Læknablaðið - 15.03.1996, Qupperneq 66
252
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍ KU R
Augndeild
Deildarlæknar
Staða deildarlæknis á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til umsóknar.
Staðan er veitt til tveggja ára og er ætluð lækni í framhaldsnámi í augnlækning-
um. Umsókn skulu fylgjagreinargerð um náms- og starfsferil, afrit prófskírteinis
og afrit af fræðilegum ritgerðum. Staðan veitist frá 1. júlí næstkomandi eða eftir
samkomulagi.
Umsókn skal skilað fyrir 1. apríl til Einars Stefánssonar prófessors, göngudeild
augndeildar, Öldugötu 17, Reykjavík. Upplýsingar um stöðuna veita Einar
Stefánsson prófessor og Jóhannes Kári Kristinsson deildarlæknir á augndeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Staða reynds deildarlæknis á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til
umsóknar. Staðan er ætluð lækni með verulega reynslu í augnlækningum.
Umsókn skulu fylgja greinargerð um náms- og starfsferil, afrit prófskírteinis og
afrit af fræðilegum ritgerðum. Staðan veitist frá 1. júlí næstkomandi, eða eftir
samkomulagi.
Umsókn skal skilað fyrir 1. apríl til Einars Stefánssonar prófessors, göngudeild
augndeildar, Öldugötu 17, Reykjavík. Upplýsingar um stöðuna veitir Einar
Stefánsson prófessor.
Rannsóknarmaður
Staða rannsóknarmanns við augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til um-
sóknar. Rannsóknarmaðurinn mun starfa við vísindarannsóknir á sviði augn-
lækninga undir stjórn og í samstarfi við Einar Stefánsson prófessor og aðra
sérfræðinga deildarinnar. Umsækjandi skal hafa háskólapróf, gjarnan í raun-
grein eða heilbrigðisgrein. Þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og reynsla af
rannsóknarstörfum er mjög æskileg. Rannsóknarmaðurinn þarf að vera atorku-
samur og geta starfað sjálfstætt. Til greina kemur að staðan tengist rannsókn-
artengdu framhaldsnámi.
Umsókn skal fylgja greinargerð um náms- og starfsferil, afrit af prófskírteinum
og fræðilegum ritgerðum. Nánari upplýsingar veitir EinarStefánsson prófessor
á augndeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Öldugötu 17, Reykjavík, sími 551 8181,
bréfsími 562 5488, og skal skila umsóknum til hans fyrir 1. apríl næstkomandi.
Staðan veitist frá 1. september næstkomandi eða eftir samkomulagi.