Læknablaðið - 15.05.1996, Side 28
Léttir af
þungu fargi
Framleióandi: Lyfjaverslun íslands hf.,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Nafn sérlyfs: Fluoxin. HYLKI; N 06 A B 03
Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð,
samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg eöa 20 mg.
Eiginleikar: Flúoxetín er geðdeyfðarlyf, sem er talið
blokka endurupptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda I heila.
Flúoxetín minnkar matarlyst. Lyfiö hefur lltil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boöefni í heila.
Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar.
Aðalumbrotsefni flúoxetlns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-
9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi, að mestu
sem umbrotsefni. Vegna þess hve helmingunartími lyfsins er langur koma breytingar á skammtastærðum
ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geödeyfö (unipolar og bipolar). Alvarlegt,
langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Matgræðgiköst (bulimia nervosa). Þráhyggjusýki (obsessive-
compulsive disorder). Frábendingar: Meöganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber aö gæta viö
flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Aukaverkanir: ógleöi,
óróleiki, minnkaður svefn, höfuðverkur, skjálfti, kvíöi, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi meö
útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfiö og
umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir aö töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota
MAO-hemjandi lyf fyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur frá því aö töku flúoxetlns er hætt. Ekki ætti að nota tryptófan meö
þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af flúoxetíni og þarf að fylgjast vel með litlummagni í
blóði. Athugió: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist ( byrjun meöferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa aö vera
undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Skammtastæröir handa fullorónum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er aö taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki
fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki (meira en 80 mg á dag. Viö matgræögiköstum: Skammtar
eru oftast 40 - 60 mg á dag. Viö þráhyggjusýki: Upphafsskammtur er 20 mg á dag. Ef ekki næst viðunandi árangur, má auka
skammtinn eftir 3-4 vikur. Hærri skammta en 20 mg á að gefa (tveimur skömmtum á dag. Hámarksskammtur er 80 mg
daglega. Við mikið skerta lifrar- eöa nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft aö gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Útlit: 10 mg hylki: Eru græn og Ijósblá og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigóttn (E 132) og títantvíoxíö (E 171).
20 mg hylki: Eru v(nrauð og græn og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132), títantvíoxíð (E 171) og
erýtrósín (E 127). Pakkningar: Hylki 10 mg: 30 stk./100 stk. Hylki 20 mg: 30 stk./100 stk.
Geðdeyfðarlyf
með eiginleika
frumlyfs á verði
samheitalyfs
;luoxin
flúoxetín