Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1996, Side 39

Læknablaðið - 15.08.1996, Side 39
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 585 beita, að viðkomandi hafi áður gefið frjálst vitneskjusamþykki sitt. Viðkomandi skulu gefnar viðeigandi upplýsingar um tilgang og eðli íhlutunarinnar, svo og um afleiðingar og áhættu henni samfara. Viðkomandi er frjálst að draga samþykki sitt til baka hvenær sem er. Sjötta grein (Verndun þeirra sem ekki eru hæf- ir til að veita samþykki) 1. Einstakling, sem ekki er hæfur til að veita samþykki, má því aðeins beita íhlutun, að það sé honum beint til hagsbóta, háð ákvæðunum í sautjándu og tuttugustu grein hér á eftir. 2. Hjá einstaklingi undir lögaldri, sem lögum samkvæmt er ekki hæfur til að veita samþykki fyrir íhlutun, má því aðeins beita henni að fyrir liggi leyfi forráðamanns eða yfirvalda, eða ein- staklings eða hóps sem lög mæla fyrir um. Skoðun einstaklings, sem er undir lögaldri, skal í auknum mæli metið sem úrslitaatriði í hlutfalli við aldur og þroskastig hans eða henn- ar. 3. Þegar fullorðnir einstaklingar, vegna geð- hömlunar, sjúkdóms eða af svipuðum ástæðum, teljast lögum samkvæmt ekki hæfir til þess að samþykkja íhlutun, má því aðeins beita íhlutuninni að fengið sé leyfi forráða- manns eða yfirvalda eða einstaklings eða hóps sem lög mæla fyrir um. Viðkomandi einstak- lingur skal taka þátt í aðgerðum, sem leiða til samþykkis, svo sem kostur er. 4. Forráðamaðurinn, yfirvöldin, einstakling- urinn eða hópurinn, sem nefnd eru í annarri og þriðju málsgrein hér að ofan, skulu við sömu skilyrði fá þær upplýsingar, sem nefndar eru í fimmtu grein. 5. Leyfisveitingu þá, sem vísað er til í annarri og þriðju málsgrein hér á undan, má draga til baka hvenær sem er í þágu bestu hagsmuna þess sem hlut á að máli. Sjöunda grein (Vernd mannvera sem haldnar eru geðröskun) Mannveru með alvarlega geðröskun má án samþykkis hennar því aðeins beita íhlutun, sem ætlað er að meðhöndla geðröskunina að líklegt sé að viðkomandi verði fyrir alvarlegum skaða á heilsu sinni, sé meðferðinni ekki beitt og að það sé gert við vernduð skilyrði, sem mælt er fyrir um í lögum og að þau feli í sér aðferðir við eftirlit, stjórnun og málskot. Attunda grein (Neyðartilvik) Þegar um neyðartilvik er að ræða og ekki er hægt að afla viðeigandi samþykkis, má tafar- laust beita hverri læknisfræðilega nauðsynlegri íhlutun til hagsbóta fyrir heilbrigði þess er í hlut á. Níunda grein (Áður tjáðar óskir) Sé sjúklingur ekki fær um að tjá óskir sínar um læknisfræðilega íhlutun, þegar henni skal beitt, en hann hefir áður tjáð óskir sínar í því efni, skal tekið tillit til þeirra óska. III. Einkalíf og réttur á upplýsingum Tíunda grein (Einkalíf og réttur til að fá upp- lýsingar) 1. Allir eiga rétt á að einkalíf þeirra sé virt, að því er varðar upplýsingar um heilbrigði þeirra. 2. Einstaklingar eiga rétt á að fá að vita um hverjar þær upplýsingar, sem safnað er um heilbrigði þeirra. Hins vegar skal virða óskir einstaklinga um það, að þeim verði ekki veittar upplýsingar á þennan hátt. 3. í þágu sjúklingsins er í undantekningartil- vikum í lögum hægt að takmarka beitingu þess réttar, sem felst í annarri málsgreinin. IV. Genamengi mannsins Ellefta grein (Bann við mismunun) Bönnuð er hvers kyns mismunun gegn mann- veru vegna erfðauppruna hennar. Tólfta grein (Forspárerfðapróf) Prófum, sem segja fyrir um erfðasjúkdóma eða koma að haldi annað hvort við að bera kennsl á þann er ber gen, sem veldur sjúkdómi eða við að uppgötva arfbundna hneigð til sjúkdóms eða næmi fyrir sjúkdómi, má aðeins beita í heilbrigðisskyni eða í vísindarannsóknum tengdum heilbrigðismarkmiðum og sé það háð því, að veitt sé viðeigandi erfðaráðgjöf. Þrettánda grein (Ihlutun í genamengi manns- ins) Ihlutun, sem ætlað er að breyta genamengi mannsins má aðeins beita í forvarnar-, lækn- inga- og greiningarskyni og þá því aðeins, að ætlunin sé ekki að valda breytingum á gena- mengi neinna afkomenda. Fjórtánda grein (Bann við kynvali) Ekki skal leyfa notkun læknisfræðilegrar tækniaðstoðar við æxlun, í því skyni að velja kyn þess barns sem í vændum er, nema að ætlunin sé að koma í veg fyrir alvarlegan kyn- bundinn erfðasjúkdóm. V. Vísindarannsóknir Fimmtánda grein (Almenn regla) Frjálst er að stunda vísindarannsóknir á sviði líffræði og læknisfræði og er það háð skilyrðum

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.