Læknablaðið - 15.11.1994, Qupperneq 62
490
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Lyfjamál 33
Frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
og landlækni
Lyfjanotkun
og kostnaður
Nokkur árangur hefur orðið á
síðustu misserum í því að
minnka notkun sársjúkdóms-
lyfja og sýkingalyfja, en þó er
hún enn verulega meiri hér á
landi en á öðrum Norðurlönd-
um sem við berum okkur helst
saman við. Sá árangur, sem hef-
ur náðst, er eflaust að miklu
leyti því að þakka, að meðferð
sársjúkdóms hefur tekið um-
talsverðum framförum og nú er
unnt að lækna mun fleiri sjúka
en áður. Lyfjakostnaður í þess-
um flokki hefur því farið lækk-
andi. Hvað sýkingalyf varðar þá
stafar minni notkun væntanlega
mest af því að greiðsluþátttöku
almannatrygginga hefur að
mestu verið hætt, en einnig af
ítrekuðum viðvörunum sér-
fræðinga við of mikilli notkun
þeirra.
Hins vegar er annar flokkur
lyfja þar sem notkun hefur vax-
ið mjög ört á skömmum tíma og
gert meir en að eyða þeim
ávinningi sem orðið hefur í sár-
sjúkdómslyfjum og sýkingalyfj-
um. Þetta eru geðdeyfðarlyf
(ATC-fl. N06A). Línuritin hér
á eftir sýna þróunina frá 1989 í
magni skilgreindra dag-
skammta á 1000 íbúa á dag og
kostnaðartölur á föstu verðlagi
samkvæmt verðskrá 1. apríl
1994. Athygli vekur, að notkun
þríhringlaga og fjórhringlaga af-
brigða er næstum stöðug. í þeim
flokkum eru nú skráð 11 lyf und-
ir 18 sérlyfjaheitum. Notkun
MAO-blokkara vex. Þar er um
nýtt lyf að ræða í þeim flokki
(móklóbemíð), en eldri lyf hafa
verið afskráð. Það sem þó mun-
ar langmest um er aukningin á
notkun tvíhringlaga afbrigða
(flúoxetín, cítalópram, paroxet-
ín). Fyrsta lyfiðíþeimflokki var
skráð hér 1988 (flúoxetín), en
hin hafa bæst við á þessu og síð-
asta ári og eru nú skráð þrjú lyf
undir sex sérlyfjaheitum. Þessi
nýju lyf eru mun dýrari en eldri
Þúa.kr
260.000
200.000
lyf. Árið 1993 var meðalverð
dagskammta af þríhringlaga af-
brigðum 56 krónur, fjórhring-
laga afbrigðum 129 krónur, en
MAO-blokkara og tvíhringlaga
afbrigða um 200 krónur. Nú
stefnir ört í það, að þessi nýju lyf
kosti okkur um 250 milljónir
króna á ári, eða meira en öll
geðdeyfðarlyf til samans á síð-
asta ári. Hrakar geðheilsu okk-
ar svona ört, eða er hér eitthvað
annað að gerast ?
1989 1990 1991 1992 1993 Soá 1994
Söluverðmæti geðdeyfðarlyfja á föstu verðlagi 1984 (apóteksverð).
Notkun geðdeyfðarlyfja N06A frá 1989 í magni skilgreindra dag-
skammta á 1000 íbúa á dag.
• Þrlhringlags albrigði
Tvihringlaga afbrigði
• Fjórhringlaga afbrigði
-----------MAO-blokkarar