Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Síða 26

Læknablaðið - 15.05.1994, Síða 26
190 LÆKNABLAÐIÐ 8-MOP gefið í töfluformi en 5-MOP er gefið útvortis. Hér verður lýst tveimur sjúkratilfellum með Ijósertiexem af völdum sellerís (Apium Graveolens), en báðir sjúklingarnir veiktust í desember 1993. Þessu til staðfestingar framkallaði annar höfunda (S.D.) Ijósertiexem af völdum sellerísafa á sjálfum sér. Sjúklingar veittu heimild til myndbirtingar. SJÚKRATILFELLI 1. Sjúklingur er á sextugsaldri og vinnur í grænmetisdeild stórmarkaðar. Daginn áður en húðbreytingarnar komu fram var hann að pakka selleríi. Voru selleríplönturnar óvenju stórar og safamiklar og höfðu komið til landsins tveimur til þremur vikum áður. Sjúklingur skar stilki af og snyrti til plönturnar áður en þær voru settar í plast. Seinna um daginn fór hann á sólbaðstofu og sólaði sig þar í 20 mínútur án þess að fara í bað áður. Fram að þessu hafði viðkomandi þolað sólbaðstofuljós vel. Daginn eftir kom fram roði á framhandleggjum og höndum. Þriðja daginn komu vökvafylltar blöðrur með sviða og verkjum. Finnn dögum eftir sólbaðstofuheimsóknina höfðu blöðrurnar rofnað og nokkur roði var í kring. Væg eymsli voru í hægri handarkrika en ekki sogæðabólga á handlegg. A sjötta degi var útlitið eins og sést á mynd 1. Sjúklingur var meðhöndlaður með Hydrocolloid-umbúðum (Granuflex) og gefið Díclóxacfllín-hylki vegna gruns um byrjandi sýkingu. Húðbreytingar greru hægt. Um þremur vikum eftir brunann var húðin enn ljósrauð og viðkvæm. 2. Sjúklingur um tvítugt sem vann í sömu grænmetisdeild fór að taka eftir rauðum flekkjum á höndum og úlnliðum daginn eftir að hann fór á sólbaðstofu. Hann sólaði sig í 18 mínútur. Sjúklingur hafði engin einkenni frá húðbreytingunum. Við nánari athugun kom í ljós að hann hafði raðað selleríi í grænmetisborð fyrr um daginn, áður en hann fór í ljósin. Þar eð afklipptir stilkar sellerísins voru ekki huldir plasti, strukust þeir við hendur og úlnliði sjúklings þegar plönturnar voru settar í grænmetisborðið. Við skoðun fimm dögum síðar voru komnar vökvafylltar blöðrur með roða í kring. Sáust sumstaðar greinilegar strimillaga húðbreytingar (mynd Mynd 1. Sjúkratilfelli nr.l sex dögum eftir UVA-ljós og snertingu við sellerí. Mynd 2. Sjúkratilfelli nr.2 finun dögwn eftir UVA-ljós og snertingu við sellerí. 2). Sjúklingur var meðhöndlaður með sterku sterakremi tvisvar á dag. Útbrotin greru hægt og hlutust veruleg óþægindi af þegar blöðrurnar brustu. 3. Vitað er um þriðja starfsmanninn sem fékk sams konar breytingar á hendur eftir að hafa handleikið sellen' og farið síðan á sólbaðstofu. Þetta gerðist á svipuðum tfma og hjá hinum starfsmönnunum tveimur. Til staðfestingar því að um ljósertiexem af völdum sellerís væri að ræða strauk annar höfunda (S.D.) safa úr sellerístilki á framhandlegg sinn og var svæðið lýst með UVA-ljósi í 10 mínútur tveimur klukkustundum síðar. Daginn eftir myndaðist roði og þroti í húð. Tveimur dögum síðar mynduðust stórar blöðrur (mynd 3). Viku sfðar leit handleggurinn út eins og mynd 4 sýnir. Sellerí þetta var keypt í sama stórmarkaði nokkrum dögum eftir að sjúklingarnir leituðu læknis. Að sögn þeirra var um sams konar sellerí að ræða og þeir höfðu unnið við dagana sem útbrotin komu.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.