Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
603
Tryggingastofnun ríkisins í við-
komandi löndum eru líka öll á
einn veg. Það er með öllu
óhugsandi að farið verði með
upplýsingar um sjúklinga á
þennan hátt. Jafnframt er tekið
fram, til rökstuðnings þessu
sjónarmiði, að hér sé um að
ræða einstaklingsbundin rétt-
indi sem annað hvort eru virt
eða ekki, það er annað hvort
virðum við þagnarskylduna og
friðhelgi einkalífsins eða ekki.
Hér er með öðrum orðum ekk-
ert val.
Skyldur og ábyrgð gagnvart
sjúklingi vega allajafnan þyngst
í starfi heilbrigðisstétta. Þagn-
arskyldu heilbrigðisstarfsfólks
er ætlað að tryggja ákveðin
verðmæti, svo sem sjálfræði
sjúklings, einkalíf hans og
mannhelgi. Þagnarskyldan
stuðlar jafnframt að trausti milli
heilbrigðisstarfsmanns og sjúk-
lings. Þó getur hugsanlega verið
rétt í einhverjum tilvikum að
brjóta þagnarskylduna, svo sem
ef sjúklingur er líklegur til að
stefna lífi í hættu með framferði
sínu. Það þarf því mikið til að
brotin verði ein af grundvallar-
reglum heilbrigðisþjónustunnar
og áhætta tekin á því að pers-
ónulegar upplýsingar berist til
óviðkomandi aðila innan eða
utan heilbrigðiskerfisins.
Landlæknir
Heilsugæslulæknir
Heilsugæslulækniróskasttil starfa við Heilsugæslustöð-
ina á Kirkjubæjarklaustri (H1-stöð) frá 1. október næst-
komandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Valdimars-
son heilsugæslulæknir í síma 487 4800 en umsóknum
skal skilað til Hönnu Hjartardóttur, formanns stjórnar,
fyrir 25. ágúst næstkomandi.
Sjúkrahús Suðurlands
Yfirlæknir
Staða yfirlæknis handlækningasviðs við Sjúkrahús Suðurlands er laus til um-
sóknar. Leitað er eftir lækni með alhliða þekkingu og reynslu í skurðlækningum
og fæðingarhjálp. Krafist er sérfræðiviðurkenningar í almennum skurðlækning-
um, kvensjúkdómum eða bæklunarskurðlækningum.
Búseta á Selfossi eða nágrenni er skilyrði fyrir veitingu stöðunnar.
Nánari upplýsingar gefa Þorkell Guðmundsson yfirlæknir kvensjúkdómasviðs í
síma 482 3264 og Bjarni Ben. Arthursson framkvæmdastjóri í síma 482 1300.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um menntun, rannsóknir og fyrri
störf ásamt starfsvottorðum.
Umsóknir sendist Bjarna Ben. Arthurssyni framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Suð-
urlands pósthólf 160, 802 Selfoss, fyrir 19. ágúst næstkomandi.
Sjúkrahús Suðurlands