Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1996, Page 38

Læknablaðið - 15.05.1996, Page 38
390 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Table VI. Sleep disturbances (%). Chronic bronchitis Others p-value Difficulties falling asleep 19.2 8.4 <0.0001 Difficulties maintaining sleep 38.8 21.4 <0.0001 Early morning awakening 27.6 18.7 <0.01 Not refreshed in the morning 19.2 9.1 <0.01 Daytime sleepiness 36.4 19.6 <0.0001 (tafla V). Alls telja 12,0% þeirra sem eru með langvinna berkjubólgu sig oft eða alltaf stress- aða, en aðeins 4,0% hinna (p<0,0001). Svefntruflanir af ýmsum toga eru yfirleitt tvöfalt algengari hjá einstaklingum með lang- vinna berkjubólgu en öðrum (tafla VI). Þetta á við um svefnleysi af öllum gerðum; erfiðleika að sofna, vakna oft og of snemma. Einnig eru einstaklingar með langvinna berkjubólgu sjaldnar úthvíldir að morgni og oftar syfjaðir að degi til. Umræða Rannsókn okkar leiðir í ljós, að 7,1% 50 ára og 16,7% 80 ára íslenskra karla lýsa einkenn- um um langvinna berkjubólgu samkvæmt skil- merkjum Fletcher og Pride. Svörun í könnuninni er viðunandi að okkar mati. Mjög fáir neituðu alfarið þátttöku og eykur það líkur á því að niðurstöður spegli raunverulegt ástand 50 og 80 ára karla. Líklega er þó heldur um vanmat að ræða meðal átt- ræðra karla þar sem þeir er geta ekki tekið þátt vegna veikinda (tafla I) eru hlutfallslega fleiri. Virðist tíðni langvinnrar berkjubólgu á íslandi vera heldur hærri en í Noregi (3^t%), Dan- mörku (4-6%) og Svíþjóð (2-4%) en lægri en í Finnlandi (10-15%) (26). Niðurstaða okkar er sú, að langvinn berkju- bólga sé meðal algengustu langvinnra sjúk- dóma, að minnsta kosti meðal karla á ofan- greindum aldri. Lífsgæði sjúklinga með lang- vinna berkjubólgu eru verulega skert, bæði vegna minnkaðrar hreyfigetu og svefntruflana. Einkenni um mæði eru til dæmis mun algengari en hjá þeim sem ekki uppfylla skilmerki lang- vinnrar berkjubólgu og hefur þriðjungur ein- staklinga með langvinna berkjubólgu sögu um mæði við gang á jafnsléttu og tæplega fimmt- ungur við að þvo sér. Há tíðni svefntruflana stuðlar að skertum lífsgæðum, meðal annars dagsyfju. Slík tengsl eru vel þekkt við ýmsa aðra líkamlega sjúkdóma (28). Líklegt er að öndunarfæraeinkenni af ýmsum toga trufli svefnmunstrið hjá sjúklingum með langvinna berkjubólgu, en einnig er hugsanlegt að lyfja- meðferð, til dæmis teófýllamín, ráði hér nokkru um (29). Mengun er þekktur orsakavaldur langvinnr- ar berkjubólgu, einkum hefur þetta verið rann- sakað á ýmsum iðnaðarsvæðum Vesturlanda. Miðað við þær upplýsingar, sem til eru um loftmengun á Islandi verður að telja að loft- mengun sé ekki algeng orsök langvinnrar berkjubólgu hér á landi vegna hreins lofts bæði úti og í hýbýlum (26). Tengsl reykinga og langvinnrar berkjubólgu eru vel þekkt (27). Vitað er að reykingar eru algengasta orsök langvinnrar berkjubólgu og koma slík tengsl glögglega fram í okkar könnun. Höfundar telja mikilvægt að læknar veiti einkennum um langvinna berkjubólgu athygli, ekki síst vegna sterkra tengsla við minnkuð lífsgæði og háa dánartíðni (23). Hefðbundin lyfjameðferð hefur sáralítil eða engin áhrif á sjúkdómsgang langvinnrar berkjubólgu. Áhrif reykinga eru þar afgerandi og eingöngu með lækkandi tíðni reykinga dregur úr sjúkdóma- og dánartíðni. Langvinn berkjubólga er í raun sjúkdómur sem koma má að mestu í veg fyrir og áhrifamiklar forvarnir ættu nánast að geta útrýmt. Rannsókn okkar nær ekki til kvenna en rannsóknir hafa sýnt, að tíðni langvinnrar berkjubólgu hjá þeim virðist háð sömu orsaka- völdum og hjá körlum. Því miður virðast reyk- ingar kvenna ekki hafa minnkað eins og hjá körlum hér á landi og má því búast við að langvinn berkjubólga muni hafa neikvæð áhrif á líf og heilsu íslenskra kvenna á komandi ár- um. Þakkir Könnunin var gerð með styrk frá Vísinda- sjóði Félags íslenskra heimilislækna og Styrkt- arsjóði Odds Ólafssonar. Einnig hafa heimilis- lækningadeildir Háskóla Islands og háskólans í Uppsölum í Svíþjóð veitt aðstoð við fram-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.