Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 46

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 46
394 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 vegna blóð-heila-hemils, sem samanstendur af þétt- tengdum æðaþelsfrumum sem síðan eru þaktar með glia frumum. Lyf sem komast frá blóði yfir í heila hafa því ferðast í gegnum bæði frumulögin, en mörg lyf hafa ekki þá eiginleika sem til þarf. Lyf sem eiga að komast yfir í heila- og mænuvökva þurfa jafn- framt að komast yfir svokallaðan blóð-mænuvökva þröskuld sem samanstendur af ependyma frumum í plexus choroideus, en þær virka á svipaðan hátt og þekjufrumur í nýrnagöngum. Lyktarsvæðið hefur verið talið til vandræða að ýmsu leyti, vegna þess að örverur geta komist yfir til heila frá því. Ymsar örverur er sýkja taugakerfið eða valda heilahimnubólgu berast með úða á lyktar- svæðið og komast þaðan með lyktarþráðum til heila. Einnig er vitað að sníklar geta nýtt sér þessa leið yfir í heila og valdið lífshættulegum sjúkdómum eins og ferskvatnssníkillinn Naegleria fowleri sem veldur dauða um það bil 72 klukkustundum eftir að ein- kenni smitunar koma fram. Rannsóknir okkar hafa stutt þá tilgátu að hægt sé að koma lyfjum frá lyktarsvæði til heila. Það er því mikilvægt að kanna í hve miklu magni hægt sé að stjórna lyfjagjöf til heilans með þessari aðferð, tii dæmis með tilliti til krabbameinslyfjameðferðar. Ef þessi lyfjaleið reynist raunhæf, er um að ræða nýjar dyr að heilanum sem ekki hafa verið nýttar áður. Verkefnið hefur því bæði hagnýtt og fræðilegt gildi. 6. Virkni gelatínasa og gelatínasahindra (TIMP) í brjóstakrabbameini Þórarinn Guðjónsson, Ingibjörg Pétursdóttir, Mar- iska Tuinman, Helga M. Ögmundsdóttir Rannsóknastofa Krabbameinsfélags íslands í sam- einda- og frumulíffrœði Gelatínasar A og B (metallóprótínasar — MMP2 og MMP9) brjóta niður kollagen IV sem er í grunn- himnum og eru taldir skipta máli við ífarandi æxlis- vöxt og myndun meinvarpa. f vefjum finnast einnig hindrar þessara ensíma, tissue inhibitors ofmetallo- proteinases, TIMP, og eru af þeim þrjár gerðir. Við rannsökuðum virkni þessara ensíma og hindra í sýnapörum úr brjóstakrabbameinsæxlum og eðlileg- um vef úr sama brjósti frá 49 sjúklingum með zýmógram og öfugri zýmógramaðferð. Notaður var duftaður vefur og flot af vefjabitunum; ekki var unnt að gera allar mælingar á öllum sýnunum. Magn var ákvarðað sjónrænt og gefin einkunn 0, 1, 2 eða 3. Gelatínasi A (mólþ. 72 þús.) var algengur í illkynja og eðlilegum brjóstvef, fannst í 63-88% af sýnum, mest í floti af illkynja vef og í báðum tilvikum var minna í duftuðum vef, en munur ekki marktækur. Virkjaða formið af þessu ensími (mólþ. 62 þús.) fannst marktækt oftar í duftuðum vef en floti bæði í eðlilegum vef (48% samanborið við 11%) og æxlis- vef (82% samanborið við 31%) og munurinn á duft- uðum æxlisvef og eðilegum vef er marktækur, p=0,01. Gelatínasi B (mólþ. 92 þús.) fannst sjaldnar (í 19-37% sýna) og enginn munur milli duftaðra sýna og flots eða æxlisvefs og illkynja vefs. TIMP virkni fannst í 81% duftaðra sýna úr æxlisvef en 64% úr eðlilegum vef og aðeins hærra hlutfalli af flotum. Við samanburð á sýnapörum úr sama brjósti kom í ljós að algengast var að virknin væri svipuð nema fyrir virkjaða formið af gelatínasa A mælt í vefja- dufti, en þar gaf parað t-próf marktækan mun með p=0,01. Sama tilhneiging sást fyrir TIMP virkni en hún var mæld í færri sýnum. Virkni gelatínasa lækk- aði nokkuð með aldri þannig að fyrir tíðahvörf var það mikið af virkjaða forminu af gelatínasa A (mólþ. 62 þús.) í vefjadufti eðlilegra sýna að hún var að vísu minni, en ekki marktækt minni, en í illkynja vef úr sama brjósti. Engin tengsl sáust við eitlamein- vörp en stærri æxli losuðu meira af báðum ensímum í flot, miðað við sömu vigt. Virkur og endurkominn sjúkdómur (níu sjúklingar) sýndi marktæka fylgni við meðal og mikla virkni af virkjuðum gelatínasa A (mólþ.62 þús.) svo og litla eða enga TIMP virkni í vefjadufti af æxlissýnum. 7. Breytt tjáning á E-cadherín í brjóstakrabbameinsæxlum. Orsakir og afleiðingar Kristján Skúli Asgeirsson", Jón Gunnlaugur Jónas- son2>, Kristrún ÓlafsdóttirHelga M. Ögmunds- dóttir11 "Rannsóknastofa Krabbameinsfélags íslands í sam- einda- og frumulíffrœði, 2)Rannsóknastofa Háskóla íslands í meinafrœði. ífarandi vöxtur krabbameinsfrumna er háður frumusamloðun. In vivo og in vitro tilraunir hafa sýnt fram á að minnkuð eða trufluð tjáning E-cad- heríns í frumuhimnu krabbameinsfrumna geti skipt máli við íferð þeirra, en E-cadherín er Ca2+ háð bindisameind tjáð á frumuhimnunni. Stökkbreyt- ingar í E-cadherín geninu hafa fundist í maga- krabbameini og breytingar hafa sést í catenín-sam- eindum í ristilkrabbameini, en sameindir þessar binda E-cadherín við frumugrindina. Slíkar breyt- ingar valda ífarandi vexti krabbameina og auka líkur á myndun meinvarpa. Rannsóknir okkar á brjóstakrabbameinsfrumu- línum hafa sýnt að interleukin-6 (IL-6) minnkar frumusamloðun með því að trufla tjáningu á E-cad- heríni. í þessari rannsókn höfum við skoðað E-cad- herín tjáningu í 66 brjóstakrabbameinssýnum með mótefnalitunaraðferð. E-cadherín tjáningin var metin eftir því hversu stór hluti sýnisins sýndi já- kvæða litun svo og eftir styrkleika litunar. Jafnframt þessu notuðum við erfðamark nálægt E-cadherín geninu (16q22.1) til að skoða úrfellingar á þessu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.