Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
587
Mannslíkaminn og hlutar hans skulu ekki vera
uppspretta fjárhagslegs ágóða.
Tuttugasta og önnur grein (Eyðing brottnum-
inna líkamshluta)
Þegar einhver hluti líkamans er numinn brott
meðan á íhlutun stendur, má því aðeins geyma
hann og nota í öðrum tilgangi en ætlunin var
við brottnámið, að beitt sé viðeigandi aðferð-
um við að veita upplýsingar og að afla sam-
þykkis.
VIII. Brot á ákvæðum samningsins
Tuttugasta og þriðja (Brot á meginreglunum)
Aðilar samningsins skulu sjá fyrir viðeigandi
réttarvernd, til þess skjótlega að koma í veg
fyrir eða stöðva ólögmæt brot á meginreglun-
um, sem settar eru fram í samningi þessum.
Tuttugasta og fjórða grein (Bætur fyrir ótil-
hlýðilegt tjón)
Sá, sem orðið hefir fyrir ótilhlýðilegu tjóni
vegna íhlutunar, á rétt á sanngjörnum bótum
samkvæmt skilyrðum og aðferðum, sem lög
mæla fyrir um.
Tuttugasta og fimmta grein (Viðurlög)
Aðilar samningsins skulu setja viðurlög við
hæfi, sem beitt verði, ef brotið er gegn ákvæð-
unum í þessum kafla.
IX. Tengsl þessa samnings og
annarra ákvæða
Tuttugasta og sjötta grein (Takmarkanir á beit-
ingu réttindanna)
1. Engar takmarkanir skal setja á beitingu rétt-
indanna og verndarákvæðanna sem felast í
samningi þessum, aðrar en þær sem mælt er
fyrir um í lögum og nauðsynlegar eru í lýðræð-
issamfélagi í þágu almannaöryggis, til þess að
koma í veg fyrir afbrot, til þess að vernda heil-
brigði almennings eða til þess að verja réttindi
og frelsi annarra.
2. Takmörkunum, sem gert er ráð fyrir í máls-
greininni hér á undan, má ekki ekki beita á
elleftu, þrettándu, fjórtándu, sextándu, sautj-
ándu, nítjándu, tuttugustu, og tuttugustu og
fyrstu grein.
Tuttugasta og sjöunda grein (Víðtækari vernd)
Ekkert ákvæði samnings þessa skal túlka þann-
ig, að það takmarki eða hafi önnur áhrif á
möguleika samningsaðila, til þess að veita víð-
tækari vernd en mælt er fyrir í samningi þess-
um, að því er varðar beitingu líffræði og lækn-
isfræði.
X. Opinber umræða
Tuttugasta og áttunda grein (Opinber umræða)
Aðilar samningsins skulu sjá til þess, að
grunnspurningarnar, sem þróun líffræði og
læknisfræði vekja, fái viðeigandi opinbera um-
ræðu, sérstaklega í ljósi tilhlýðilegra læknis-
fræðilegra, félagslegra, efnahagslegra, sið-
fræðilegra og lagalegra vísbendinga og að
hugsanleg beiting þeirra fái viðeigandi umfjöll-
un opinberlega.
XI. Túlkun samningsins og hvernig
honum skal fylgt eftir
Tuttugasta og níunda grein (Túlkun samnings-
ins)
Mannréttindadómstóll Evrópu getur án beinn-
ar vísunar til nokkurs málareksturs fyrir dóm-
stóli, látið uppi skoðun sína til ráðgjafar um
lögfræðileg vafamál að því er varðar túlkun
þessa samnings, þegar eftirtaldir óska eftir því:
- stjórn aðildarríkis, þegar hún hefir látið hin
aðildarríkin vita,
- nefndin, sem sett er á stofn samkvæmt
þrítugustu og annarri grein og er aðild ein-
skorðuð við fulltrúa aðildarríkja samningsins
og skal samþykktin hljóta tvo þriðju hluta
greiddra atkvæða eða nreira.
Þrítugasta grein (Skýrslur um framkvæmd
samningsins)
Samningsaðilar skulu skýra frá því með hverj-
um hætti landslög tryggja raunhæfa fram-
kvæmd sérhverra ákvæða samnings þessa,
þegar aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins
óskar þess.
XII. Viðbótarsamningar
Þrítugasta og fyrsta grein (Viðbótarsamningar)
Hægt er að gera viðbótarsamninga í samræmi
við þrítugustu og aðra grein, í því skyni að þróa
meginreglurnar í samningi þessum á nánar til-
greindum sviðum.
Viðbótarsamningar skulu liggja frammi til
undirritunar fyrir samningsaðila. Þá skal full-
gilda, viðurkenna eða samþykkja. Samnings-
aðili getur ekki fullgilt, viðurkennt eða sam-
þykkt viðbótarsamninga nema hafa áður, eða
samtímis, fullgilt samninginn.
XIII. Breytingar á samningnum
Þrítugasta og önnur grein (Breytingar á samn-
ingnum)
1. Verkefnin, sem ætluð eru „nefndinni" í þess-