Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 42
82 LÆKNABLAÐIÐ líka verið mjög góð og á fimm árum hefur þeim tekist að minnka verulega meðaltals blóðnotkun fyrir hvern einstakan sjúkling. Auk stóraðgerða skurðlækna af ýmsu tagi má hafa í huga nauðsyn blóðgjafa í sambandi við meiriháttar innri blæðingar og stórslys. Á sviði lyflækninga má minna á þörfina fyrir blóð og þá sérstaklega blóðflögur, þegar sjúklingur líður tímabundinn blóðflöguskort vegna áhrifa lyfja á mergstarfsemina, þegar lyfjameðferðin beinist gegn krabbameini eins og til dæmis hvítblæði. Af ofangreindum dæmum iná ljóst vera að framlag blóðgjafanna er ómissandi fyrir meiriháttar lækningar á hátæknisjúkrahúsi okkar tíma. Alls vinna 45-50 starfsmenn í Blóðbankanum að jafnaði og dreifast þeir á deildir hans (tafla I). Á árinu 1993 voru stöðuheimildir 38,2. Húsnœði Blóðbankans: Blóðbankastarfsemin hefur búið við húsnæðiskreppu um árabil. Frá 1982 hafa árlega verið gerðar tillögur um að auka húsnæði. Aðstaða til að taka á móti blóðgjöfum og hlynna að þeim verður sífellt erfiðari, sérstaklega vegna aukinnar blóðsöfnunar í bankanum sjálfum. Hún er nauðsynleg vegna aukinnar blóðhlutavinnslu sem eykur nýtingu blóðsins. Meiri og betri blóðhlutavinnslu er ekki mögulegt að koma fyrir við núverandi þrengsli. Tafla I. Skipting starfsmanna Blóðbankans eftir deildum og störfum. Deild/starf Fjöldi starfsmanna Læknar ................................ 2 Skrifstofudeiíd ...................... 10 Blóðtökudeild ........................ 10 Blóðónæmisdeild....................... 15 Erfðafræðideild ....................... 5 Aðstoðarmenn .......................... 5_____________ Heildarfjöldi 47 Starfsaðstaða á öllum deildum er bágborin og hvfldar- og fundaraðstaða starfsfólks ófullnægjandi. Nýjum starfsmönnum og starfsþáttum er örðugt eða ómögulegt að koma fyrir við núverandi þrengsli. Til að ráða bót á húsnæðisvandanum er þess vænst að hafist verði handa við byggingu hæðar ofan á Blóðbankahúsið á fjárhagsárinu 1994 samanber samþykkta teikningu húsameistaraembættisins frá 1988 og fyrri samþykktir stjómarnefndar Ríkisspítalanna í húsnæðismálum Blóðbankans. Blóðsöfnun: Blóðbankinn er vel í sveit settur, þar sem í Reykjavík eru þrjú stærstu sjúkrahús landsins og á Stór-Reykjavíkursvæðinu er líka meirihluti íbúa landsins og skilyrði til blóðsöfnunar hagstæð. Blóði er safnað í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Rauða kross Islands. Blóðsöfnunarbfll Rauða krossins er notaður Blóðsöfnun 1953-1992 Mynd 1, Blóðsöfhun 1953-1992.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.