Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 69-71 69 Erla Sveinsdóttir'*, Alma Möller2*, Ólafur Jónsson2> LÍFEÐLISFRÆÐILEGAR BREYTINGAR í SJÚKRAFLUGI: YFIRLITSGREIN INNGANGUR Strjálbýli og erfiðar samgöngur hér á landi hafa í för með sér að oft þarf að flytja sjúklinga langar vegalengdir, þangað sem betri aðstaða er til rannsókna og meðferðar. Læknar sem starfa utan höfuðborgarsvæðisins geta stöðugt átt von á að standa frammi fyrir ákvörðun um flutning sjúklinga, undirbúning þeirra og fylgd. Oft eru sjúklingar fluttir með flugvélum. Við aukna hæð yfir sjávarmáli koma til ýmsar lífeðlisfræðilegar breytingar sem nauðsynlegt er að taka tillit til. Tilgangur þessa yfirlits er að benda læknum á þessi atriði þannig að öryggi og líðan sjúklinga sé sem best tryggt. LÍFEÐLISFRÆÐILEGAR BREYTINGAR í SJÚKRAFLUGI Loftþrýsíingur: Við yfirborð sjávar er loftþrýstingur 760 mm Hg. í 18.000 feta (5400 m) hæð er loftþrýstingur orðinn helmingur þess sem hann er við sjávarmál. Samkvæmt lögmáli Boyle’s er rúmmál lofttegunda við stöðugt hitastig í öfugu hlutfalli við þrýsting, þess vegna hafa lofttegundir tilhneigingu til að þenjast út við minnkaðan loftþrýsting. Útþensluþáttur lofts við 8000 fet (2400 m) er 1,4 (1-4). Þetta er mikilvægt í sambandi við flug þar sem útþensla lofts hefur áhrif í öllum holrúmum líkamans, lokuðum sem hálflokuðum. Þetta eru til dæmis ennis- og kinnholur, miðeyra, brjósthol, magi og þarmar. Hjá sjúklingum með loftbrjóst getur ástand versnað mjög fljótt og dregið til dauða ef viðeigandi ráðstafanir eru ekki gerðar fyrir fiugferð. Loft í maga veldur oft óþægindum í flugi til dæmis ógleði og uppköstum. Hafa verður í huga að loft í lækningabúnaði til dæmis belg á barkarennu þenst út og Frá ''læknadeild Háskóla íslands, læknanemi, 2'svæfinga- og gjörgæsludeild Borgarspítalans. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Erla Sveinsdóttir, læknadeild Háskóla íslands. dregst saman eftir breytingum á lofthæð, fylla ætti því belginn með saltvatni. Nota þarf innrennslisflöskur úr plasti þar sem loftþrýstingur við yfirborð vökva í glerílátum getur ýmist hert eða hægt á rennsli vökvans eftir því hvort flugvél hækkar sig eða lækkar (1,4-6). I flugvél sem búin er jafnþrýstibúnaði getur þrýstingurinn ýmist haldist sambærilegur við sjávarmál eða sambærilegur við allt að 8000 fet (2400 m). Algengasta flughæð þyrlu er 500-2000 fet (160-600 m) en minni flugvéla, sem algengastar eru til sjúkraflutninga hérlendis, 8000-10.000 fet (2400-3000 m). Þær flugvélar hafa hingað til yfirleitt ekki verið búnar jafnþrýstibúnaði. Sum flugfélaganna sem annast sjúkraflutninga hérlendis hafa þó yfir slíkum vélum að ráða en þær eru að jafnaði ekki notaðar vegna meiri kostnaðar nema brýna nauðsyn beri til. Læknar þurfa því að íhuga í hverju tilviki fyrir sig hvort ástand sjúklings krefjist sjúkraflutnings í flugvél með jafnþrýstibúnaði eða ekki. Súrefni: Við sjávarmál er hlutfall súrefnis 21% af andrúmslofti. Minna súrefni verður á hverja rúmmálseiningu með aukinni hæð en hlutfall súrefnis í andrúmsloftinu heldur sér þó. Samkvæmt lögmáli Dalton’s um hlutþrýsting, er þrýstingur blandaðrar lofttegundar jafn samanlögðum hlutþrýstingi þeirra gastegunda sem mynda lofttegundina (2,3). Við það að fljúga upp í 8000 feta (2400 m) hæð lækkar loftþrýstingur úr 760 mm Hg í 565 mm Hg. Um leið lækkar hlutþrýstingur súrefnis í lungnablöðrunum (PAO,) úr 100 mm Hg niður í 69 mm Hg og verður um 55 mm Hg í slagæðablóði, af því að mismunur hlutþrýstings súrefnis slagæðablóðs (PAO,) hjá heilbrigðum einstaklingi er innan við 10-15 mm Hg frá PA02. Þetta jafngildir því að súrefnismettun í blóði fari

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.