Læknablaðið - 15.08.1996, Side 16
564
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
indi frá þvag- og kynfærum voru hjá 21%
kvennanna. Þriðjungur kvennanna, marktækt
fleiri á elliheimilum, hafði rætt um þvagfæra-
óþægindi við lækni nýlega.
Ályktun: Með hliðsjón af algengi þvagleka
og þvagfæravandamála meðal elstu kvenna á
íslandi mætti ætla að fleiri konur gætu haft
gagn af læknisfræðilegu mati og meðferð. Gildi
og ábendingar östrógenmeðferðar fyrir aldrað-
ar konur með þvag- og kynfæravanda þyrfti að
skilgreina betur. Astæða er til að ætla að lækn-
ar geti bætt meðferðina með forvörnum, virkri
eftirgrennslan eftir einkennum og aukinni
greiningarvinnu og þannig bætt lífsgæði elstu
kvenna.
Inngangur
Þvagleki og þvagfærasýkingar eru algeng
vandamál hjá öldruðum konum. Utan stofn-
ana eru 15-30% aldraðra kvenna með þvag-
leka en á elliheimilum hrjáir þvagleki liðlega
helming vistmanna (1).
Aldurstengdar breytingar, svo sem minnkað
rúmmál þvagblöðru, ósjálfráðir samdrættir í
blöðruvegg, minnkað viðnám í þvagrás og
blöðrusig, stuðla að þvagleka og auka líkur á
þvagfærasýkingum (2). Vöðvarýrnun, minnk-
uð hreyfifærni, skert skyn og heilaskaði auka
enn á algengi þvagleka meðal eldri borgara
(1,3). Þvagleki er tvöfalt algengari hjá konum
en körlum (1,3). Til viðbótar stuðlar lækkun
östrógens eftir tíðahvörf að auknum óþægind-
um frá þvag- og kynfærum.
Þvagleki hefur verið skilgreindur sem sjáan-
legur og óviljandi missir þvags sem veldur
hreinlætis- og félagslegum vanda (4). Önnur
líkamleg vandamál geta fylgt, svo sem útbrot,
húð- og þvagfærasýkingar (1). Margar konur
skammast sín fyrir slæma lykt og fyrirferðar-
miklar bleiur. Þær veigra sér við að fara í heim-
sóknir eða lengri ferðir og takmarka hreyfingu
eins og leikfimi og dans sem ýtt gæti undir leka.
Konurnar einangrast, svefn raskast, sjálfsör-
yggi minnkar og þunglyndi sest að (1,5).
Áætlað er að 10% af útgjöldum elliheimila
komi til vegna þvagleka. Fjármagna þarf
bleiur, netbuxur, hanska og önnur hjálpar-
gögn, þvott og mikla vinnu starfsmanna.
Kostnaður fyrir hvern einstakling í heimahúsi
er minni en á stofnunum, en fellur á einstak-
linginn (6).
Hjá heilbrigðisstéttum ber enn á því viðhorfi
að þvagleki fylgi ellinni og lítill hluti eldri
kvenna fær meðhöndlun (1). Aldraðar konur
eru tregar til að gangast undir skurðaðgerðir.
Lyf við þvagleka valda oft óheppilegum auka-
verkunum hjá öldruðum og konurnar eiga erf-
itt með að læra og viðhalda grindarbotnsæfing-
um. Östrógenlyf gætu verið ákjósanleg með-
ferð hjá gömlum konum. Mjólkursýrugerlum í
fæðingarvegi fjölgar á ný við meðferðina en
þeir vernda gegn sýkingum (3,7). Húð leg-
ganga þykknar og blóðrás batnar, þannig að
staðbundin óþægindi minnka (8). Á þeim lágu
skömmtum sem notaðir eru hjá gömlum kon-
um eru litlar líkur á hvimleiðum blæðingum frá
legi (3).
Rannsóknir á þvagleka kvenna hafa að
mestu beinst að árunum í kringum tíðahvörf.
Árið 1991 var gerð athugun á þvagleka meðal
aldraðra á stofnunum á íslandi með sérstöku
tilliti til hreyfigetu og skilvitundar (2). Nýlega
voru tíðni þvagleka og áhrif einfaldrar með-
ferðar meðal kvenna í Öxarfjarðarhéraði
könnuð, en aðeins þriðjungur úrtaksins var yfir
sextugt og breytur voru ekki athugaðar sér-
staklega með tilliti til aldurs (9).
Tilgangur þessarar athugunar var að afla
upplýsinga um algengi þvag- og kynfæravanda-
mála elstu kvenna og hvort munur væri á kon-
um í þjónusturými elliheimila eða í heimahús-
um.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin náði til 135 kvenna á höfuð-
borgarsvæðinu. Konunum var skipt í fjóra ald-
ursflokka miðað við 1. janúar 1995, það er 70-
74, 75-79, 80-84 og 85-89 ára. Skrá var fengin
yfir vistmenn í þjónusturými á Hrafnistu í
Reykjavík og Hafnarfirði, miðað við marsbyrj-
un 1995. Konur í þjónusturými fremur en
hjúkrunarrými voru valdar til að fá betri sam-
anburðarhóp við þær sem voru í heimahúsum
hvað varðar almennt heilsufar. Hlutfallslega
fáar konur á elliheimilum voru undir áttræðu
(n=25) en þeim var öllum boðin þátttaka.
Hendingarval var notað til að fá 25 konur í
hvorn af tveimur eldri aldursflokkunum. Öll-
um konum innan hvers aldursflokks var gefið
raðnúmer frá 1-X. Tölva var notuð til að fá
hendingarúrtak af stærðinni 3X, og endurtekn-
ar tölur fjarlægðar. Nöfnunum var endurraðað
samkvæmt hendingarúrtakinu og efstu 25 kon-
urnar valdar. Til þess að ná til kvenna sem
bjuggu utan stofnana var fenginn listi yfir kon-
ur sem sækja þjónustu til heilsugæslustöðva