Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 17

Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 17
(ómeprazól) -áhrifaríkt íslenskt magalyf íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990 Lómex (ómeprazól) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Sýruhjúphylki; A 02 B C 01 R E Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæöis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er að þessar greiningar séu staöfestar með speglun. Langtímanotkun viö bólgu í vélinda vegna bakflæðis eöa við síendurteknum sárum i maga eöa skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í þrjú ár. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði, uppköst, hægðatregða, kviðverkir og aukin vindgangur. Sjaldgæfar(0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst í tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tímabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýking í munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir: Ómeprazól geturminnkað umbrotshraðadíazep- ams, warfaríns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru því ekki þekktar. Athugið: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem ekki hafa svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefið og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum í tvær lyfjagjafir. Langtímameð- ferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna síendurtekins sársjúkdóms í maga eða skeifugöm: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn í 40 mg einu sinni á dag. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. OMEGA FARMA -gegn magasári og Zollinger-Ellison heilkennum. -gegn bólgu í vélinda -gegn skeifugarnarsári. vegna bakflœöis. Pakkningar og verö 1. sept. 1995: Sýruhjúpshylki 20 mg: 14 stk. - 3953 kr.; 28 stk. - 7546 kr.; 56 stk. - 13984 kr.; 100 stk. - 23494 kr.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.