Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ 83 Tafla II. Frœðsluerindi Blóðgjafafélagsins 1981-1992. Fyrirlesarar 1981 Hlutverk blóðgjafafélaga. Saga blógjafa til lækninga. 1982 Vefjaflokkar (HLA) og önnur erfðamörk og nýting þeirra við sjúkdómsrannsóknir og blóðbankastörf. Bygging A, B, O blóðflokkaefna og munur á fólki í þeim flokkum. 1983 Fræðsluerindi um blóðsöfnun. Varnarkerfi líkamans og starfsemi átfrumna. Blóðbankastarfsemi í dag. 1984 Veirusjúkdómar og blóðlækningar. Blóðgjafar-, merggjafar- og hvítblæðislækningar. Blóðgjafir - ný viðhorf. 1985 Sóttvarnarsjónarmið í sambandi við blóðgjafir. Nýjustu fréttir og viðhorf í AIDS-málum. Sjúkdómseinkenni og ferill alnæmis með tilliti til blóðgjafa og blóðstarfsemi. 1986 Erfðaefnisrannsóknir (DNA) við sjúkdómsgreiningar. Rannsóknir á alnæmismótefnum íslenskra blóðgjafa. Rannsóknaráætlun Blóðbankans 1986-1990. Tegundir dreyrasýki hérlendis. Ónæmisfræði gigtar. 1987 Hjartaskurðlækningar og blóðbankastarfsemin. 1988 Vinnsla storkuþáttar VIII og fleiri prótínþátta til lækninga. Blóðflokkar og erfðasjúkdómar. Vefjaflokkar og sjúkdómar. Sameindaerfðafræði og sjúkdómsgreining. Frá vísindaþingi í Japan: Nýlegar rannsóknir á arfgengri heilablæðingu. 1990 Glasafrjóvgun. 1991 Frá alþjóðaþingi Rauða krossins í Hannover og um blóðgjafastarfsemi. 1992 Blóðsöfnun og alnæmi. Nýr búnaður til smitvarna í Blóðbankanum. Olafur Jensson Þórarinn Guðnason Olafur Jensson Stefán Karlsson Hólmfríður Gísladóttir, Hólmfríður Gunnarsdóttir Helga Ögmundsdóttir Soili H-Erlingsson Ari Sæmundsen Ólafur Jensson, Alfreð Árnason, Leifur Þorsteinsson Viðar Hjartarson Haraldur Briem Ólafur Jensson, Haraldur Briem, Sigurður B. Þorsteinssor Kristján Erlendsson Ástríður Pálsdóttir Björg Rafnar Ólafur Jensson, Alfreð Árnason, Ástríður Pálsdóttir Ólafur Jensson Alfreð Árnason Hörður Alfreðsson, Soili H-Erlingsson Bergþóra Jónsdóttir Ólafur Jensson Alfreð Árnason Ástríður Pálsdóttir Ólafur Jensson Jón Hilmar Alfreðsson, Leifur Þorsteinsson Halldóra Halldórsdóttir, Hólmfrfður Gísladóttir Hólmfríður Gísladóttir Björn Harðarson til blóðsöfnunarferða bæði innan og utan höfuðborgarsvæðisins. A sumrin er farið í nokkrar ferðir til bæja úti á landi til blóðsöfnunar, einkum þar sem eru sjúkrahús. Það er gert til að efla blóðgjafasveit staðarins og gefa henni tækifæri til að leggja fram skerf til blóðlækninga við meiriháttar lækningar á sjúkrahúsum í Reykjavík, sem sjúklingar utan af landi njóta til jafns við íbúa höfuðborgarsvæðisins. í Blóðbankanum fer fram tölvuskráning blóðgjafanna, könnun á heilsufarsatriðum þeirra og rannsókn á blóðflokkum og blóðflokkamótefnum. Ymsar rannsóknir til smitvama eru framkvæmdar á sýni úr blóðeiningunni, sem safnað er, til að koma í veg fyrir að smitefni berist frá blóðgjafa til blóðþega. Meðal smitefna sem prófað er fyrir eru: Lifrarbólguveira B og C og eyðni (eyðnimótefni). Arlega er safnað um 12.000 blóðeiningum (blóðeining er 450 ml) (mynd 1). Blóðgjafar, sem gefa reglulega eða oftar en einu sinni árlega, leggja til um 90% af blóði sem safnað er. Fjöldi blóðgjafa, sem gefa í fyrsta sinn er um 1000 á ári. Að öðru jöfnu er ódýrara og hagkvæmara með hliðsjón af vinnslu og nýtingu að safna blóðinu í bankanum. Helsti samvinnuaðili Blóðbankans við blóðsöfnun er Rauði Kross íslands og deildir hans á blóðsöfnunarstöðunum. Ýmsir fleiri ágætir hjálparaðilar láta til sín taka í þessu starfi eins og deildir slysavarnafélaga, kvenfélög, starfsmannafélög og fyrirtæki, að ógleymdum mörgum einstaklingum sem hafa forgöngu við skipulag og framkvæmd.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.