Læknablaðið - 15.02.1994, Side 39
Diclofenac Na 50 mg MJOG VIRKT
BÓLGUEYÐANDILYF
(NSAID)...
Diclofenac er þrautreynt
og viðurkennt NSAI lyf með mjög góða
bólgueyðandi og verkjastillandi eiginleika. ’-I. 2
Misoprostol A
0,2 mg
...MEÐ ROKRETTA VORN
FYRIR MAGASLÍMHIMNUNA.
Misoprostol er efnafræðilega stöðug
prostaglandín E^-afleiða, sem verndar gegn
magasárum af völdum NSAI lyfja án þess að
draga úr bólgueyðandi eiginleikum þeirra.3-6
Með þvi að tengja saman diclofenac og
misoprostol í Arthrotec® er nú hægt að
meðhöndla sjúklinga sem ekki var hægt að
gefa nægilega skammta af NSAI lyfjum til að
ná verkjastillandi áhrifum þeirra vegna hættu á
magasári.3'6
• Fyrir sjúklinga bætir þessi samsetning til
muna alla lyfjameðferð.
• Fyrir lækna eykst svigrúmið verulega til að
auka skammtastærðir og veita fleiri
sjúklingum meðferð sem þurfa á NSAI
lyfjameðferð að halda.
UMBOÐ: LYFh.f. Garðaflöt 16-18 Garðabæ
Arthrotec®
Searle, 910006
TÖFLUR; M 01 A B 55 R E
Hver tafla inniheldur: Misoprostolum INN 0,2 mg. Innri kjami töflunnar
inniheldur: Diclofenacum INN, natríumsalt, 50 mg.
Eiginleikar: Lyfiö er blanda af díklófenaki og mísóprostóli. Kjarni
hverrar töflu inniheldur díklófenak og er sýruhúðaður, en þar fyrir utan
erhjúpurmeðmísóprostóli.sem losnarúrtöflunniímaganum.Díklófenak
minnkar myndun prostaglandína í líkamanum og hefur verkjastillandi
og bólgueyðandi verkun. Mísóprostól er afbrigði af prostaglandíni E,,
sem veldur minnkaðri sýrumyndun í maga, aukinni slímmyndun í maga
og skeifugörn og aukinni myndun bíkarbónats í skeifugörn. Á þennan
hátt vinna áhrif mísóprostóls gegn ertandi áhrifum bólgueyðandi
gigtarlyfja á slímhúð í maga og skeifugörn.
Ábendingar: Gigtsjúkdómar, þar með taldir iktsýki (arthritis
rheumatoides), hryggikt (spondylitis ankylopoetica), slitgigt og vöðvagigt,
þegar aukin hætta er fyrir hendi á sárum eða bólgu í maga og skeifugörn
af völdum bólgueyðandi gigtarlyfja.
Frábendingar: Blæðandi sár í maga eða skeifugörn. Ofnæmi fyrir
bólgueyðandi gigtarlyfjum eða prostaglandínafbrigðum. lyfið má ekki
gefa sjúklingum, sem fá astma, nefrennsli eða ofsakláða af
acetýlsalicýlsýru eða öðrum skyldum lyfjum. Skorpulifur. Alvarleg
hjartabilun eða nýrnabilum.
Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er magaverkir (um
20%) og næst algengasta er niðurgangur. Þessi óþægindi eru oftast
væg og ganga fljótt yfir. Algengar (>1%): Magaverkir, niðurgangur,
ógleði, vindgangur,_ magabólga, hægðatregða, nábítur, uppköst.
Höfuðverkur, svimi. Útbrot. Einkenni sem likjast inflúenzu. Sjaldgæfar:
Þreyta, sótthiti, almenn vanlíðan, hitakóf, stirðleiki, syfja, svefnleysi,
lystarleysi, aukin matarlyst, svitnun. Blóðflögufækkun. Verkirfyrir brjósti,
háþrýstingur. Breytt húðskyn, mígreni, þunglyndi, minnkað bragðskyn.
Bólgur eða sár í vélinda, maga eða skeifugörn. Kláði, útbrot. Trufluð
lifrarstarfsemi. Vöðvaverkir, sinadráttur. Aukin þvagmyndun. Blæðingar
eða útferð frá fæðingarvegi. Sjóntruflanir, augnverkir. Mjög sjaldgæfar
(<0,1%): Fækkun hvítra blóðkorna. Húðroði. Kvíði, erfiðleikar við
einbeitingu. Tungubólga, blóðug uppköst, hiksti. Bjúgur í húð.
Lifrarskemmdir. Aukin öndun, aukin munnvatnsmyndun. Sykur í þvagi.
Verkir eða suð í eyrum.
Milliverkanir: Díklófenakkeppirviöacetýlsalicýlsýru umpróteinbindingu
og ætti ekki að nota lyfin saman. Lyfið virðist hvorki hafaáhrif á lyfjahvörf
segavarnarlyfja né lyfja við sykursýki, en rétt er að sýna aðgát ef slík lyf
og díklófenak eru gefin saman. Stórir skammtar sýrubindandi lyfja
minnka aögengi mísóprostóls. Blóðþéttni litíums og digoxíns hækkar ef
díklófenakergefiðsamtímis. Díklófenakminnkarútskilnaðmetótrexats
og getur það valdið alvarlegum eiturverkunum. Ef díklófenak og
cíklóspórín eru gefin saman er aukin hætta á nýrnaskemmdum og
háþrýstingi.
Varúö: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með sár í maga eða skeifugörn,
colitis ulcerosa, Crohns sjúkdóm, truflaða blóðmyndun,
blæðingartilhneigingu eða hjartabilun. Enn fremur skal gæta varúðar
við gjöf lyfsins, ef sjúklingar eru meö skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi
(t.d. aldraðir), taka segavarnalyf, þvagræsilyf eða lyf við sykursýki. Við
langtímameðferð þarf að fylgjast með lifrarstarfsemi og blóðhag.
Athugiö: Lyfið getur dregið úr athygli og viðbragðsflýti hjá sumum
sjúklingum og þarf að gæta að þessu við stjórnun ökutækja eða annarra
véla.
Meöganga og brjóstagjöf: Lyfið getur haft ýmis skaðleg áhrif á fóstur
og leg og á ekki að nota það á meðgöngutima. Díklófenak skilst út í
brjóstamjólk, en skaðleg áhrif á barnið eru ólíkleg. Ekki er vitað hvort
mísóprostól skilst út i brjóstamjólk. Konur með börn á brjósti eiga því
ekki að nota lyfið.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er ein
tafla 2-3 sinnum á dag. Töflurnar á að gleypa heilar, með mat. Við
langtímameðferð er mikilvægt að nota lægsta skammt, sem gefur
fullnægjandi verkun.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar: 20 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (pynnupakkað).
I. Todd etal: Drugs. 1988; 35:244*285. 2. Slcoutakis etal: Drug Intdlig Clin Pharm. 1988; 22:850-859. 3. Roth etal: Arch Intern Med 1989;149: 775*779. 4. de Melo Gomes JA: Scand
J Rheumatol. 1992: suppl 96:23-31. 5.Woods etal: Arthritis Rheum. 1992; 35 (suppl 9): (in press). Ó.Verdickt et al: Scand J Rheumatol. 1992; 21:85-91.