Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 25

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 379 Inngangur Útbreiddir rauðir úlfar (lupus erythematos- us diseminatus) er langvinnur sjálfnæmissjúk- dómur sem einkennist af bólgu og skaða í mörgum líffærakerfum. Tölur um algengi frá Bandaríkjunum og Norðurlöndunum hafa verið á bilinu 28-51 á hverja 100.000 íbúa (1). í nýlegri faraldsfræðilegri rannsókn á rauðum úlfum á Islandi var sjúkdómurinn mun algeng- ari hjá konum og reyndist algengi 35,9 á hverja 100.000 íbúa (1). Einkenni frá taugakerfi geta verið áberandi, svo sem krampar og heilablóð- fall eða torgreindari, svo sem vitræn skerðing. Greining rauðra úlfa í taugakerfi byggist á klín- ísku mati, studdu af niðurstöðum ósérhæfðra rannsókna og útilokun annarra hugsanlegra skýringa, einkum óbeinna afleiðinga sjúk- dómsins sjálfs og meðferðar við honum. Tölur um tíðni einkenna frá taugakerfi hjá sjúkling- um með rauða úlfa hafa verið á bilinu 13-83% (2-12). Þessa breytilegu tíðni má að minnsta kosti að hluta rekja til breytilegra aðferða, einkum við greiningu. í þessari afturskyggnu rannsókn eru könnuð áhrif rauðra úlfa á taugakerfið hjá óvöldum hópi sjúklinga þar sem ströngum skilmerkjum var beitt við greiningu og flokkun rauðra úlfa. Það að sjúklingarnir eru óvaldir í þessari rann- sókn ætti að gefa réttari mynd af raunverulegri tíðni einkenna frá taugakerfi hjá sjúklingum með rauða úlfa en í flestum fyrri rannsóknum. Efniviður og aðferðir Þýði rannsóknarinnar voru allir skráðir sjúklingar með rauða úlfa á íslandi árið 1990, sem verið höfðu í meðferð utan sem innan sjúkrahúsa og uppfylltu að minnsta kosti fjögur af alþjóðlega viðurkenndum greiningarskil- merkjum fyrir útbreidda rauða úlfa (ARA skil- merki frá 1982) (13). Þegar rannsóknin var gerð var 91 sjúklingur með rauða úlfa skráður á landinu. Tuttugu og sex þeirra annað hvort gátu eða vildu ekki taka þátt í rannsókninni. í rannsóknarhópnum voru því 65 sjúklingar, 62 konur og þrír karlar. Meðalaldur sjúklinganna var 49,3 ár (aldursbil 20-80 ár). Rannsóknin fór fram veturinn og vorið 1990-1991. Samkvæmt fyrirfram ákveðinni rannsóknaráætlun var aflað upplýsinga um einkenni frá taugakerfinu, sem sjúklingar höfðu eða höfðu einhvern tíma haft. Rann- sóknin skiptist í tvennt. Fyrri hlutinn fólst í að kanna sjúkraskrár, bæði innan og utan sjúkra- húsa og í viðtali og skoðun sérfræðings í tauga- sjúkdómum. Skráð voru öll einkenni frá tauga- kerfinu, hvort sem þau höfðu komið fram fyrir eða eftir greiningu rauðra úlfa. Þar sem svið einkenna í taugakerfi sem fram geta komið í rauðum úlfum er mjög breitt og ekki er til nein skilgreining á þeim sem víðtæk samstaða er um, var litið á einkenni frá taugakerfi hjá sjúk- lingum með rauða úlfa sem þátt í sjúkdómnum ef ekki fannst önnur skýring. Greining mígren- is og spennuhöfuðverkjar byggðist á alþjóðlega viðurkenndum skilmerkjum (14). I síðari hluta rannsóknarinnar fór fram mat á geðrænum einkennum á æviskeiðinu með kerf- isbundnu greiningarviðtali fyrir geðræn ein- kenni (15) í íslenskri þýðingu (16), sem upp- runalega var þróað til notkunar í geðfaralds- fræðilegum rannsóknum. Notuð var tölvufærð útgáfa (17) í íslenskri þýðingu (18). Þessi útgáfa er jafngild hefðbundnu útgáfunni, en hefur þá kosti að hlaupa sjálfkrafa milli kafla og spurn- inga eftir eðli svara og að vinna sjálfkrafa úr sjúkdómseinkennum og greiningum í lok við- tals (19). Með notkun þessa greiningarviðtals er unnt að meta tilvist 43 algengustu greining- anna í greiningarkerfi bandarísku geðlækna- samtakanna (DSM-III) (20). Áreiðanleiki greiningarviðtalsins við að ákvarða greiningar sanikvæmt ofangreindu greiningarkerfi (21) hefur reynst mikill (22). Við samanburð á því að ófaglærðir legðu kerfisbundna greiningar- viðtalið fyrir sjúklinga og klínísku mati mátti fremur rekja ósamræmi til mismunandi svara svarenda en til mistaka hjá spyrli (23). Til samanburðar var notaður hópur 862 ís- lendinga sem nýlega hafði svarað greiningar- viðtalinu í geðfaraldsfræðilegri könnun (24). Rannsóknarþýðið þar var helmingur íslend- inga sem fæddist árið 1931 og var búsettur á Islandi 1. desember 1986. Af þeim 1195 sem valdir voru með tilviljunarúrtaki uppfylltu 90 ekki kröfur rannsóknarinnar og 18 létust áður en til viðtals kom. Þannig komu 1087 einstak- lingar til greina og reyndist þátttaka því rúm- lega 79%. Báðir hóparnir komu bæði frá þétt- býli og strjálbýli. Þar sem meðalaldur saman- burðarhópsins er 10 árum hærri en hópsins með rauða úlfa ætti að vera heldur hærri ævi- skeiðstíðni geðrænna vandamála hjá saman- burðarhópnum. Rannsóknarhóparnir voru bornir saman með kí-kvaðrat prófum og Fishers prófi (25).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.