Læknablaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 32
222
LÆKN ABLAÐIÐ 1996; 82
1. Börn fædd á 10 ára tímabili á árunum
1984-1993.
2. Stærð ops á milli gátta við greiningu 4 mm
eða stærra.
3. Op á milli gátta var ekki hluti af öðrum
alvarlegum hjartagalla eins og Fernu Fal-
lot, víxlun stóru slagæðanna, stóru opi á
milli slegla eða öðrum göllurn, þar sem
aðgerðar var þörf. Þannig voru sjúklingar
með op á milli gátta og aðra lítilfjörlega
hjartagalla sem hefðu ekki þurft aðgerðar
einir sér, teknir með.
Aðferðir: Skoðaðar voru sjúkraskrár með
greininguna op á milli gátta (ICD núrner 745,5
og 745,6) á Barnaspítala Hringsins og einnig
sjúkraskrár með sömu greiningu af stofu ann-
ars höfundar (HH) sem er sérfræðingur í
hjartasjúkdómum barna.
Eftirtalin atriði voru athuguð: Tilvísunarað-
ili, ástæða tilvísunar, einkenni sjúklings og ald-
ur við greiningu. Hjartalínurit voru endurmet-
in og röntgenmyndir af lungum og hjarta end-
urskoðaðar. Farið var yfir niðurstöður
ómrannsókna, það er gerð opsins, hvort um
stakt eða fleiri op á milli gátta væri að ræða og
athugað hvort gúlmyndun hefði orðið á gátta-
skilum.
Einnig var fjöldi fyrirbura í þessum hóp at-
hugaður (börn fædd fyrir 36. viku meðgöngu).
Loks voru skráðir aðrir hjartagallar og aðrir
meðfæddir gallar eins og litningagallar og aðrir
alvarlegir sjúkdómar.
Hjartalínurit voru skoðuð og endurmetin.
Þau börn sem höfðu óeðlilegt hjartalínurit
voru með hægri öxulsveigju og/eða merki um
stækkun á hægri slegli. Notuð voru McCam-
mons skilmerki þegar tekin var afstaða til hvað
teldist eðlilegt eða óeðlilegt (18).
Greining var staðfest í öllum tilvikum með
ómskoðun. Fyrstu árin var notuð General El-
ectric ómsjá með 3 MHz ómhaus, en frá 1. maí
1988 hefur verið notuð Hewlett-Packard ómsjá
með 5,0 og 3,5 MHz ómhausum. Notuð hefur
verið tvívíddarómun með lita- og Dopplers
óntun. Gáttaskil voru skoðuð með því að beita
ómhausnum undir bringspalir (subxyphoid
long and short axis) í lang- og skammás.
Minnsta þvermál opsins var síðan notað við
útreikninga.
Tölfrœði: Tölfræðilegur útreikningur við
samanburð, þar sem því var komið við, var
gerður með kí- kvaðrati; p-gildi minna en 0,05
var talið tölfræðilega marktækt.
Niðurstöður
Sjúklingar: Op á milli gátta greindist hjá 87
börnunr, 61 stúlku og 26 drengjum, hlutfall
stúlkna/drengja var því 2,4:1. A tímabilinu
fæddust 43.809 lifandi börn á íslandi og var
nýgengi ops á milli gátta því 0,2% (1,98 á hver
1000 lifandi fædd börn). Fjöldi nýgreindra til-
fella fór vaxandi á tímabilinu (mynd 1).
Þegar skoðað var hvernig börnunum var vís-
að til hjartaskoðunar kom fram að 30% var
vísað frá fæðingarstofnun, 22% úr ungbarna-
eftirliti, 15% frá barnadeildum (Barnaspítali
Hringsins og Landakotsspítali) og 32% eftir
skoðun hjá öðrunt læknum. Eitt barn (1%)
kom til skoðunar að frumkvæði foreldra.
Astœða tilvísunar var oftast hjartaóhljóð en
aðrar ástæður voru blámi, mæði, vanþrif, litn-
ingagallar eða endurteknar sýkingar (tafla I).
No. of pnticnts
20-, ___________
1984-85 1986-87 1988-89 1990-91 1992-93
Year of birth
Fig. 1. Number of patients diagnosed with ASD in Iceland
1984-1993.