Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Síða 21

Læknablaðið - 15.05.1994, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 185-188 185 Jakob Kristinsson1*, Þorkell Jóhannesson11, Ólafur Bjarnason2) ÞÁTTUR KOLOXÍÐEITRANA OG ÖLVUNAR í DAUÐSFÖLLUM AF VÖLDUM ELDSVOÐA ÁGRIP Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna þátt koloxíðeitrana og ölvunar í dauðsföllum af völduin eldsvoða hér á landi. Einnig var gerð tilraun til þess að meta livort aðrar eitraðar lofttegundir, sem myndast ásamt koloxíði við bruna, kynnu að hafa átt hlut að máli. Rannsóknin er afturskyggn og nær til 36 dauðsfalla af völdum eldsvoða, sem rannsökuð voru í rannsóknastofum í lyfjafræði og réttarlæknisfræði við Háskóla íslands á tímabilinu 1971-1990. í hópnum voru 28 karlar og átta konur á aldrinum þriggja til 74 ára. Koloxíðmettun blóðrauða í hinum látnu var á bilinu 0-84%, meðalgildi 53,5%. Tuttugu og fjórir einstaklingar (tveir þriðju hlutar hópsins) voru nteð koloxíðinettun blóðrauða yfir banvænum mörkum (>50%). Fjórtán þeirra voru með litla eða enga áverka af völdum bruna. Var talið að þeir hefðu látist úr koloxíð- eða reykeitrun eingöngu. Koloxíðmettun blóðrauða í þessum einstaklingum (49-84%, meðalgildi 65,5%) var talsvert minni en fundist hefur hér á landi við koloxíðeitranir af útblásturslofti bifreiða (47-87%, meðalgildi 73%). Var mismunurinn marktækur (t-próf, P<0,01). Etanól var í blóði 24 einstaklinga. Var þéttni þess á bilinu 0,47-4,37%c (meðalgildi 2,34%c). Þéttni etanóls í blóði og tíðni ölvunar var borin saman við öll önnur banaslys sem komu til rannsóknar á tímabilinu. 1 Ijós kom að ölvun var hér bæði meiri og algengari en í samanburðarhópnum (t-próf, P<0,01; kí- kvaðrat, P<0,001, df=l). Enda þótt koloxíðeitranir hafi verið þungar á metunum í efniviði okkar voru vísbendingar Frá nRarmsóknastofu í lyfjafræöi, Háskóla íslands, 2>Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Jakob Kristinsson, Rannsóknastofu í lyfjafræði, pósthólf 8216, 128 Reykjavík. í þá átt að aðrar eitraðar lofttegundir kynnu að hafa átt hlut að máli. Ölvun vó einnig þungt og verður ekki frarn hjá því horft, að hún kunni oft að skipta jafn miklu máli og koloxíðeitranir í dauðsföllum af þessu tagi. INNGANGUR Mönnum hefur lengi verið Ijóst, að koloxíð myndast í ntiklu magni við eldsvoða og eru þeir sem farast í eldi, oftast með banvæna koloxíðeitrun. Kom þetta glöggt fram í ritgerð um rannsóknir á koloxíðeitrunum, sem birtist í Læknablaðinu 1971, en þar var gerð grein fyrir 11 dauðsföllum af völdum eldsvoða sem urðu hér á landi á árunum 1966-1970 (1). Þar kom einnig frant að fiestir hinna látnu höfðu verið mjög ölvaðir. Svipað hefur komið fram í erlendum rannsóknum (2-4) og gæti það bent til þess, að dauðsföll sem þessi kunni að tengjast mikilli áfengisneyslu. Þetta virðist þó ekki hafa verið rannsakað sérstaklega. Tilgangur rannsóknar þeirrar sem hér er sagt frá, var að kanna þátt koloxíðeitrana og ölvunar í dauðsföllum af völdum eldsvoða hér á landi. Við mat á koloxíðeitrunum voru dauðsföll af völdum koloxíðeitrana af útblásturslofti bifreiða höfð til hliðsjónar. Gerð var tilraun til þess að meta hvort aðrar eitraðar loftegundir, sent myndast geta við bruna, kynnu að hafa átt hlut að máli. Ölvun var metin með samanburði við ölvunarástand og tíðni ölvunar við banaslys af öðru tagi, sem rannsökuð voru á tímabilinu. Rannsóknin er afturskyggn og nær yfir tímabilið 1971- 1990. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Efniviðurinn var dauðsföll af völdum eldsvoða í húsum eða skipum, sem komu til rannsóknar í rannsóknastofum í réttarlæknisfræði og í lyfjafræði^ við Háskóla íslands á fyrrgreindu tímabili. I öllum tilvikum var talið að um slys hafi verið að ræða. Voru þetta öll banaslys af völdunt elds, sem komu til rannsóknar og

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.