Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 50
90
LÆKNABLAÐIÐ
Helstu ráðstefnur og sérfræðingafundir sem
haldnir hafa verið á vegum Blóðbankans eru:
1. Sérfræðingafundur Evróðuráðs um
blóðbankastarfsemi, haldinn í Reykjavík
1975.
2. Blóðbankafundur Norðurlanda 1981.
3. Alþjóðlegur fundur um mýlildi
(amyloidosis) í miðtaugakerfi. A
Landspítalanum 2.-3. september 1985
í samvinnu við taugalækningadeild
Landspítalans.
4. Smáþing (symposium) um
komplementþætti, haldið í tilefni af
komu prófessors Rodney R. Porter,
nóbelsverðlaunahafa í læknisfræði, á
Landspítalanum í júlí 1985.
5. Smáþing íjúlí 1987 um cystatin
C í mönnum og sjúkdóma og
mælingar með ónæmisefnatækni,
haldið á Landspítalanum, í tilefni af
heimsókn prófessors Anders Grubb við
Lundarháskóla.
6. Smáþing um arfgenga miðlínugalla og
erfðir nokkurra kynbundinna sjúkdóma
haldið á Landspítalanum 22. ágúst 1986
í tilefni af heimsókn dr. Gudrun Moore og
dr. Alasdair Ivens frá St. Mary’s Hospital í
London.
7. V. Norræna þingið um læknisfræðilega
erfðafræði, haldið að Laugarvatni 27.-28.
ágúst 1988.
8. Blóðbankafundur Norðurlanda í Reykjavík
3.-5. júní 1993, haldinn á Landspítalanum.
ANDI UPPHAFSMANNA
Enginn vafi er á að bygging Blóðbankans var
á sínum tíma mikið framfaraspor í
íslenskri læknisfræði. Prófessor Niels Dungal,
sem var helsti hvatamaður að stofnun
Blóðbankans, bar fyrir brjósti ríkan skilning
og glóandi áhuga á blóðbankaþjónustu og
vísindalegum rannsóknum í læknisfræði. I
kjallara Blóðbankans voru um árabil alin
tilraunadýr vegna krabbameinsrannsókna
Dungals. Þar var einnig kennsla læknanema
í vefjafræði. Þegar litið er um öxl má ef til
vill segja að byggt hafi verið á þeim grunni
og unnið í þeim anda, með rannsóknarstarfinu
í kjallara bankans síðustu 20 árin. Hvernig
til hefur tekist verður hver og einn að
dæma, sem les þetta yfirlit og vill kynna
sér rannsóknarstarfsemi á Landspítalanum.
Auðvitað væri freistandi að segja ýmsan
bitran sannleika um óviðunandi skilyrði
og annmarka rannsóknarstarfseminnar og
þjónustunnar í Blóðbankanum. Lesandi
verður að virða höfundi það til vorkunnar
þótt sleppt sé að telja fram það sem er í
bankahólfunum af óánægju og vonbrigðum
á þessu fagnaðarári Blóðbankans. Við
starfsmenn leyfum okkur þann munað
nú, að minnast þess helst úr okkar starfi,
sem hagstætt hefur reynst og farsælt fyrir
þjónustuna í þágu sjúklinganna og aukið við
þekkingu í læknisfræði.
ÞAKKIR
A þessum tímamótum í sögu Blóðbankans
er rík ástæða til að þakka mörgum ágætan
stuðning og mikið samstarf á liðnum árum:
Blóðgjöfum, samstarfsfólki í Blóðbankanum
og á Ríkisspítölum og öðrum sjúkrahúsum,
Rauða krossi íslands, Blóðgjafafélagi íslands,
Heilavernd og mörgum öðrum félögum,
fyrirtækjum og einstaklingum, sem hafa gert
skyldustörfin léttari og árangursríkari.