Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 22
856
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Fyrirspurnir — svör
Glútenóþol í görn ...
Athugasemd
Ég las með áhuga grein Jóns Sigmundssonar
og félaga Glútenóþol ígörn á íslandi — faralds-
frœði, sjúkdómsmynd og greining sem birtist í
Læknablaðinu í maí 1995 (1). Það vakti furðu
mína að aðeins einn af þessum 28 sjúklingum
sem greindust með glútenóþol, hafði hring-
blöðrubólgu (dermatitis herpetiformis). Það er
vitað að stór hluti, ef ekki allir, sjúklingar með
hringblöðrubólgu hafa glútenóþol í görn, en í
meirihluta tilfella án einkenna (2). Ég geri ráð
fyrir því að það hafi greinst meira en einn
sjúklingur á Islandi með hringblöðrubólgu á
tímabilinu 1962-1991. Hafa þessir sjúklingar
verið rannsakaðir með tilliti til glútenóþols í
görn? Ef það hefur verið gert og í ljós hefur
komið að þeir hafa ekki verið með glútenóþol,
þá er það út af fyrir sig mjög merkilegt og efni í
sérstaka grein. Hafi þeir aftur á móti ekki verið
rannsakaðir með tilliti til glútenóþols þá má
gera ráð fyrir því, að þessir sjúklingar bætist í
hóp þeirra sem eru með glútengarnamein en
hafa ekki verið greindir.
HEIMILDIR
1. Sigmundsson J, Guðjónsson H, Björnsson J, Cariglia NJ,
Pálsson G. Glútenóþol í görn á íslandi — faraldsfræði,
sjúkdómsmynd og greining. Læknablaðið 1995; 81: 393-
400.
2. Katz SI. Dermititis Herpetiformis. In: Fitzpatrick TB,
Eisen AZ, Wolff K, Freedberg, Austen KF, eds. Derma-
tology in General Medicine. New York: McGraw-Hill,
Inc. 1993: 636-41.
Vigfús Sigurðsson
sérfræðingur í húðsjúkdómum,
húðlækningadeild
Háskólasjúkrahússins í Utrecht
Svar
Við þökkum Vigfúsi kærlega fyrir þann
áhuga sem hann sýnir grein okkar um glúten-
óþol í görn á íslandi (1). Það er hárrétt hjá
Vigfúsi að nær allir þeir sem hafa hringblöðru-
bólgu (dermatitis herpetiformis) hafa einnig
glúten-garnamein, þó oftast séu einkenni frá
þarmi lítil sem engin. Aftur á móti ef glúten-
óþol kemur fyrst og fremst fram í görn (coeliac
sprue) þá hafa einungis innan við 10% slíkra
sjúklinga hringblöðrubólgu (2). Okkar grein
einskorðast við þá sem hafa fyrst og fremst
glúten-garnamein þannig að það er í samræmi
við ofanskráð að einungis einn af 28 sjúkling-
um með glúten-garnamein hafa líka húðsjúk-
dóminn. Okkur er reyndar kunnugt að á tíma-
bilinu 1962-91 eru að minnsta kosti sjö vel stað-
fest tilfelli um hringblöðrubólgu. Þetta þekkj-
um við því leitað var að slíkum sjúklingum í
tengslum við rannsókn á HLA vefjaflokkum
sjúklinga með glútenofnæmi (3). Einungis einn
þessara sjúklinga fór í smáþarmasýnatöku sem
var jákvæð. Þessi tiltekni sjúklingur er einmitt
þessi eini í okkar hópi sem hefur staðfest glút-
enofnæmi í görn og húð. Hinir sex með hring-
blöðrubólgu eru ekki hluti af okkar efniviði
þar sem eitt af inntökuskilyrðum fyrir glúten-
garnamein er sönnuð skemmd á þarmaslím-
húð.
HEIMILDIR
1. Sigmundsson J, Guðjónsson H, Björnsson J, Cariglia NJ,
Pálsson G. Glútenóþol í görn á Islandi — faraldsfræði,
sjúkdómsmynd og greining. Læknablaðið 1995 ; 81: 393-
400.
2. Trier JS. Celiac sprue. In: Sleisengar MH, Fordtran JS,
eds. Gastrointestinal disease. Philadelphia: WB Saunders
Co, 1993: 1078-96.
3. Árnason A, Skaftadóttir 1, Sigmundsson J, Mooney E,
Björnsson J, Cariglia N, Pálsson G, Guðjónsson H. The
association between coeliac disease, dermatitis herpeti-
formis and certain HLA-antigens in Icelanders. Eur J
Immunogenetics 1994; 21: 457-60.
Fyrir hönd höfunda
Hallgrímur Guðjónsson læknir