Læknablaðið - 15.08.1996, Side 33
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
579
Fig. 1. Contact reaction to rubber gloves.
próf með þeim hlut sem talinn er valda ein-
kennunum. Einnig er hægt að mæla IgE mót-
efni fyrir latexi í blóði. Slík próf hafa þó ekki
verið talin eins næm og húðprófin (9). Fölsk
jákvæð húð- og blóðpróf koma fyrir og því þarf
ætíð að skoða niðurstöðurnar úr ofnæmisrann-
sóknum í samhengi við einkenni viðkomandi
einstaklings.
Húðprófin og sérstaklega þolprófin, geta
verið varasöm. Pví ættu eingöngu aðilar með
reynslu á þessu sviði að framkvæma prófin.
Hvernig má draga úr hættu af
latexofnæmi?
Læknar hafa velt þessari spurningu fyrir sér,
einkum með tilliti til þeirrar áhættu sem fylgir
skurðaðgerðum. I eftirfarandi ráðleggingum
er stuðst við álit starfshóps á vegum samtaka
amerískra ofnæmislækna (The American Aca-
demy of Allergy Asthma and Immunology
(AAAAI)) (11):
I. Að finna þá sem eru í áhættuhópum.
II. Að spyrja þá sem eru á leið í aðgerð um
einkenni sem geta bent til latexofnæmis.
III. Að rannsaka sjúklinga í áhættuhópum og
með grunsamleg einkenni fyrir latexofnæmi.
IV. Að tryggja að þeir sem hafa latexofnæmi
geti farið í aðgerðir í latexfríu umhverfi.
V. Að merkja þá sem hafa þekkt latexofnæmi
með Medic Alert merkjum.
VI. Að þeir sem fengið hafa alvarleg einkenni
beri á sér adrenalínsprautur (Epi-Pen) í örygg-
isskyni.
Aðstæður eru nokkuð sérstakar á íslandi.
Mjög fjölmennir starfshópar nota gúmmí-
hanska að jafnaði í vinnunni. Auk heilbrigðis-
starfsmanna má sérstaklega nefna sjómenn og
fiskvinnslufólk. Það er því full ástæða til að
vera á varðbergi gagnvart latexofnæmi.
Þeir sem eru með sterkt latexofnæmi eru í
bráðri hættu lendi þeir í skurðaðgerð án þess
að vitað sé um ofnæmið. Á sjúkrahúsum er
fjöldi hluta í notkun daglega sem innihalda
latex. Það er erfitt eða nær ómögulegt að
sneiða hjá latexi nema með vökulu eftirliti.
Vaktsjúkrahúsin verða að vera viðbúin því
að sjúklingar með latexofnæmi leggist þar inn í
bráðatilfellum. Þau þurfa því að hafa viðbúnað
til að framkvæma svæfingar og aðgerðir í lat-
exfríu umhverfi.
Nú er æ algengara að hanskar séu notaðir
þegar matvæli eru handfjötluð. Á þann hátt
geta ofnæmisvakar úr latexi borist í matvælin.
Þetta kemur vafalaust ekki að sök, ef matvælin
eru soðin eftir snertinguna. Öðru máli gegnir
um matvæli sem eru handfjötluð með lat-
exhönskum þegar þau eru tilbúin til notkunar.
Reynslan ein getur skorið úr því hvort þau eru
hættuleg fólki með latexofnæmi.
HEIMILDIR
1. Stern JE. Uberempfindligkeit gegen Kautschuk als Ur-
sache von Urticaria und Quinckeschem Odem. Klin Wo-
chenschr 1927; 6: 1479.
2. Nutter AF. Contact urticaria to rubber. Br J Dermatol
1979; 101: 597-8.
3. Subramaniam A. The Chemistry of Natural Rubber La-
tex. Immunol Allergy Clin North Am 1995; 15: 1-20.
4. Truscott W. The Industry Perspective on Latex. Immu-
nol Allergy Clin North America 1995; 15: 89-121.
5. Downing JG. Dermatitis from rubber gloves. N Eng J
Med 1933; 208: 196-8.
6. Kurup VP, Murali PS, Kelly KJ. Latex Allergy. Immu-
nol Allergy Clin North Am 1995; 15: 45-59.
7. Thomson RL. Education Challenges of Latex Protein
Allergy. Immunol Allergy Clin North Am 1995; 15:159-
74.
8. Frankland AW. Latex allergy (editorial). Clin Exper
Allergy 1995; 25: 199-201.
9. Slater JE. Latex allergy. J Allergy Clin Immunol 1994;
94: 139-50.
10. Sussman GL, Beezhold DH. Allergy to latex rubber.
Ann Intern Med 1995; 122: 43-6.
11. Task Force on Allergic Reactions to Latex (committee
report). J Allergy Clin Immunol 1993; 92: 16-8.