Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1996, Page 37

Læknablaðið - 15.03.1996, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 225 það sem búast má við, secundum op er algeng- asta formið (91%), sinus venosus op næst al- gengast (5,7%) og síðan primum op á milli gátta (3,3%). Hjartalínurit og röntgenmynd af hjarta og lungum er hjálpleg við greiningu og ákvarðanatöku um hvort aðgerðar sé þörf. Þó eru sjúklingar sem hafa eðlilegt hjartalínurit og/eða eðlilega lungnamynd en þurfa þó að gangast undir aðgerð. Þannig er það því óm- skoðunin sem mestu máli skiptir við greiningu og frekari ákvarðanatöku. Tuttugu og sjö börn gengust undir aðgerð, þar af voru 15 á aldrinum þriggja mánaða til eins og hálfs árs. Ástæður aðgerðar hjá yngri börnunum voru hjartabilun, vanþrif og tíðar öndunarfærasýkingar. Hin börnin 12 voru alveg einkennalaus og gengust undir val- bundna aðgerð þriggja ára eða eldri. Áhætta við aðgerð er lítil að okkar mati, ekkert barn fékk alvarlegan eða varanlegan fylgikvilla og ekkert barn lést vegna aðgerðar. Eina forsend- an fyrir því að bíða með aðgerð fram til þriggja eða fjögurra ára aldurs, er að sjá hvort opið lokist af sjálfu sér. Þannig mætti færa gild rök fyrir því að ef smábarn greinist með mjög stórt op (yfir 8 mm) ætti að loka því sem fyrst með skurðaðgerð fremur en að bíða þess að opið lokist. Þá er rétt að benda á að vanþrif og endurteknar öndunarfærasýkingar geta verið einu einkennin sem fylgja opi á milli gátta. Þannig þarf að hafa op á milli gátta í huga við mismunagreiningu hjá þeim sjúklingahópi, enda eru óhljóðin sem fylgja sjúkdómnum oft lítilfjörleg og oft talin saklaus rennslishljóð. Sjö börn greindust með gúl á gáttaskilum. Að okkar mati er hér um að ræða góðkynja fyrirbæri hjá börnunum sem hefur tilhneigingu til að minnka og jafnvel hverfa er barnið stækk- ar. I okkar rannsókn lokaðist opið hjá 37% sjúklinganna. Þetta er heldur lægra hlutfall en í rannsókn Radzic en mismunurinn liggur í því að við miðum við 4 mm lágmarksstærð en í rannsókn Radzic voru öll op tekin með. Sú rannsókn sýndi hins vegar á sannfærandi hátt fram á að 3 mm op og minni lokast nánast alltaf fyrir 18 mánaða aldur. Þegar fyrirburahópurinn er skoðaður hefði mátt ætla að op á milli gátta væri þroskatengt og því ekki náðst að lokast á fullnægjandi hátt eftir fæðinguna. Þá hefðum við búist við að kynjahlutfall væri þannig að jafn margar stúlk- ur og drengir væru í fyrirburahópnum. Hins vegar sýnir sig að kynjahlutfall er mun nær því sem er fyrir hópinn í heild eða stúlkur/drengir 3,5:1 (hópurinn í heild 2,8:1). Hlutfall fyrirbur- anna er einnig nokkuð hátt sem bendir til auk- innar hættu á opi á milli gátta hjá börnum sem fædd eru fyrir tímann. Hjartabilun er fremu fátíður fylgikvilli hjá börnum með op á milli gátta jafnvel þótt um stórt op sé að ræða. Þau svara meðferð að jafnaði vel og lýst hefur verið sjálfkrafa lokun hjá barni með sjúkdóminn sem í byrjun var í hjartabilun. í okkar rannsókn var eitt barn með alvarlega hjartabilun og svaraði það ekki lyfjameðferð og gekkst undir aðgerð tveggja mánaða gamalt. Það er einnig athyglisvert hversu stór hópur barnanna hafa ýmsa aðra meðfædda galla, litn- ingagalla og aðra langvinna sjúkdóma og þegar dánarmein sjúklinganna eru skoðuð kemur í ljós að ekkert barnanna hefur látist vegna hjartasjúkdómsins heldur voru þar aðrir alvar- legir sjúkdómar og fæðingargallar. Af 83 eftirlifandi sjúklingum hafa 78 (94%) skilað sér í eftirlit á réttum tíma. Haft var samband við fjóra sjúklinga sem ekki höfðu komið til skoðunar þannig að upplýsingar um afdrif fengust um alla utan einn sjúkling sem ekki hefur hafst upp á. Áhætta við skurðaðgerð er fremur lítil sem kemur fram í að ekkert barn hefur látist og fylgikvillar eftir aðgerð eru fátíðir og að jafnaði auðleysanlegir. Greining og meðferð ops á milli gátta á barnsaldri skiptir miklu máli þar sem lagfæring á unga aldri kemur í veg fyrir marga þeirra fylgikvilla, sem stórum og víðum hægri gátt og slegli fylgja, svo sem úthaldsleysi, slappleika og hjartsláttartruflanir. Einnig er ómrann- sóknin auðveldari hjá börnunum en oft er nán- ast ómögulegt að skoða gáttaskilin hjá full- orðnum með hefðbundinni ómskoðun og því þarf ómskoðun um vélinda að koma til sem er töluvert meira inngrip. Þannig eru langtíma- horfur góðar þegar þessi galli er lagfærður á unga aldri. Þakkir Þessi rannsókn var studd af Vísindasjóði Landspítalans sem veitti fjárhagslega aðstoð. Ómsjáin sem allir sjúklingarnir voru skoðað- ir með, var gefin Barnaspítala Hringsins af Kvenfélaginu Hringnum.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.