Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 24

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 24
66 LÆKNABLAÐIÐ Tafla II. Bakteríur í þvagi. Bakteríutegundir Pokaþvag 37 börn' (%) Ástungu eða þvagleggsþvag 7 börn“ (%) E. coli 15 (51) 4 (57) Klebsiella 2 (5) 2 (29) Enterococcus 1 (2,5) 1 (15) gr. D streptococcus (non-enterococcal) 2 (5) 1 (15) Enterobacter 1 (2,5) 1 (15) Serratia marcescens 1 (2,5) 1 (15) Staphylococcus kóagulasa neikvæður .. 5 (13) - Staphylococcus aureus ... 3 (8) Streptococcus non hemolyticus 5 (13) - Pseudomonas aeruginosa 1 (2,5) - Proteus 1 (2,5) 1 Nítján börn með meira en eina bakteríutegund samtímis. 2 Þrjú börn með tvær bakteríutegundir samtímis. Tafla III. Forspárgildi, nœmi og sértœki rannsóknaraðferða á pokaþvagi. Jákvætt forspárgildi (%> Neikvætt forspárgildi <%) Næmi (%> Sértæki t%) Ræktun' 46 99 86 92 Hvít blóðkorn2 .. 50 95 29 98 Eggjahvíta-1 50 95 29 98 Bakteríutalning4 . 57 97 57 97 1 Miðað við börn með >100.000 bakteríur í ml pokaþvags. 2 Miðað við börn með >10 hvít blóðkorn í sviði við smásjárskoðun (x400 stækkun). 3 Miðað við börn með > + af eggjahvítu í þvagi. 4 Miðað við börn með > + af bakteríum í sviði við smásjárskoðun (x400 stækkun). staðfesta þvagfærasýkingu höfðu fleiri en eina bakteríutegund í þvaginu samtímis. Gildi mismunandi rannsóknaraðferða á pokaþvagi: Jákvætt og neikvætt forspárgildi, næmi og sértæki mismunandi rannsóknaraðferða eru sýnd í töflu III. Aðhvarfsgreining sýndi að talning baktería og hvítra blóðkorna í smásjá hafði mesta fylgni við þvagfærasýkingu (r2: 0,42 og 0,42, p<<0,05) en fylgni ræktunar og magns eggjahvítu við þvagfærasýkingu var hins vegar minna (r2: 0,22 og 0,13, p< 0,05). Þegar athugað var gildi þess að nota fleiri en eina rannsóknaraðferð saman til að spá fyrir um þvagfærasýkingu, kom í ljós að talning baktena í smásjá var best (r2: 0,42) en talning hvítra blóðkorna og ræktun bættu fremur litlu þar við (r^A: 0,15 og 0,03, p<0,05). Mæling eggjahvítu bætti engu við forspárgildið. UMRÆÐA Markmið þessarar rannsóknar var að kanna gildi ýmissa rannsóknaraðferða á pokaþvagi til greiningar þvagfærasýkinga hjá ungum börnum (yngri en tveggja ára). Niðurstöður rannsóknarinnar benda eindregið til þess að varhugavert sé að treysta smásjárskoðun, mælingu eggjahvítu og ræktun úr pokaþvagi nema þegar þær eru neikvæðar. Jafnvel þegar >100.000 bakteríur ræktast úr einum ml pokaþvags eru einungis 46% líkur á að um raunverulega þvagfærasýkingu sé að ræða. Ræktun ástungu- eða þvagleggsþvags er því nauðsynleg til að greina þvagfærasýkingu með vissu. Ef litið er á hvaða rannsóknaraðferðir á pokaþvagi eru bestar til að spá fyrir um raunverulega þvagfærasýkingu, kemur í ljós að talning baktería og hvítra blóðkorna í smásjá hefur besta forspárgildið en ræktun bætir þar litlu við. Einungis neikvæðar niðurstöður (smásjárskoðun og mæling eggjahvítu) og fjöldi baktería <50.000 í ml pokaþvags benda til að viðkomandi sé ólíklega með þvagfærasýkingu. Þessi niðurstaða er í stórum dráttum í samræmi við niðurstöður annarra sem kannað hafa gildi ýmissa rannsóknaraðferða á þvagi til að spá fyrir um þvagfærasýkingu (20-24). Lohr (21) tók saman niðurstöður ýmissa rannsókna sem könnuðu forspárgildi talningar hvítra blóðkoma og baktería í smásjárskoðun (með eða án Grams litunar) svo og esterasa og nítrít mælinga í þvagi. Forspárgildin (21,22) vom allsæmileg og reyndist nítrít prófið best (jákvætt forspárgildi 36-100%, neikvætt forspárgildi 92-98%). Ræktun er því nauðsynleg bæði til að staðfesta og útiloka sýkingu. Gildi nítrít eða esterasa prófs var ekki kannað í okkar rannsókn. Nítrít myndast í þvagi við afoxun baktería á nítrati. Flestar Gram neikvæðar bakteríur geta afoxað nítrat en Gram jákvæðar bakteríur hafa ekki þann hæfileika. Þessi efnaskipti taka nokkrar klukkustundir og verður þvagið því að hafa staðið í þvagblöðmnni í nokkurn tíma. Nítrít próf hjá ungum börnum sem hafa tíð þvaglát er því oft neikvætt. Einnig er talið að nítrít geti myndast undir forhúð drengja og prófið þannig orðið falskt jákvætt (21).

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.