Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1994, Side 47

Læknablaðið - 15.02.1994, Side 47
LÆKNABLAÐIÐ 87 Erfðafræðideild Blóðbankans hefur í samvinnu við deildir sjúkrahúsa og einstaka lækna hérlendis og erlendis unnið að mörgum verkefnum, þar sem DNA greiningartækni er nauðsynleg til að varpa skýrara ljósi á sjúkdómsorsakir. Prófessorsstaða: Læknadeild Háskóla íslands veitti forstöðumanni Blóðbankans prófessorsstöðu 1990 og á því ári hófst hann og samkennari hans dr. Stefán Karlsson, yfirlæknir í Bandaríkjunum, handa um kennslu fyrir læknanema í læknisfræðilegri erfðafræði. Þetta kennslustarf hefur notið stuðnings Ríkisspítalanna. ALJÓÐLEG SAMVINNA Blóðbankastarfsemi: A sviði blóðbankastarfsemi hafa alltaf verið mikil alþjóðleg samskipti og samvinna. Alþjóðasamtök Rauða krossins láta mikið til sín taka við kynningu, skipulagningu og framkvæmd blóðsöfnunarstarfs og blóðbankarekstrar. Blóðbankinn hér nýtur góðs af því starfi, svo og stuðningsfélag blóðbankastarfseminnar Blóðgjafafélag Islands, sem stofnað var 16. júlí 1981. Forstöðumaður Blóðbankans er fulltrúi heilbrigðisstjórnar í norrænu samstarfi blóðbankastjóra, sem heldur reglulega þing um starfsemina á einhverju Norðurlandanna á tveggja ára fresti. Hann er einnig fulltrúi í sérfræðinganefnd Evrópuráðsins um blóðbanka- og blóðónæmisfræði. Sú nefnd heldur árlega fundi í einhverju meðlimaríki Evrópuráðsins og var fundur hennar á Islandi 1975. Evrópuráðið skipuleggur námskeið í ýmsum greinum blóðbankalæknisfræði og stuðlar að samfelldu gæðaeftirliti í blóðbankarekstri meðlimaríkjanna, með aðstoð sérstakra vinnuhópa sérfræðinga. Evrópuráðið stendur einnig fyrir samanburði, gæðaeftirliti og dreifingu greiningarefna við vefjaflokkarannsóknir. I Amsterdam í Hollandi er Blóðbanki Evrópuráðsríkja fyrir sjaldgæfa blóðflokka. Þar eru dýrmætar blóðeiningar geymdar djúpfrystar oft um áraraðir, þar til viðkomandi einstaklingur þarf á henni að halda. Mikið óformlegt samstarf er milli starfsbræðra og -systra á fagsviðinu. Blóðbankasamband Bandaríkjanna (American Association of Blood Banks - AABB) eru voldugustu samtök á sínu sviði í heimi. Það dreifir í sífellu miklum upplýsingum til allra félagsmanna sinna og telja flestir, sem starfa við blóðbanka utan Bandaríkjanna, mikinn ávinning í að vera í þessu blóðbankasambandi. Vísindarannsóknir: Stofnað hefur verið til margs konar samvinnu um vísindarannsóknir milli Blóðbankans, sjúkradeilda Landspítalans og rannsóknarstofnana í Evrópu, Ameríku og jafnvel Asíu. Danmörk: Rannsóknarsamvinna við Blóðbankann í Arósum nær yfir meira en tvo áratugi. Samvinna var við hann um vefjaflokkarannsóknir 1970-1971 í tíð Guðmundar Þórðarsonar, sem þá var yfirlæknir Blóðbankans. Framhald var á slíkum rannsóknum þegar Blóðbankinn var miðstöð fyrir skipulag og framkvæmd systkinabarnarannsókna 1972-1975 sem Erfðafræðinefnd Háskóla íslands átti aðild að og margir erlendir samvinnuaðilar. Rannsóknir á dreyrasýki í íslenskum ættum 1977-1992 voru einnig gerðar í samvinnu við Blóðbankann í Arósum. Svíþjóð: Oslitin samvinna hefur verið við vísindamenn í Malmö og síðar í Lundi frá því í ársbyrjun 1983 um rannsóknir á arfgengum heilablæðingum vegna cystatín C mýlildis. Þetta er umfangsmesta rannsóknarverkefni erfðafræðideildar Blóðbankans frá 1978 og hefur lengst af verið unnið í náinni samvinnu við taugalækningadeild Landspítalans og Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Holland: Haustið 1989 var stofnað til samstarfs milli erfðafræðideildar Blóðbankans, blóðskilunardeildar lyfjadeildar Landspítalans og lyfjadeildar Borgarspítalans um sameindaerfðafræðilega rannsókn á arfgengu blöðrunýra. Sótt var um styrk til vísindaráðs 1990 fyrir verkefnið, sem fékkst. Samband og samvinna náðist við rannsóknarhóp Efnahagsbandalagslanda sem kallast Samstillt átak (Concerted Action) í Leiden í Hollandi. Hann samræmir og eflir starfsemi margra hópa vísindamanna EB-landa við alhliða rannsókn á arfgengu blöðrunýra með sérstakri áherslu á erfðaefnisgreiningu. Mikilvægir áfangar hafa náðst í þessari rannsóknarsamvinnu, er þetta er ritað síðla árs 1993, eftir fjögurra ára samfellt rannóknarstarf, sem gerð hefur verið grein fyrir í fagtímaritum.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.