Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 381 hafa mælst hjá honum mótefni gegn fosfórlíp- íðum. Hjá nokkrum sjúklinganna komu fyrstu einkenni rauðra úlfa frá taugakerfinu, meðal annars hjá sjúklingi sem fékk fjöltauga- og rótakvilla, með kraftskerðingu í ganglimum og öðrum sjúklingi sem fékk sjóntruflanir vegna æðabólgu í sjónhimnu. Þar sem einungis þrír karlar voru í hópnum með rauða úlfa slepptum við körlum í saman- burði þessa hóps og samanburðarhópsins (tafla II). í greiningarviðtalinu fyrir geðræn einkenni kom ekki fram tölfræðilega marktækur munur á algengi geðrænna einkenna hjá konum með rauða úlfa og konum í samanburðarhópnum. Hjá konum í hópnum með rauða úlfa var meðalfjöldi geðrænna greininga hjá einstak- lingi 2,5, en hjá konum í samanburðarhópnum 1,2. Algengasta geðræna greiningin hjá konum með rauða úlfa var einföld fælni (n=16). næst komu félagsfælni og víðáttufælni án hræðslu- kasta (n=ll) og síðan kvíði (n=10), en aðrar greiningar komu fram hjá innan við 10% sjúk- linganna. Það var ekki tölfræðilega marktækur munur milli hópanna nema hvað varðar kvíða, fælni, vægt þunglyndi og áfengismisnotkun. Víðáttufælni án hræðslukasta og félagsfælni voru mun algengari í hópnum með rauða úlfa en samanburðarhópnum. Umræða í hópi 65 sjúklinga með rauða úlfa höfðu 71% (46 sjúklingar) haft eitt eða fleiri einkenni frá taugakerfinu. í fyrri rannsóknum hefur tíðni þessara einkenna hjá sjúklingum með rauða úlfa verið talsvert breytileg. Futrell og félagar greindu einkenni frá taugakerfi hjá 69% sjúklinga sinna með rauða úlfa (11), Feinglass og félagar hjá 51% (3), Gibson og Myers hjá 51% sjúklinga (4), Grigor og félagar hjá 50% (6) og Abel og félagar hjá 43% sjúk- linga (5). Omdal og félagar greindu hins vegar einkenni frá taugakerfi hjá flestum sjúklinga sinna með rauða úlfa (83%) (2), en Sibley og félagar einungis hjá 18% sjúklinga með rauða úlfa (12). Það torveldar í mörgum tilvikum samanburð niðurstaðna einstakra rannsókna hve mismunandi aðferðum hefur verið beitt við val á sjúklingum og að ekki hafa verið notaðar staðlaðar aðferðir við greiningu tauga- fræðilegra og geðrænna einkenna frá tauga- kerfinu (1,10,26). Hætta er á ofmati á alvarleg- um einkennum sjúkdómsins í rannsóknum sem byggjast alfarið á sjúklingum innan sjúkrahúsa (1). Sumar rannsóknir beinast bæði að ein- kennum frá miðtaugakefi og úttaugakerfi (3,5,6,11), en aðrar aðeins að einkennum frá miðtaugakerfi (2,4,12) eða undanskilja ákveð- in einkenni, svo sem persónuleikabreytingar, geðdeyfð, höfuðverk og hugsýki (12). Næmari greiningarpróf, svo sem mæling kjarnamótefna og aukin meðvitund um rauða úlfa hefur orðið til þess að fleiri væg tilfelli sjúkdómsins hafa verið greind og meðhöndluð utan sjúkrahúsa á síðari árum (1,26). Þetta torveldar enn saman- burð við eldri rannsóknir. Auk þess getur verið mjög erfitt að greina á milli hvort einkenni eru bein afleiðing rauðra úlfa eða óbein afleiðing sjúkdómsins, svo sem vegna efnaskiptatruflun- ar, sýkingar eða lyfjameðferðar. Geðræn ein- kenni hjá sjúklingum með rauða úlfa hafa til dæmis reynst geta verið afleiðing félagslegs álags fremur en sjúkdómsins sem slíks (27). Það að þrír af 65 sjúklingum með rauða úlfa (4,6%) hafi flogaveiki bendir til að þetta ein- kenni sé algengara í rauðum úlfum en almennt gerist, en algengi flogaveiki í þjóðfélaginu hef- ur greinst um eða innan við 0,6% (28,29). Þessir þrír sjúklingar hafa mótefni gegn tví- strengja DNA, sem ekki tengist rauðum úlfum sem framkallaðir eru af lyfjum. Tíðni í þessari rannsókn sem byggir á heilli þjóð, er heldur lægri en í rannsóknum sem byggja á sjúklingum innan sjúkrahúsa frá Mackworth-Young og Hughes (30) og Omdal (2) og mun lægri en í mjög völdum sjúklingahópi Feinglass og félaga (3). Rykkjabrettur eru sjaldgæfar í rauðum úlf- um, en hafa verið tengdar mótefnum gegn fos- fórlípíðum (3,31) og koma gjarnan fram snemma á sjúkdómsferlinu (31). í rannsókn- inni fékk einn af 65 sjúklingum með rauða úlfa rykkjabrettur og voru þær fyrstu einkenni rauðra úlfa. Styrkur mótefna gegn fosfórlípíð- um var hár. Við greindum mígreni hjá 12 af 65 sjúkling- um með rauða úlfa (18,5%). Þessi tíðni er ekki hærri en ævialgengi mígrenis samkvæmt ný- legri danskri rannsókn með handahófsúrtaki (32), sé tekið með í reikninginn að mígreni er algengara hjá konum en körlum og að rauðir úlfar eru mun algengari hjá konum en körlum. Höfuðverkur af spennugerð hjá 22 af 65 sjúk- lingum með rauða úlfa (33,9%) er lægri tíðni en í rannsókn með handahófsúrtaki (32). í rannsókninni reyndist heildarhlutfall
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.