda á landi og er hugsanlegt að flutningur með þyrlu ætti þar oftar við, en slíkt þyrfti að rannsaka nánar. Sérstaklega er þetta umhugsunarvert hvað varðar flutning hjartasjúklinga en einungis þrír voru fluttir með þyrlunni árið 1991. Læknir var hjá sjúklingi í yfir 50% tilvika þannig að oft var meðferð hafin áður en þyrlulæknir kom. Einungis í átta tilfellum á landi var læknir ekki kominn á vettvang og voru öll þau tilvik í óbyggðum. Ungir karlmenn virðast helst þurfa á þjónustu þyrlusveitarinnar að halda þar sem tæplega

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.