Læknablaðið - 15.08.1996, Qupperneq 17
(ómeprazól)
-áhrifaríkt íslenskt magalyf
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990
Lómex (ómeprazól)
Framleiðandi: Omega Farma ehf. Sýruhjúphylki; A 02 B C 01 R E Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum
INN 20 mg. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæöis. Zollinger-Ellison
heilkenni (syndrome). Æskilegt er að þessar greiningar séu staöfestar með speglun. Langtímanotkun viö bólgu í vélinda
vegna bakflæðis eöa við síendurteknum sárum i maga eöa skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í þrjú ár.
Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur,
ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur,
ógleði, uppköst, hægðatregða, kviðverkir og aukin vindgangur. Sjaldgæfar(0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta.
Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst í tengslum við
ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tímabundið rugl og
æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýking í munni. Breytingar á lifrarenzýmum,
encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum
blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos.
Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir: Ómeprazól geturminnkað umbrotshraðadíazep-
ams, warfaríns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóín og getur verið nauðsynlegt
að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar
um meðferð eru því ekki þekktar. Athugið: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn
ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma
má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í
vandlega lokuðu glasi. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda
meðferð áfram í 2vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið
gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má
halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem ekki hafa svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á
dag verið gefið og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í
4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað
annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison
heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir
geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum í tvær lyfjagjafir. Langtímameð-
ferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna síendurtekins sársjúkdóms í maga eða skeifugöm: Venjulegur skammtur er 20
mg einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn í 40 mg einu sinni á dag. Skammtastærðir handa börnum:
Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum.
OMEGA FARMA
-gegn magasári og
Zollinger-Ellison
heilkennum.
-gegn bólgu
í vélinda
-gegn skeifugarnarsári.
vegna bakflϚis.
Pakkningar og verö 1. sept. 1995:
Sýruhjúpshylki 20 mg: 14 stk. - 3953 kr.; 28 stk. - 7546 kr.; 56 stk. - 13984 kr.; 100 stk. - 23494 kr.