Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1994, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.11.1994, Blaðsíða 60
488 íðorðasafn lækna 59 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 Meira um framburð í síðasta pistli var lítillega drepið á framburð íslenskra fræðiorða og tekin voru dæmi um ritvillur sem virtust eiga uppruna í óskírmælgi, líffærið botnlangi var ýmist ritað bot- langi eða bottlangi. Það er vissulega athygli vert ef þekking ungra lækna á íslensku fræði- máli er orðin svo slök að slíkar villur geti komið fyrir. Ef til vill er orðið nauðsynlegt að lækna- deild taki upp sérstaka kennslu í íðorðafræðum. Undirritaður sér strax fyrir sér stutt nám- skeið, íðorðaskeið, þar sem fjallað væri um helstu atriðin í uppruna, byggingu og notkun íslenskra og erlendra fræðiorða. Rekinn yrði áróður fyrir réttri notkun fræðimálsins, hvort sem menn kjósa að íslenska öll fræðiorð eða að nota alþjóðlegu heitin. Það er reyndar skoðun undirritaðs að læknurn sé engin vorkunn að hafa á takteinum bæði íslensk og erlend heiti á þeim fyrirbærum sem þeir fást við í daglegu starfi. Að sjálf- sögðu yrði lögð sérstök áhersla á kynningu og notkun íslenskra fræðiorða, en að auki leitað nýrra hugmynda og tillagna frá þátttakendum. Þannig mætti ef til vill byggja upp frjóa hug- myndasmiðju og koma á nýju fræðasviði innan læknadeildar. Augljóst er að þekkingu á latínu og grísku, sem eru hornsteinar verulegs hluta fræðimálsins, fer stöðugt hrakandi. Veita mætti innsýn í þessi mál og ef til vill viðhalda lágmarksþekkingu, því að annars verða læknar van- búnir til þess að fara rétt með mörg erlendu fræðiheitin. Slíkt námskeið gæti einnig orðið til þess að sá áhugi á fallegri fram- setningu fræðilegra staðreynda, sem nú ber mjög á í innlendum ritsmíðum íslenskra lækna, gæti náð til talmálsins. Sjúklingar gætu jafnvel farið að skilja það sem læknarnir eru að segja við þá og ráðleggja þeim! Efnagreiningar Rannsóknarlæknir hringdi og var að fást við þýðingar á hug- tökunum quantitative analysis og qualitative analysis. Þýðing- ar íðorðasafnsins þóttu of stirð- legar til að nota í daglegu starfi, en þar er quantitative analysis nefnd megindargreining og qu- alitative analysis eigindargrein- ing eða eðlisgreining. Aður en komið er með tillögur er nauð- synlegt að „sundurgreina“ orð og orðhluta. í ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs er lýs- ingarorðið quantitative þýtt með íslensku orðunum; magn- bundinn, megindlegur, mælan- legur, veganlegur, og nafnorðið quantity meðal annars með orð- unum; magn, fjöldi, stærð, mæld, skammtur. Hins vegar er lýsingarorðið qualitative þýtt sem: eiginda-, eigindlegur, eiginleika-. Nafnorðið quality má þýða á nokkra vegu, til dæmis; einkenni, aðal, sér- kenni, eiginleiki, eðli eða gæði. Uppruna þessara orða er að leita í latínu þar sem nafnorðið quantum merkir magn, en qual- is er fornafn sem vísar til eðlis eða eiginleika. Analysis er komið úr grísku. Forskeytið ana- merkir; upp, sundur eða í áttina að, en lysis táknar niðurbrot, sundrun, rof eða upplausn. íðorðasafn lækna upplýsir að heitið analysis sé notað á þrjá vegu, í fyrsta lagi í almennri merkingu og tákni þá greiningu eða sundurliðun, í öðru lagi um efnagreiningu og í þriðja lagi um sálgreiningu. í ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs má finna að heitið er notað um fleiri greiningar, svo sem stærðfræðigreiningu, rök- greiningu og efnisgreiningu (í bókmenntum). Læknisfræði- orðabók Stedmans leggur mesta áherslu á þá almennu merkingu sem felur í sér niður- brot efnasambanda í einfaldari efni og greiningu á því hver samsetning þeirra er. Orðið analysis er notað í mörgum öðr- um samsetningum, en athugun leiðir í ljós sérstaka áherslu á sundurgreiningu þess sem rann- sakað er í hverju tilviki. Þannig virðist það eiga vel við þegar fram fer rannsókn tii að að- greina marga þætti, en síður þegar fram fer mæling eða próf- un á einum þætti eða einu efni. Þannig má leiða rök að því að heitin quantitative og quan- titative analysis eigi best við þegar verið er að mæla eða greina marga efnisþætti í einu. Við annarri notkun skal þó ekki amast í bili. Magngreining, eðlisgreining Niðurstaða þessara hugleið- inga verður sú að vel fari á að quantitative analysis verði nefnd magngreining á íslensku og qualitative analysis eðlis- greining. Heitin megindgrein- ing og eigindgreining hljóma svo líkt að hætta virðist á rugl- ingi. Þess vegna er lagst gegn notkun þeirra. Ef til vill er einn- ig ástæða til að skoða betur og samræma önnur rannsókna- heiti, svo sem assay, measure- ment og test. Jóhann Heiðar Jóhannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.