Læknablaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
387
Langvinn berkjubólga hjá fimmtugum
og áttræðum íslenskum körlum
Algengi og lífsgæði
Sveinn Magnússon1,21, Þórarinn Gíslason3’
Chronic bronchitis among 50 and 80 years old malcs
in Iceland. Prevalence and qualitv of life
Magnússon S, Gíslason Þ
Læknablaðið 1996; 82: 387-91
Objective: The mortality from chronic bronchitis has
been increasing in Iceland during the last decades.
Little is however known about the prevalence of this
disease and the objective of this study was to find the
prevalence of chronic bronchitis in Iceland.
Material and methods: In this study a postal ques-
tionnaire was sent to all Icelandic males born in the
years 1913 (N=388) and 1943 (N=1297) who were
alive on the lst November 1993, asking about several
physical symptoms, including symptoms of chronic
bronchitis. The response rate was 69.7%.
Results: Altogether 7.1% of 50 years old males and
16.7% of 80 years old males had a history of daily
sputum expectoration for at least three months dur-
ing the last two years. These individuals with chronic
bronchitis had a higher prevalence of other respira-
tory symptoms, such as coughing, wheezing or whis-
tling. History of dyspnea was much higher among
those with symptoms of chronic bronchitis. They
also complained more often of sleep disturbances
and found themselves more stressed than those
without symptoms of chronic bronchitis.
Conclusion: Our study indicates that chronic bron-
chitis is a frequent illness among Icelandic males.
'’Heilsugæslan í Garðabæ, 2,heimilislækningadeild háskól-
ans í Uppsölum, Svíþjóð, 3,lungnadeild Vífilsstaðaspítala.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sveinn Magnússon, Heilsugæsl-
unni í Garðabæ, Garðaflöt 16-18, 210 Garðabær.
Lykilorð: Langvinn berkjubólga, karlar, algengi, svefntrufl-
anir, lífsgæði.
Key words: Chronic bronchitis, men, prevalence, sleep
disturbances, quality of life.
Men with chronic bronchitis frequently have a de-
creased quality of life, difficulties to move and fre-
quently sleep complaints.
Ágrip
Tilgangur: Dánartíðni vegna langvinnrar
berkjubólgu hefur farið vaxandi á íslandi und-
anfarna áratugi. Lítið er aftur á móti vitað um
algengi þessa sjúkdómsástands og tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna það.
Efniviður og aðferðir: í þessari rannsókn var
öllum íslenskum karlmönnum sem fæddir voru
árin 1913 (N=388) og 1943 (N=1297) og voru
lifandi þann 1. nóvember 1993 sendar í pósti
spurningar um ýmis líkamleg einkenni, þar á
meðal einkenni um langvinna berkjubólgu.
Svörun var 69,7%.
Niðurstöður: Alls höfðu 7,1% 50 ára karla
og 16,7% áttræðra sögu um daglegan slím-
uppgang í að minnsta kosti þrjá mánuði síðast-
liðin tvö ár. Einstaklingar með langvinna
berkjubólgu voru mun oftar með sögu um önn-
ur öndunarfæraeinkenni svo sem hósta, ýl, píp
og surg. Saga um mæði var mun algengari hjá
körlum með einkenni um langvinna berkju-
bólgu, 33,7% þeirra mæddust við gang á jafn-
sléttu, en aðeins 7,1% þeirra sem voru án ein-
kenna. Þeir sem höfðu einkenni um langvinna
berkjubólgu áttu einnig mun oftar í erfiðleik-
um með svefn; áttu oftar erfitt með að sofna,
vöknuðu oftar, voru lítt úthvfldir að morgni og
oftar syfjaðir að degi til. Ennfremur lýstu þeir
oftar streitueinkennum heldur en hinir sem
ekki höfðu langvinna berkjubólgu.
Ályktun: Rannsóknin bendir til þess, að lang-
vinn berkjubólga sé verulega algengt sjúk-
dómsástand meðal íslenskra karla. Sterk tengsl