Læknablaðið - 15.08.1996, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
577
mörkuð. Það var fyrst eftir að skrifað var um
latexofnæmið í annað sinn árið 1979 að læknar
fóru að gefa því verulegan gaum (2).
Hvað er latex?
Latex sem er grunnefnið í gúmmíi, kemur úr
safa trésins Hevea brasiliensis*. Safanum er
safnað með því að rista raufar í börk trésins
sem safinn seytlar eftir niður í safnker. Um leið
og safanum er safnað er bætt í hann ammóníaki
til að hindra kekkjun og sýklagróður.
Aðalefnin í latexi eru kolvetnasambönd.
Við framleiðslu á gúmmíi er latex blandað
brennisteini og myndar hann bindingu milli
kolefnisjóna. Þessi blanda ákvarðar eiginleika
gúmmís svo sem teygjanleika og þol. Við fram-
leiðsluna eru notaðir efnahvatar. Annars gengi
framleiðslan hægar og eiginleikar gúmmís yrðu
lakari. Einnig eru notuð efni sem hindra oxun
og önnur sem draga úr tærandi áhrifum ósons.
Oft er litarefnum bætt í gúmmíið á lokastigum
framleiðslunnar og það síðan mótað í hinar
ýmsu framleiðsluvörur (3).
Gúmmí var þekkt í samfélögum indíána í
Ameríku þegar Evrópubúar komu þangað.
Gúmmítréð er upprunnið í Suður-Ameríku, en
það var flutt meðal annars til Suðaustur-Asíu á
seinni hluta 19. aldar, þar sem ræktun þess er
mest í dag. Svíinn Halstead varð fyrstur til að
búa til gúmmíhanska 1889 (4).
Latexofnæmi
Fljótlega kom í ljós að gúmmíhanskar gátu
orsakað húðskaða (5). Annars vegar voru ert-
andi áhrif á húðina við notkun hanska og hins
vegar exem vegna snertiofnæmis. Hanskarnir
erta húðina vegna þess að húðin soðnar undan
þeim og vegna þess að fituleysanleg efni í
hreinlætisvörum, lokast inni á húðinni og eyða
fituvörn hennar.
Snertiofnæmið myndast fyrir efnum sem eru
notuð við gúmmíframleiðsluna en líklega ekki
(eða sjaldan) fyrir latexinu sjálfu. Þetta eru
meðal annars efnaflokkarnir thiurams, thiazol-
es, phenylenediamine. Þessi efni eru notuð
sem efnahvatar, rotvarnarefni og litarefni. Of-
næmi fyrir þeim er kannað með plástraprófum.
* Orðið latex er hér notað yfir hráefni í gúmmíi,
sem unnið er úr safa gúmmítrésins Hevea Brasil-
iensis. Orðið latex er stundum notað yfir gúmmí í
fullunnum gúmmívörum og einnig vatnsblandan-
lega akrýlmálningu sem er alveg án gúmmíefna.
Um 1% af latexi eru prótfnsambönd. Þau
geta vakið mótefnasvörun af IgE gerð og bráð
ofnæmisviðbrögð. Um er að ræða allmarga of-
næmisvaka með mólekúlþunga á bilinu 5-100
kd (kíló-Dalton)(6). Telja sumir að mikilvæg-
asti ofnæmisvaldurinn sé prótínsamband 14,6
kd sem hefur þýðingu fyrir teygjanleika gúmm-
ís (rubber elongation factor) (6). Þetta er þó
ekki fullkannað.
Nokkrar fæðutegundir úr jurtaríkinu bera í
sér ofnæmivaka sem valda krosssvörun við lat-
ex. Neysla þessara fæðutegunda orsakar of-
næmiseinkenni hjá um það bil helmingi þeirra
sem hafa latexofnæmi. Að jafnaði eru þau
einkenni vægari en af latexi. Þær fæðutegundir
sem oftast gefa þessi einkenni eru bananar,
avókadó og kastaníuhnetur.
Bráðaofnæmi fyrir latexi er mun alvarlegri
sjúkdómur en snertiofnæmi fyrir gúmmíi og
getur verið lífshættulegt. Á þeim 17 árum sem
liðin eru síðan latexofnæminu var lýst öðru
sinni, virðist tíðni þess hafa aukist hratt. Fyrir
því kunna að vera nokkrar ástæður. Notkun
gúmmís hefur farið ört vaxandi, sérstaklega
meðal heilbrigðisstarfsmanna, sem eru hvattir
til að nota gúmmfhanska af ótta við lifrarbólg-
ur og eyðni. Sem dæmi um það má nefna, að í
Bandaríkjunum voru notaðir 1,4 milljarðar
hanska 1986 en átta milljarðar hanska árið 1993
(7) . Lögð hefur verið aukin áhersla á notkun
smokks við kynmök af sömu ástæðu. Vegna
aukinnar eftirspurnar eftir gúmmíi er hugsan-
legt að breyting hafi orðið á framleiðsluferli
þess. Það gæti þýtt að nú væri meira af ofnæm-
isvökum í framleiðsluvörum úr gúmmíi en áður
(8) . Aukin þekking og betri rannsóknaraðferð-
ir hafa leitt til auðveldari greiningar á ofnæm-
inu og getur af þeim sökum virst sem tíðnin fari
vaxandi.
Reynslan hefur sýnt að sérstökum hópum í
samfélaginu hættir öðrum fremur til að fá lat-
exofnæmi. Þetta á einkum við um þrjá hópa: í
fyrsta hópnum eru þeir sem á ungum aldri
þurfa oft að gangast undir aðgerðir eða vera
með umbúðir úr latexi. Þetta eru einkum börn
sem fæðast með klofinn hrygg (spina bifida)
eða galla á þvagfærum. í rannsóknum á börn-
um með klofinn hrygg höfðu 28-67% latexof-
næmi (9). í öðrum hópnum eru heilbrigðis-
starfsmenn. í þeim hópi er starfsfólk á skurð-
stofum í mestri hættu vegna mikillar notkunar
latexhanska. í sumum rannsóknum hafa allt að
10% þessara starfsmanna latexofnæmi (9). í