Læknablaðið - 15.11.1994, Side 22
458
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Rates/100.000
Years
Fig. 3. Females, incidence rates during 1955 to 1990 by histo-
logic grouping into papillary, follicular and anaplastic carcin-
omas.
konum hækkaði fyrstu árin, var hæst milli 1965
og 1979 en lækkaði síðan aftur og hefur haldist
að mestu óbreytt síðasta áratuginn. Hjá körl-
um hækkaði nýgengið á fyrri hluta athugunar-
tímabilsins en hefur haldist svipað síðustu árin.
Dánartíðnin hjá báðum kynjum hefur lækkað á
tímabilinu. Á mynd 3 sést að breytingar á ný-
gengi hjá konum eru nær eingöngu vegna
breytinga á nýgengi totukrabbameina. A nrynd
4 sést að hækkun á nýgengi hjá körlum má
rekja til fjölgunar totukrabbameina og skjald-
búskrabbameina.
Mynd 5 sýnir lífshorfur sjúklinga með tví-
litna og mislitna æxli. Á myndinni sést að mun-
urinn milli þessara tveggja hópa kemur fram á
fyrstu tveimur til þremur árunum eftir grein-
ingu en eftir það eru horfur sjúklinganna svip-
aðar. Lífshorfur fyrir S-fasa mælingar eru ekki
sýndar en munurinn á milli hópa þar var minni
en mynd 5 sýnir.
Mynd 6 sýnir lífshorfur eftir að sjúklingun-
um hefur verið skipt í fjóra hópa eftir vefja-
gerð. Þar sést að horfur sjúklinga með totu-
krabbamein og skjaldbúskrabbamein eru góð-
ar og að ekki er marktækur munur milli
þessara tveggja hópa. Sjúklingar með villivaxt-
arkrabbamein látast nánast allir innan árs frá
greiningu. Um helmingur þeirra sem greinast
með merggerðarkrabbamein læknast.
Fjölbreytugreining Cox var notuð við mat á
sjálfstæðu gildi áhættuþátta.
Eftirtaldir þættir voru settir inn í líkanið:
Aldur sjúklings við greiningu, greiningarár, út-
breiðsla sjúkdómsins (TO-3 á móti T4, N0 á
móti N1 og M0 á móti Ml), vefjagerð (totu-
krabbamein á móti skjaldbúskrabbameini,
Rates/100.000
Years
Fig. 4. Males, incidence rates during 1955-1990 by histologic
grouping into papillary, follicular and anaplastic carcinomas.
Survival %
Fig. 5. Survivalcorrectedforcauseofdeath otherthan thyroid
cancer in 424 patients with diploid and aneuploid carcinomas.
Years
Fig. 6. Survival corrected for causes of death other than
tliyroid cancer by histology.