Læknablaðið - 15.03.1996, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
221
reyndust 26 (33%) hafa aöra meðfædda fæð-
ingargalla; Downs heilkenni átta börn (9%),
aðra litningagalla þrjú börn (3,5%), aðra galla
15 börn (17%) og króníska langvinna sjúkdóma
10 börn (11%). Þá voru 29 börn (34%) með
tengdan hjartasjúkdóm þótt op á milli gátta
væri aðalgallinn. Fjögur börn (5%) létust en
dánarorsakir voru í öllum tilvikum aðrar en op
á milli gátta og hafði ekkert þeirra gengist und-
ir hjartaaðgerð.
Af 87 sjúklingum hafa eða munu 34 börn
(39%) gangast undir aðgerð þar sem opinu var
lokað en hjá 29 börnum (33%) hefur opið lok-
ast, en minnkað verulega hjá 12 börnum (14%)
þannig að ekki er þörf á aðgerð. Ekkert barn-
anna lést vegna aðgerðar og einn sjúklingur
fékk fylgikvilla.
Við ályktum að op á milli gátta sé algengari
sjúkdómur á barnsaldri en fram að þessu hefur
verið talið og tengd vandamál oft margvísleg.
Það torveldar greiningu að einkenni eru oft
óljós og óhljóð sem fylgir oft sakleysislegt. Paö
er auðvelt og öruggt að lagfæra gallann og
leysast oft veruleg vandamál við þá aðgerð.
Inngangur
Op á milli gátta (atrial septal defect, ASD)
er algengur meðfæddur hjartasjúkdómur og
greinist hann á öllum aldri (1—4). Þannig eru
7-18% sjúklinga með meðfædda hjartagalla
með op á milli gátta án þess að hafa annan
alvarlegan hjartagalla (2-4). Ein íslensk rann-
sókn er til um nýgengi meðfæddra hjartagalla
og reyndist op á milli gátta vera næstalgengasti
gallinn eða 16% alvarlegra hjartagalla (5). Hjá
sjúklingum sem greinast með hjartagalla á full-
orðinsárum eru 33% með op á milli gátta (6).
Þá er þessi hjartagalli oft hluti af öðrum alvar-
legri hjartagöllum (7).
Op á milli gátta skiptist í fjórar gerðir eftir
staðsetningu á gáttaskilum. Op á milli gátta á
miðjum gáttaskilum (ASD secundum, ASD
2°) er algengast og er í eða við sporgróf hjart-
ans (fossa ovalis) á gáttaskilum. Sinus venosus
op á milli gátta (SV ASD) er op sem liggur
aftarlega og ofan til á gáttaskilum þar sem
hægri lungnabláæð og efri meginholæð (vena
cava superior) tengjast hjartanu (7). Primum
op á milli gátta (ASD 1°) er op staðsett neðst á
gáttaskilum og orsakast af ófullnægjandi sam-
vexti lokuvísa (endocardial cushions) og fylgir
að jafnaði rauf í framblöðku míturlokunnar
(cleft mitral valve) (6,7). Sjaldgæfasta gerðin
af opi á milli gátta er op í kransæðabláæð (sinus
coronarius) þannig að blóð frá vinstri gátt á
leið að hægri gátt um sínusinn sem stækkar og
víkkar.
Op á milli gátta er algengara meðal stúlkna
en drengja og er kynjahlutfalli oftast lýst 2:1.
Einn annar hjartagalli er einnig algengari hjá
stúlkum, opin fósturæð, en allir aðrir hjarta-
gallar eru algengari hjá drengjum (5,7).
Pað er fremur fátítt að op á milli gátta valdi
veikindum á unga aldri. I rannsókn frá Nýja
Englandi, sem tók til barna sem gengust undir
hjartaaðgerð á fyrsta ári, var aðeins 1% barn-
anna með op á milli gátta (8).
Oftast eru klínísk einkenni lítil og fremur
óljós (1,4) og hjartaóhljóð sem fylgir er oft
sakleysislegt eða heyrist alls ekki fyrr en komið
er fram á fullorðinsár. Börn eru oft einkenna-
laus (4,7). Petta tefur greiningu verulega. Þó
hefur aldur við greiningu heldur farið lækkandi
samfara bættri greiningartækni (ómskoðanir,
Dopplers ómun (7).
Horfur barna sem greinast með op á milli
gátta og gangast undir aðgerð eru góðar þegar
til langs tíma er litið. Þegar sjúkdómurinn
greinist á fullorðinsaldri eru horfur mun lakari
og víkkun á hægri slegli og hægri gátt leiðir til
síðkominna vandamála jafnvel þótt opinu hafi
verið lokað (13).
Þegar op á milli gátta greinist er að jafnaði
beðið þriggja til fimm ára aldurs með að gera
skurðaðgerð þar sem jafnvel stór op geta lok-
ast sjálfkrafa (1,3,9,13-17). Þau börn sem enn
hafa stór op, sinus venosus eða primum op á
milli gátta gangast þá undir skurðaðgerð og
opinu er lokað.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að at-
huga breytingar á nýgengi ops á milli gátta á 10
ára tímabili. Við athuguðum einnig hvaða
einkenni það eru hjá börnunum, sem leiða til
greiningar, aldur við greiningu og stærð opsins,
og ennfremur hvort op á milli gátta sé algeng-
ari hjá fyrirburum og árangur aðgerða og dán-
artölur.
Efniviður og aðferðir
Sjúklingar: Farið var yfir niðurstöður allra
ómskoðana sem gerðar hafa verið á börnum
frá upphafi ómrannsókna á hjarta á Landspít-
ala fram til 1. júní 1994. Öll börn sem greinst
hafa með op á milli gátta á íslandi hafa komið
þangað til skoðunar. Skilyrði þess að börn
voru tekin með í þessa rannsókn voru: