Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1997, Síða 38

Læknablaðið - 15.10.1997, Síða 38
660 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 mApp) þjóna mikilvægum hlutverkum þegar haft er í huga hve mikið er af þessum prótínum. Aþ-peptíðin, sem sekretasar (a, þ og y) klippa úr himnubundnu App, eru hugsanlega bindlar sem taka þátt í boðskiptum gegnum himnu- bundið App inn í frumuna (29). Ýmsar rann- sóknir benda til þess að gallar í boðleiðum og stjórn umritunar skipti máli í Alzheimers sjúk- dómi (30-33). Því hefur verið haldið fram að orsakir sjúkdómsins megi að einhverju leyti rekja til þess að starfsemi, sem App er ætlað að halda uppi, fari úrskeiðis. Vitað er að ákveðin APP stökkbreyting hefur áhrif á klofnun App með (3-sekretasa en það leiðir til þess að stærri Aþ-peptíð myndast, Aþ42 og Aþ43 í stað Aþ40. Þetta gæti truflað starfsemi App. Sýnt hefur verið fram á að Aþ binst App, en það gæti bent til þess að App virkninni sé stýrt af Aþ og að A|342 hafi önnur áhrif en A($40 á App-viðtakann í himnunni. Önnur APP stökk- breyting hefur áhrif á þ-sekretasa háða klofnun App sem leiðir til aukningar á Aþ-peptíðum (29). Á innra borði frumuhimnunnar er sýruendi App, en hann kallast C100 þegar búið er að klippa utanfrumuhlutann eða seytt App frá. I taugafrumum virkar C100 sem himnuviðtaki sem veldur fosfórun á litlu G-prótíni úr rho- fjölskyldunni sem kallast p21 espaður kínasi (p21 activated kinase, Pak). Þessi kínasi tekur þátt í að stýra skautun taugafrumna í heila. Vitað er að heilataugafrumur tapa skautun sinni í Alzheimers sjúkdómi. Einnig er vitað að hvarfefni p21 espaðs kínasa er MEKK kínasi (MAP kínasa kínasi). MAP kínasi er örpíplu- virkjandi prótínkínasi sem gæti hugsanlega tengst fosfórun tau-prótína, en fosfórun tau hindrar tengingu þess við örpíplur og stuðlar að myndun taugatrefjuflækja (34). Presenilin 1 og presenilin 2 Stór hluti snemmkomins, ættlægs Alzheim- ers sjúkdóms stafar af kímlínustökkbreyting- um í tveimur öðrum genum. Flestar eru í PS-1 geni á litningi 14q24.3 sem skráir Psl prótín en einnig finnast stökkbreytingar í PS-2 geni á litningi lq42.1sem skráirPs2 prótín (12,13). Psl og Ps2 prótínin hafa 67% samsvörun hvað varðar amínósýruröð og hafa bæði mikla sam- svörun (50%) við prótínafurð SEL-12 gens þráðormsins C. elegans. Psl og Ps2 prótínin eru fjölgengishimnuprótín með vatnsfælin svæði sem ganga sjö sinnum gegnum himnur ýmissa frumulíffæra. PS-1 og PS-2 genin eru með 12 táknraðir og spanna um 75 kb (2). Fleiri en 35 ólíkar stökkbreytingar í PS-1 geninu hafa fundist í yfir 60 ættum sem tengjast snemmkomnum, ættlægum Alzheimers sjúk- dómi. I átta ættum hafa fundist að minnsta kosti tvær mismunandi stökkbreytingar í PS-2 geni. Allar þessar stökkbreytingar leiða til þess að ein amínósýra breytist í prótínunum. Þetta eru kímlínustökkbreytingarnar sem leiða til Alzheimers sjúkdóms í nær öllum tilfellum, ef viðkomandi nær 65 ára aldri. Allar stökkbreyt- ingar í PS genum hafa áhrif á amínósýrur sem eru sameiginlegar báðum Ps-prótínunum. Stökkbreytingarnar dreifast nokkuð um PS-1 genið en um það bil helmingur þeirra er þó á himnugengissvæðum. Tíu af stökkbreytingun- um í PS-1 eru í útröð 5 og níu í útröð 8. Stökk- breytingum í þessum útröðum fylgir að sjúk- dómurinn byrjar fyrr en ella. Það er að verða ljóst að stökkbreytingar í APP, PS-1 og PS-2 genum skýra ekki öll tilfelli af snemmkomn- um, ættlægum Alzheimers sjúkdómi. Fyrst var talið að PS-1 stökkbreytingar skýrðu allt upp í 90% af sjúkdómnum þegar hann er snemm- kominn og ættlægur en það var ofmat (2,5,15). Ps-prótínin eru einkum staðsett í ytri kjarna- himnu og himnum frymisnets og golgikerfis. Þau eru einkum í taugafrumum í heila og er mest af þessum prótínum í drekanum (hippocampus) og litlaheila (cerebellum). Það er ekki hægt að greina mun á magni Ps-prótína hjá Alzheimers sjúklingum og eðlilegum ein- staklingum með þeim aðferðum sem beitt hef- ur verið. Psl prótínið í heila er mjög líklega eingöngu bundið við taugafrumur og virðist ekki vera í taugatróði (neuroglia). Ps2 prótínið virðist vera bundið við sömu frumur og sömu staði innan frumunnar og Psl prótínið þó að smávægilegur munur sé þar á. App er aftur á móti nokkuð jafnt dreift um allar frumur í heila þó svo að hlutföll mismunandi afbrigða séu ólík milli frumugerða (2,5,15). Tilgátur um samspil APP, PS-1 og PS-2 Vitað er að stökkbreyting í einhverju af gen- unum APP, PS-1 eða PS-2 getur leitt til þess að taugaflögur myndast fyrr en ef þessi gen eru heil og að slíkt veldur Alzheimers sjúkdómi (1,2,14,23,27,28,35). Það er einnig vitað að stökkbreyting í einhverju þessara gena eykur styrk Aþ42 og Aþ43 utan taugafrumna en þessi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.