Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1996, Qupperneq 62

Læknablaðið - 15.05.1996, Qupperneq 62
408 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Þið munið hann Balint Michael Balint - in memoriam Um þessar mundir eru liðin 100 ár frá fæðingu ungverska geðlæknisins, Michaels Balint, og mun þess verða minnzt með- al annars með hátíðarfundi Int- ernational Balint Federation í Búdapest, 2.-5. maí næstkom- andi. Nafni Balints er víða um lönd haldið á lofti með því að lækna- nemar fá að kynnast því að starfa í Balint hópi í námi sínu, og á mörgum stöðum eru Balint hópar hluti af framhaldsnámi í heimilislækningum, sérstaklega í Bretlandi, Þýzkalandi og fleiri Evrópulöndum, en einnig vest- anhafs, þar sem starfar öflugt Balint félag. Þá eru ótalin þau lönd sem hafa tekið inn í lækna- nám eða heimilislæknanám um- ræðuhópa af ýmsum toga, sem beint og óbeint má rekja til Bal- int fyrirmyndar, þótt þeim séu valin önnur heiti. Til eru al- þjóðasamtök Balint félaga, og brezka félagið gefur út the Journal of the Balint Society. í>á hafa fjölmargar bækur verið gefnar út um Balint vinnu. En hvað er þá Balint hópur? Það er hópur lækna, sem byggir á því að skoða samskipti læknis og sjúklings. Efniviðurinn er vandamál sem verða á vegi hvers heimilislæknis. í hópnum eru átta til 10 heimilislæknar og einn til tveir sem stýra ferðinni. Hópurinn hittist reglulega, segj- um vikulega eða hálfsmánaðar- lega. Það sem fjallað er um eru sjúkratilfelli, sjúklingar sem læknarnir hafa til meðferðar á stofu og sem valda þeim hugar- angri eða þeir komast ekkert áfram með, og hjá flestum lækn- um er af nægu efni að taka, ef menn hafa sæmilega sjálfsgagn- rýni. Notuð eru dulnöfn, svo að sjúklingurinn þekkist ekki og ekki eru gefnar upplýsingar, sem leitt geta til þess. Aðal- atriðið er samskipti sjúklingsins og læknisins. Það er alls ekki þrýstingur á einstaka lækna að kynna einhverja sérstaka teg- und af sjúkratilfellum. I upphafi var talsvert einblínt á sálræn vandamál, en með tímanum átt- aði Balint sig á því að sálræn meðferð (psychotherapia) var í augum margra heimilislækna framandi (corpus alienum) í stofuvinnu og ekki viðeigandi undir venjulegum formerkjum. Hvernig tilfelli á að ræða um? í stuttu máli sagt eru það þau mál þar sem læknirinn situr fastur. Það nær yfir erfiðu sjúklingana, en líka þá sem eru lækninum ráðgáta eða valda honum hug- arangri og allt þarna á milli. Svo eru auðvitað bæði til erfiðir sjúklingar og erfiðir læknar, og sjúklingar og læknar sem ekki eiga skap saman. Það hafa þó verið óskrifuð lög í Balint vinnu að álasa ekki lækninum eða gagnrýna hann harkalega fyrir það hvernig hann hefur tekið á málum, jafnvel þótt full ástæða getið verið til og það er að sjálf- sögðu verkefni fyrir handleið- ara hópsins að verja einstaka lækna í hópnum, að halda hlífi- skildi yfir hverjum og einum en reyna jafnframt að halda hópn- um við efnið sem er samband læknisins og sjúklingsins. Á Balint fundum er setið á stólum sem raðað hefur verið í hring. Sá sem stýrir umræðum spyr hver sé með sjúkling að tala um (Who’s got a case?). Gengið er út frá því að allir hafi vanda- mál á reiðum höndum, þótt svo sé að sjálfsögðu ekki alltaf, og oft er þá byrjað á því sem heitast brennur. Tímatakmörk eru yfir- leitt allskörp, eða einn og hálfur til tveir tímar í allt, og ekki er óalgengt að ein sjúkrasaga og umræður sem út frá henni spinnast fylli þann tíma. Ella má nota afgangstíma fyrir fram- haldsumræður um tilvik, sem rætt hefur áður (follow-up) en slíkt er yfirleitt hægt þegar sam- band læknis við sjúkling varir árum saman. Yfirleitt er ekki stuðzt við „journalinn", heldur byggt á minni læknisins. Þetta skiptir máli, því að það sem lækninum er minnistætt úr sam- talinu er oft kjarni málsins, og sömuleiðis það sem síðar kann að koma í ljós að hann hefur gleymt eða sleppt að tala um (positive and negative find- ings). Umræður geta farið út um víðan völl, en stjórnandanum er gert að taka í taumana ef með þarf. Það er leyft að koma með klínískar skýringar og athuga- semdir, þótt þær séu sjaldnast eins gagnlegar og það, að koma auga á hvað er að gerast milli læknis og sjúklings. Minna hjálpar að spyrja lækninn hvers vegna hann hafi sagt eða gert eitthvað, heldur en að velta því fyrir sér hvað það hafi verið í fasi eða tali sjúklingsins sem fékk lækninn til að bregðast við á ákveðinn hátt. í hópi sem þessum, með kollegum sem treysta hver öðrum og eru að vinna að svipuðum verkefnum, er næsta víst að umræður verða frjóar og að hugmyndaflug manna virkjast. Þannig er svo til útilokað að umræðuefni þrjóti eða samtalið strandi. Þótt ferill Balint hafi hafizt í heimalandinu, þá bjó hann lengst af og starfaði í Bretlandi og er kunnastur af námskeiðum um samskipti læknis og sjúk- lings (the doctor - patient rela-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.