Læknablaðið - 15.10.1997, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
635
Table I. Caracteristics of the patients.
Diagnosis Males Females Total
N Age N Age N Age
290.0 38 73.7 68 74.3 106 74.1
290.1 10 60.0 16 61.7 26 61.1
290.4 14 72.0 21 73.3 35 72.9
tímabili sem hér var skoðað virtust þó lifa
nokkru lengur en sjúklingar sem fengu heila-
bilun 10-15 árum fyrr, en mismunandi aðferðir
við greiningu gera samanburð erfiðan.
Inngangur
Heilabilun er heilkenni sem lýsir sér í minn-
istapi og skerðingu á öðrum vitsmunalegum
þáttum svo sem máli, rökhugsun og skipulagn-
ingu daglegra verka (1). Orsakir eru einkum
heilasjúkdómar svo sem Alzheimers sjúkdóm-
ur, ýmsir aðrir hrörnunarsjúkdómar í heila,
blóðrásartruflanir og sýkingar í heila auk efna-
skiptasjúkdóma en alls teljast orsakir vera 60-
70 (2). Algengastir þessara sjúkdóma eru Alz-
heimers sjúkdómur og blóðrásartruflanir.
Þessir tveir sjúkdómaflokkar skýra heilabilun
hjá 80-90% einstaklinganna. Heilabilun
minnkar lífslíkur einstaklinga, en þó kemur
hún illa fram sem dánarorsök því komið hefur í
ljós að dánarvottorð eru óáreiðanlegar heim-
ildir um dauðsföll af völdum heilabilunar (3,4).
Oftar en ekki eru sjúkdómar eins og lungna-
bólga skráð sem dánarorsök hjá einstaklingi
sem andast á lokastigi heilabilunar. Því hefur
orðið að fá heimildir eftir öðrum leiðum, eink-
um með faraldsfræðilegum aðferðum. Faralds-
fræðilegar rannsóknir hafa sýnt að heilabilun
er ein algengasta dánarorsök gamals fólks og
talið er að Alzheimers sjúkdómur sé fjórða
algengasta dánarorsök aldraðra í Bandaríkjun-
um (5). Það er ennfremur talið að dauðsföll af
völdum hrörnunarsjúkdóma í heila muni auk-
ast í Bandaríkjunum um 160-170% á árunum
1990-2040 á meðan dauðsföllum af völdum
nokkurra annarra algengra sjúkdóma fjölgi um
50-130% (6).
Allmargar rannsóknir hafa verið gerðar á
áhrifum þessara sjúkdóma á lífshorfur og hafa
þær staðfest að lífshorfur sjúklinga með heila-
bilun eru talsvert lakari en jafnaldra þeirra í
viðkomandi samfélagi (4,7,8). Dánarlíkur
sjúklinga með heilabilun á íslandi voru athug-
aðar á 12 ára tímabili, 1971-1983. Þær reyndust
verulega meiri en jafnaldra þeirra og var mun-
urinn um það bil tvöfaldur (9). í þessari klín-
ísku rannsókn eru skoðaðar lífshorfur einstak-
linga sem á 10 ára tímabili, 1986-1995, innrituð-
ust á einu dagdeildina fyrir heilabilaða sjúk-
linga sem starfrækt var á því tímabili á íslandi.
Efniviður
Hlíðabær, dagvist fyrir minnissjúka að
Flókagötu 53 í Reykjavík, tók til starfa í mars
1986. Fram til ársloka 1995 höfðu 180 einstak-
lingar verið innritaðir og voru þeir allir utan
einn búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Fullnægj-
andi upplýsingar eru fyrirliggjandi um 177 ein-
staklinga (98,3%) og höfðu 167 þeirra fengið
einhverja af þeim sjúkdómsgreiningum sem
þessi athugun nær til (tafla I). Allir sem innrit-
aðir voru í dagvistunina höfðu verið skoðaðir
áður og fengið greininguna heilabilun sam-
kvæmt ICD-9 (10). Sjúklingar voru á mismun-
andi stigum heilabilunar en ef miðað er við
þrjú stig, væg einkenni (mild), miðlungs ein-
kenni (moderate) og alvarleg einkenni
(severe) voru allir sjúklingar á fyrri stigunum
tveimur við innritun. Skilmerki NINCDS/
ADRDA (11) á mögulegum (probable) og
hugsanlegum (possible) Alzheimers sjúkdómi
voru notuð. Blóðrásartruflanir voru greindar
annað hvort með skýrri sögu um heilablóðfall
og/eða sjáanlegum blóðþurrðarbreytingum á
tölvusneiðmynd af heila eða heilablóðflæði-
skanni (SPECT). Alls höfðu 138 (78,0%) sjúk-
lingar farið í tölvusneiðmyndatöku, 50
(28,2%) í blóðflæðiskann og 49 í hvort tveggja,
en ekki voru möguleikar á að gera blóðflæði-
skann hér á landi fyrr en árið 1990. Lífshorfur
voru skoðaðar einungis með tilliti til þriggja
sjúkdómsgreininga samkvæmt ICD-9: Alz-
heimers sjúkdómur fyrir 66 ára aldur (290,1),
Alzheimers sjúkdómur eftir 65 ára aldur
(290,0) og blóðrásartruflanir í heila (290,4).
Einnig voru athugaðar lífslíkur einstaklinga
með Alzheimers sjúkdóm án tillits til aldurs við
upphaf, það er greiningunum 290,0 og 290,1
var slegið saman. Einstaklingar með aðrar
sjúkdómsgreiningar voru einungis 10 (6%).
Eftirlit var haft með sjúklingunum frá öldr-
unarlækningadeild Landspítalans í Hátúni og