Læknablaðið - 15.05.1994, Page 8
172
LÆKNABLAÐIÐ
Total number of patients with thyroid test profiles
5876
positive tests negative tests
1167 (20%) 4709 (80%)
patients with ♦ X patients with
positive tests positive tests
retested in lab not retested
447 (38%) 720 (62%)
second test t x second test
series positive series negative
270 (60%) 177 (40%)
Fig 1. Of the total number of 5876 thyroid lest profiies
performed during tlie period under studv //67 (20%)
were positive (al least one test outside tlie reference
limits) and 447 (38%) of them were retested in the lab,
witli the same or different test combination, with 60% still
positive.
fyrstu komu voru 922 (79%) með aðeins
eitt prófanna jákvætt, 196 (17%) rannsóknir
höfðu tvö próf jákvæð og 49 (4%) þrjú eða
öll fjögur prófin jákvæð. TSH var algengasta
mælingin, oftar jákvæð (13%) og mun oftar
eina jákvæða mælingin (10%) en hinar (3,1-
4,5%).
Á mynd 2 sést hvernig T4 styrkur sermis
breytist þegar TSH styrkur er ofan, innan
og neðan viðmiðunarmarka og greinast þá
þrjár mismunandi kúrfur af T4 styrk í sermi
nteð marktækum mun meðaltala. Þegar
þetta er skoðað fyrir T3 og TSH (mynd
3) falla dreifingarkúrfur T3 næstum saman
og marktækur munur reyndist ekki vera á
sermisstyrk.
UMRÆÐA
Rannsókn þessi byggir á miklum fjölda
skjaldkirtilsprófa sem skoðuð voru
afturskyggnt og því án þess að rannsóknin
hefði áhrif á beiðnir lækna, eins og hætt er við
í framskyggnum rannsóknum. Rannsóknin
tekur hvorki til sjúkdóinsgreininga né
einkenna sjúklinga og því ekki unnt að
álykta uni réttmæti hverrar rannsóknar
enda tilgangurinn ekki sá. Sérhver
rannsóknartegund ákveðins sjúkdóms á sér
þó einhverja vandfundna ”bestu notkun”.
Ef flestöll svör væru jákvæð í ákveðinni
rannsókn og neikvæð í annarri mætti
augljóslega draga þá ályktun að sú fyrrnefnda
væri vannýtt og sú síðarnefnda ofnýtt.
Percent of results
T4, nmol/l
Fig 2. The distribution of serum T4 levels when I) TSH
leveis are under; 2) TSH levels are within and 3) TSH
ievels are obove tlie TSH reference range. Vertical solid
bars show lower and upper normal reference limits of T4.
Percent of results
T3, nmol/l
Fig 3. Tlte distribution of serum T3 levels when 1) TSH
levels are under; 2) TSH levels are within and 3) TSH
levels are obove tlte TSH reference range. Vertical solid
bars show lower and upper reference limits of T3.
Einhvers staðar hér á milli er ”besta notkunin”
en hún er, auk kostnaðar og gæða
rannsóknarinnar, háð mörgum þáttum, til
dæmis algengi, vægi og meðferð sjúkdómsins.
Tíðni skjaldkirtilsprófa sker sig greinilega
úr og er langhæst hjá innkirtlalæknunum
eins og vænta mátti. Virðist meðhöndlun
skjaldkirtilssjúklinga verulegur þáttur
í starfi þeirra eins og hann snýr að
rannsóknarstofunotkun. Erfitt er að finna
sambærilegar tölur um fjölda skjaldkirtilsprófa
annars staðar. í samanburði á amerískum,