Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1996, Side 66

Læknablaðið - 15.03.1996, Side 66
252 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 SJÚKRAHÚS REYKJAVÍ KU R Augndeild Deildarlæknar Staða deildarlæknis á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til umsóknar. Staðan er veitt til tveggja ára og er ætluð lækni í framhaldsnámi í augnlækning- um. Umsókn skulu fylgjagreinargerð um náms- og starfsferil, afrit prófskírteinis og afrit af fræðilegum ritgerðum. Staðan veitist frá 1. júlí næstkomandi eða eftir samkomulagi. Umsókn skal skilað fyrir 1. apríl til Einars Stefánssonar prófessors, göngudeild augndeildar, Öldugötu 17, Reykjavík. Upplýsingar um stöðuna veita Einar Stefánsson prófessor og Jóhannes Kári Kristinsson deildarlæknir á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Staða reynds deildarlæknis á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til umsóknar. Staðan er ætluð lækni með verulega reynslu í augnlækningum. Umsókn skulu fylgja greinargerð um náms- og starfsferil, afrit prófskírteinis og afrit af fræðilegum ritgerðum. Staðan veitist frá 1. júlí næstkomandi, eða eftir samkomulagi. Umsókn skal skilað fyrir 1. apríl til Einars Stefánssonar prófessors, göngudeild augndeildar, Öldugötu 17, Reykjavík. Upplýsingar um stöðuna veitir Einar Stefánsson prófessor. Rannsóknarmaður Staða rannsóknarmanns við augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til um- sóknar. Rannsóknarmaðurinn mun starfa við vísindarannsóknir á sviði augn- lækninga undir stjórn og í samstarfi við Einar Stefánsson prófessor og aðra sérfræðinga deildarinnar. Umsækjandi skal hafa háskólapróf, gjarnan í raun- grein eða heilbrigðisgrein. Þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og reynsla af rannsóknarstörfum er mjög æskileg. Rannsóknarmaðurinn þarf að vera atorku- samur og geta starfað sjálfstætt. Til greina kemur að staðan tengist rannsókn- artengdu framhaldsnámi. Umsókn skal fylgja greinargerð um náms- og starfsferil, afrit af prófskírteinum og fræðilegum ritgerðum. Nánari upplýsingar veitir EinarStefánsson prófessor á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Öldugötu 17, Reykjavík, sími 551 8181, bréfsími 562 5488, og skal skila umsóknum til hans fyrir 1. apríl næstkomandi. Staðan veitist frá 1. september næstkomandi eða eftir samkomulagi.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.