Læknablaðið - 15.10.1997, Page 30
MÓNÍT-L
(ísósorbíð mónónítrat)
-forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag.
Mónít-L (ísósorbíð mónónítrat)
Framleiðandi: Omega Farma ehf. Forðahylki; C 01 D A 14 R B Hvert forðahylki inniheldur:
Isosorbidi mononitras INN 30 mg eða 60 mg. Eiginleikar: Ísósorbíð mónónítrat er virkt umbrotsefni
ísósorbíð dínítrats. Það slakar á sléttum vöðvum æða, aðallega í bláæðum, minnkar þannig flæði til
hjartans og þar með hjartastærð og auðveldar samdrátt hjartans. Lyfið hefur einnig bein útvíkkandi
áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%. Blóðþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst.
er þéttni ekki svo mikil að þol myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niður-
brotsefni útskiljast í þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir
verk. Frábendingar: Lágur blóðþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikið blóðleysi. Aukinn
þrýstingur í miðtaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir nítrötum. Meðganga og brjósta-
gjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf hefur ekki verið staðfest. Aukaverkanir: Höfuð-
verkur. Æðasláttur og roði. Lágur blóðþrýstingur. Svimi. Yfirlið. Hraður hjartsláttur. Uppköst. Milli-
verkanir: Áfengi getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúð: Við brátt hjartadrep á aðeins
að nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastærðir handa fullorðnum: í upphafi meðferðar
er ráðlagður skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60 mg á dag, gefið að morgni. Ef þörf
krefur, má auka skammt í 120 mg á dag, sem taka skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á
myndun þols við langvarandi notkun nítrata er óráðlegt að nota nítröt samfleytt meira en 12 klst. í
hverjum sólarhring. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar og verð 1. sept. 1995:
Forðahylki 30 mg: 30 stk. - 1125 kr.; 100 stk. - 3459 kr.
Forðahylki 60 mg: 30 stk. — 1605 kr.; 100 stk. — 4801 kr.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990