Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 50

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 50
398 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Leit var gerð í gögnum Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags fslands að pörum systra sem greinst höfðu með brjóstakrabbamein 60 ára eða yngri. Fjörutíu og fjögur pör voru tekin til rannsókn- ar, þar sem unnt var að bera saman erfðaefni í heilbrigðum vef og æxlisvef. Rannsökuð voru tvö litningasvæði: Fimm erfðamörk í eða nálægt geninu BRCAl á litningi 17q21 og fimm erfðamörk kringum genið BRCA2 á litningi 13ql2.3. Bæði genin eru þekkt að því að hefta frumufjölgun en geta í stökk- breyttri mynd valdið ættlægu krabbameini í brjóst- um og fleiri líffærum. Þá erfist meðfædda stökk- breytingin til allra líkamsfrumna, frá öðru foreldri sjúklingsins, og við það að heilbrigða genið frá hinu foreldrinu skemmist í einhverri frumunni myndast vísir að æxli. Oftast verður þessi síðari breyting með þeim hætti að „heilbrigði“ litningurinn tapar geninu í heilu lagi ásamt nærliggjandi erfðamörkum á stóru svæði. Með samanburði arfgerða í æxli og heilbrigð- um vef er því hægt að lesa setraðir (haplotypes) og gera tengslagreiningu án þess að bera saman stóran hóp fjölskyldumeðlima. Fyrri rannsóknir hafa miðað við fjölskyldur með háa tíðni brjóstakrabbameins, og sýnt fram á um- talsverða áhættu arfbera á að fá krabbamein. I þess- ari rannsókn voru systrapörin valin úr tilviljana- kenndu úrtaki án tillits til frekari ættarsögu krabba- meina. Því er unnt að meta krabbameinsáhættuna nákvæmar, með því að athuga fjölskyldusögu systra- paranna. Sextán pör sýna tengsl við BRCA2 genið og hafa að líkindum erft breytinguna frá sameiginlegum áa. í fjölskyldum þessara systrapara ber meira á krabba- meinum, bæði í brjóstum og öðrum líffærum heldur en í fjölskyldum annarra systrapara. Aðeins eitt systrapar sýnir BRCAl-tengsl og hefur erft stökk- breytingu sem fundist hefur áður í einni stórri brjóstakrabbameinsætt á Islandi. 15. Brjóstakrabbamein í körlum. Erfðafræðileg athugun Steinunn Thorlaciusl>, Guðríður Ólafsdóttir2>, Lauf- ey Tryggvadóttir', Jón Gunnlaugur Jónasson3', Helga M. Ögmundsdóttir", Hrafn Tulinius2), Jórunn E. Eyfjörð" "Rannsóknastofa Krabbameinsfélags íslands í sam- einda- og frumulíffrœði, 2> Krabbameinsskrá Krabbmeinsfélags íslands, "Rannsóknastofa Há- skóla íslands í meinafrœði Brjóstakrabbamein í körlum er sjaldgæfur sjúk- dómur og er aldursstaðlað nýgengi um 0,9/100.000 á fimm ára tímabili. Höfundar athuguðu breytingar í erfðaefni brjóstakrabbameinsæxla úr öllum körlum sem greindust með sjúkdóminn á Islandi á árunum 1955-1995. Markmið rannsóknarinnar er að kanna áhrif erfða á tilurð sjúkdómsins. Orsakir brjósta- krabbameins í körlum eru óþekktar en rannsóknir hafa sýnt aukna tíðni á brjóstakrabbameini í körlum í fjölskyldum þar sem bijóstakrabbamein í konum er algengt. Einnig hefur verið sýnt fram á að ættingjar karla með brjóstakrabbamein eru í aukinni hættu að fá illkynja æxli í brjóst. Breytingar í BRCA2 geninu á litningi 13 eru taldar auka líkur á brjóstakrabbameini í konum og körlum. Tengsl við þetta genasvæði hafa fundist í íslenskum fjölskyldum þar sem brjóstakrabbamein er algengt, þar á meðal í körlum. Sama erfðamynstur finnst í mörgum íslenskum ættum sem bendir til sameigin- legs uppruna breytingarinnar. Breyting í BRCA2 geninu hefur verið staðfest í einni íslenskri fjöl- skyldu þar sem fjórir karlar eru með meinið. Um þriðjungur þeirra karla sem skoðaðir voru hefur erfðamynstrið (haplotype) sem tengist galla í BRCA2 geni í íslenskum fjölskyldum. Ahugavert er að sumir þessara karla hafa litla eða enga fjölskyldu- sögu um krabbamein. Það bendir til að fleiri gen skipti máli við myndun meinsins. 16. BRCA2 genið í ísienskum fjölskyldum með brjósta- krabbamein, mögulegur sameiginlegur uppruni stökkbreytingar og fjölbreytileiki í æxlisgerðum Júlíus Guðmundsson, Guðrún Jóhannesdóttir, Jón Þór Bergþórsson, Aðalgeir Arason, Sigurður Ingv- arsson, Valgarður Egilsson, Rósa Björk Barkardótt- ir Frumulíjfrœðideild Rannsóknastofu Háskóla ís- lands í meinafrœði Talið er að 5-10% allra brjóstakrabbameinstilfella megi rekja til kímlínugalla í genum, sem leiði til aukinnar áhættu á að fá meinið. Sýnt hefur verið fram á að í um það bil 90% allra brjóstakrabba- meinsætta er sjúkdómurinn tengdur við annað hvort, BRCAl- eða BRCA2 genið en galli í þessum genum er einnig talinn valda aukinni hættu á ristil-, blöðruháls- og eggjastokkakrabbameini. Á frumulíffræðideild Rannsóknastofu Háskóla Is- lands í meinafræði hafa átta brjóstakrabbameinsætt- ir verið rannsakaðar með tilliti til tengsla við annað hvort áðurnefndra gena. Sex ættir sýndu tengsl við BRCA2 og ein við BRCAl (það er, sjö af átta (88%) brjóstakrabbameinsættum eru tengdar við annað hvort BRCAl eða BRCA2). Ein ættanna virðist hvorki tengd BRCAl né BRCA2 geninu./ Ættirnar sex, sem tengdar eru við BRCA2 genið, hafa allar einhverjar sameiginlegar samsætur (allele) úr sjúkdómssetröðinni sem bendir til að stökkbreyt- ingin í ættunum sé af sameiginlegum uppruna og þar með sú sama í þeim öllum. Þrátt fyrir þetta er munur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.