Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1996, Síða 11

Læknablaðið - 15.03.1996, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 201 Lokaorð Umræða um forgangsröðun, sem ég vil nefna stefnumótun, er mikilvæg, nauðsynleg og tímabær. Einfaldasta svarið við spurningunni, hvort þörf sé forgangsröðunar í heilbrigðismálum er, já auðvitað, forgangsröðun hefur alltaf verið til í heilbrigðiskerfinu og er nauðsynlegur hluti hennar svo lengi sem við erum háð mannlegri þekkingu og tíma, það er að segja svo lengi sem einn læknir þarf að sinna tveimur sjúklingum á sama tíma. Kannski breytist þetta þegar við förum að ferðast í tímanum og nota tölvur sem lækna í stað manna. Beinist spurningin hins vegar ekki að þessari gerð forgangsröðunar heldur hinum tveimur eða þremur þrepunum, verður svar mitt að mjög líklega þurfi að forgangsraða verkefnum á þessum sviðum, enda hefur það vissulega verið gert hingað til þó í mismunandi miklum mæli sé og mismikið hafi verið eftir því tekið. Dæmi um forgangsröðun á þessu stigi er að láta þjónustu við bráðveika sjúklinga ganga fyrir þjónustu við sjúklinga með langvinna sjúk- dóma. Sé hins vegar spurt hvort þurfi að forgangs- raða ákveðnum sjúklingahópum á kostnað annarra sjúklingahópa eða meðferð við ein- hverjum sjúkdómi á kostnað annarrar með- ferðar, þannig að til komi einhvers konar geng- isfelling á meðferð frá því sem nú er, þá verð ég að viðurkenna að ég er ekki viss um hvert sé rétta svarið. Það sem ég tel mig ekki vita ennþá er hvað gera megi til dæmis með hagræðingu innan kerfisins, þannig að ekki þurfi að gengis- fella meðferð eða raða sjúklingahópum á ann- an hátt en gert er í dag. En ég veit heldur ekki til þess að neinn annar hafi gott svar við þessari spurningu ennþá. Beinist upphafsspurningin í þessa átt tel ég hana allt of mikla einföldun á vandamálum heilbrigðiskerfisins. Að mínum dómi er ekki æskilegt að fjalla um forgangsröð- un sjúklingahópa eða meðferða án þess að fjalla um margt annað í heilbrigðiskerfinu sem hefur beint og óbeint áhrif á þessa röðun. Ef merking spurningarinnar er nær því að vera: Er þörf á að ræða forgangsröðun í heil- brigðiskerfinu?, er svarið já. Það er alltaf þörf á því að ræða hvað er að gerast og hvað best sé að gera, þannig að ekki verði óvart teknar ákvarðanir sem eru siðferðilega vafasamar eða kannski kostnaðarsamari en þær sem við höf- um í dag. Ef spurningin er: Er þörf heildarstefnumót- unar í heilbrigðiskerfinu til framtíðar?, þá er svarið einfalt — oft var þörf en nú er nauðsyn. Hér vil ég meina að við séum komin að kjarna málsins og svörin við spurningunum hver stefnan eigi að vera og hvers vegna hún eigi að vera þannig er verðugt rannsóknarefni og niðurstaðan skiptir miklu máli fyrir alla þjóðina. María Sigurjónsdóttir, geðdeild Landspítalans HEIMILDIR 1. Sigurjónsdóttir M. Staða lækna í þjóðfélaginu, nokkur siðferðileg atriði. Læknablaðið 1995; 81: 819-22. 2. Magnússon T. Siðferðilegur grunnur styrkir ákvarðanir um forgangsröðun. Læknablaðið 1995; 81: 704-6. 3. Outka G. Social justice and equal access to health care. In: Munson R, ed. Intervention and Reflection. Basic Issues in medical Ethics. 4th ed. Belmont, California: Wadsworth Publishing Company, 1992: 594-603. 4. Rescher NP. The ailocation of exotic medical lifesaving therapy. In: Mappes TA, Zembathy JS, eds. Biomedical Ethics. 3rd ed. New York: McGraw-Hill Inc., 1991: 598- 608. 5. Daniels N. Health-care needs and distributive justice. In: Arras J. Rhoden J, eds. Ethical Issues in Modern Med- icine. 3rd ed. California: Mayfield Publishing Company, Mountain View, 1989: 501-9. 6. Callahan D. Meeting needs and rationing care. In: Mappes TA, Zembathy JS, eds. Biomedical Ethics. 3rd ed. New York: McGraw-Hill Inc., 1991: 575-81. 7. Emery DD, Schneiderman LJ. Cost-effectiveness analy- sis in health care. Hastings Center Report, 1989; July- August: 8-13.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.