Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1996, Side 30

Læknablaðið - 15.08.1996, Side 30
576 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Latexofnæmi — nýtt heilbrigðisvandamál Davíð Gíslason, Unnur Steina Björnsdóttir Gíslason D, Björnsdóttir US Latex Allergy — an Emerging Hcalth Care Problem Læknablaðið 1996: 82; 576-9 Since immediate hypersensitivity reaction to natural rubber was described 17 years ago, the incidence of latex allergy has been increasing rapidly. This is in part due to a growing awareness of the problem along with improved diagnostic methods. Addition- ally, in accordance with universal health care plans and the HIV epidemic, more rubber products such as latex gloves and condoms are in general use. Changes in methods of rubber production may also contribute to the increasing prevalence in latex al- lergy. Individuals at greatest risk for developing latex al- lergy are patients who have undergone multiple op- erations. These include children with myelomenin- gocele (spina bifida) and congenital defects of the urinary tract. Another high risk group includes health care providers and individuals working in rubber production. Latex containing products are in general use in the hospital setting as well as in the home environment. They can therefore pose a great risk to sensitized patients if prophylactic measures are not undertak- en. Defining high risk patients and subsequent diagnosis with appropriate skin tests are important. Patients with latex allergy must then be provided with self- administered adrenalin (Epi-pen) and instructed in avoidance measures. In this article we describe 23 individuals who have been diagnosed allergic to latex in Iceland. Frá Vífilsstaðaspítala. Fyrirspurnir, bréfaskipti; Davíð Gísla- son, Vífilsstaðaspítala, 210 Garðabær. Ágrip Fyrir 17 árum var vakin athygli á því að latex gæti valdið bráðaofnæmi. Á þeim árum sem liðin eru síðan virðist sem tíðni latexofnæmis hafi fari hratt vaxandi. f>að kann að einhverju leyti að skýrast af almennt meiri þekkingu á ofnæmi, en líklega er aðalástæðan breytingar á framleiðsluháttum og mikil aukning í notkun gúmmís. Þeir sem eru í mestri hættu á að fá latexof- næmi eru börn með fæðingargalla, sem krefjast endurtekinna aðgerða. Dæmi um það eru börn með klofinn hrygg (spina bifida) og fæðingar- galla í þvagfærum. Heilbrigðisstarfsmenn og fólk sem vinnur við framleiðslu á gúmmívörum er einnig í sérstakri hættu á að fá latexofnæmi. Latexvörur eru mikið notaðar á sjúkrahús- um og á heimilum. Ofnæmi fyrir latexi getur verið sérlega hættulegt í tengslum við meðferð á sjúkrahúsum. Mikilvægt er að skilgreina áhættuhópa og finna með húðprófum þá sem hafa ofnæmi. Á íslandi hafa greinst um 30 einstaklingar með latexofnæmi. Sagt er í stuttu máli frá ein- kennum 23 þeirra. Bent er á nokkrar varúðarráðstafanir til að draga úr þeirri hættu sem fylgir latexofnæmi. Inngangur Stundum skjóta ný vandamál upp kollinum í læknisfræðinni án þess að orsakir liggi í augum uppi. Eitt slíkt er bráðaofnæmi fyrir latexi. Latexofnæmi var fyrst lýst árið 1927 (1), en vakti þá enga athygli, líklega vegna þess að læknar könnuðust ekki við vandamálið og þekking á ofnæmissjúkdómum var þá afar tak-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.