Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 39
Diclofenac Na 50 mg MJOG VIRKT BÓLGUEYÐANDILYF (NSAID)... Diclofenac er þrautreynt og viðurkennt NSAI lyf með mjög góða bólgueyðandi og verkjastillandi eiginleika. ’-I. 2 Misoprostol A 0,2 mg ...MEÐ ROKRETTA VORN FYRIR MAGASLÍMHIMNUNA. Misoprostol er efnafræðilega stöðug prostaglandín E^-afleiða, sem verndar gegn magasárum af völdum NSAI lyfja án þess að draga úr bólgueyðandi eiginleikum þeirra.3-6 Með þvi að tengja saman diclofenac og misoprostol í Arthrotec® er nú hægt að meðhöndla sjúklinga sem ekki var hægt að gefa nægilega skammta af NSAI lyfjum til að ná verkjastillandi áhrifum þeirra vegna hættu á magasári.3'6 • Fyrir sjúklinga bætir þessi samsetning til muna alla lyfjameðferð. • Fyrir lækna eykst svigrúmið verulega til að auka skammtastærðir og veita fleiri sjúklingum meðferð sem þurfa á NSAI lyfjameðferð að halda. UMBOÐ: LYFh.f. Garðaflöt 16-18 Garðabæ Arthrotec® Searle, 910006 TÖFLUR; M 01 A B 55 R E Hver tafla inniheldur: Misoprostolum INN 0,2 mg. Innri kjami töflunnar inniheldur: Diclofenacum INN, natríumsalt, 50 mg. Eiginleikar: Lyfiö er blanda af díklófenaki og mísóprostóli. Kjarni hverrar töflu inniheldur díklófenak og er sýruhúðaður, en þar fyrir utan erhjúpurmeðmísóprostóli.sem losnarúrtöflunniímaganum.Díklófenak minnkar myndun prostaglandína í líkamanum og hefur verkjastillandi og bólgueyðandi verkun. Mísóprostól er afbrigði af prostaglandíni E,, sem veldur minnkaðri sýrumyndun í maga, aukinni slímmyndun í maga og skeifugörn og aukinni myndun bíkarbónats í skeifugörn. Á þennan hátt vinna áhrif mísóprostóls gegn ertandi áhrifum bólgueyðandi gigtarlyfja á slímhúð í maga og skeifugörn. Ábendingar: Gigtsjúkdómar, þar með taldir iktsýki (arthritis rheumatoides), hryggikt (spondylitis ankylopoetica), slitgigt og vöðvagigt, þegar aukin hætta er fyrir hendi á sárum eða bólgu í maga og skeifugörn af völdum bólgueyðandi gigtarlyfja. Frábendingar: Blæðandi sár í maga eða skeifugörn. Ofnæmi fyrir bólgueyðandi gigtarlyfjum eða prostaglandínafbrigðum. lyfið má ekki gefa sjúklingum, sem fá astma, nefrennsli eða ofsakláða af acetýlsalicýlsýru eða öðrum skyldum lyfjum. Skorpulifur. Alvarleg hjartabilun eða nýrnabilum. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er magaverkir (um 20%) og næst algengasta er niðurgangur. Þessi óþægindi eru oftast væg og ganga fljótt yfir. Algengar (>1%): Magaverkir, niðurgangur, ógleði, vindgangur,_ magabólga, hægðatregða, nábítur, uppköst. Höfuðverkur, svimi. Útbrot. Einkenni sem likjast inflúenzu. Sjaldgæfar: Þreyta, sótthiti, almenn vanlíðan, hitakóf, stirðleiki, syfja, svefnleysi, lystarleysi, aukin matarlyst, svitnun. Blóðflögufækkun. Verkirfyrir brjósti, háþrýstingur. Breytt húðskyn, mígreni, þunglyndi, minnkað bragðskyn. Bólgur eða sár í vélinda, maga eða skeifugörn. Kláði, útbrot. Trufluð lifrarstarfsemi. Vöðvaverkir, sinadráttur. Aukin þvagmyndun. Blæðingar eða útferð frá fæðingarvegi. Sjóntruflanir, augnverkir. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Fækkun hvítra blóðkorna. Húðroði. Kvíði, erfiðleikar við einbeitingu. Tungubólga, blóðug uppköst, hiksti. Bjúgur í húð. Lifrarskemmdir. Aukin öndun, aukin munnvatnsmyndun. Sykur í þvagi. Verkir eða suð í eyrum. Milliverkanir: Díklófenakkeppirviöacetýlsalicýlsýru umpróteinbindingu og ætti ekki að nota lyfin saman. Lyfið virðist hvorki hafaáhrif á lyfjahvörf segavarnarlyfja né lyfja við sykursýki, en rétt er að sýna aðgát ef slík lyf og díklófenak eru gefin saman. Stórir skammtar sýrubindandi lyfja minnka aögengi mísóprostóls. Blóðþéttni litíums og digoxíns hækkar ef díklófenakergefiðsamtímis. Díklófenakminnkarútskilnaðmetótrexats og getur það valdið alvarlegum eiturverkunum. Ef díklófenak og cíklóspórín eru gefin saman er aukin hætta á nýrnaskemmdum og háþrýstingi. Varúö: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með sár í maga eða skeifugörn, colitis ulcerosa, Crohns sjúkdóm, truflaða blóðmyndun, blæðingartilhneigingu eða hjartabilun. Enn fremur skal gæta varúðar við gjöf lyfsins, ef sjúklingar eru meö skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi (t.d. aldraðir), taka segavarnalyf, þvagræsilyf eða lyf við sykursýki. Við langtímameðferð þarf að fylgjast með lifrarstarfsemi og blóðhag. Athugiö: Lyfið getur dregið úr athygli og viðbragðsflýti hjá sumum sjúklingum og þarf að gæta að þessu við stjórnun ökutækja eða annarra véla. Meöganga og brjóstagjöf: Lyfið getur haft ýmis skaðleg áhrif á fóstur og leg og á ekki að nota það á meðgöngutima. Díklófenak skilst út í brjóstamjólk, en skaðleg áhrif á barnið eru ólíkleg. Ekki er vitað hvort mísóprostól skilst út i brjóstamjólk. Konur með börn á brjósti eiga því ekki að nota lyfið. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er ein tafla 2-3 sinnum á dag. Töflurnar á að gleypa heilar, með mat. Við langtímameðferð er mikilvægt að nota lægsta skammt, sem gefur fullnægjandi verkun. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 20 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (pynnupakkað). I. Todd etal: Drugs. 1988; 35:244*285. 2. Slcoutakis etal: Drug Intdlig Clin Pharm. 1988; 22:850-859. 3. Roth etal: Arch Intern Med 1989;149: 775*779. 4. de Melo Gomes JA: Scand J Rheumatol. 1992: suppl 96:23-31. 5.Woods etal: Arthritis Rheum. 1992; 35 (suppl 9): (in press). Ó.Verdickt et al: Scand J Rheumatol. 1992; 21:85-91.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.