Læknablaðið - 15.10.1997, Side 44
664
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Forvarnir í öldrunarlækningum
Ársæll Jónsson
Jónsson Á
Preventive geriatrics
Læknablaðið 1997; 83: 664-72
The concepts of geriatric medicine and prevention
are described. The first speciality recognition of ge-
riatric medicine was granted in 1981 and over 10
speciality diplomas have since been granted by the
health authorities in Iceland. The three stages of
prevention and methods for detecting risk factors
are described. General and special recommenda-
tions for medical prevention for the elderly are re-
viewed. It has been estimated that a third of recent
reduction in coronary mortality in Iceland can be
attributed to progress in medical technology and
two thirds to reduction in risk factor prevalence.
Nordic Geriatric Work-up has put an emphasis on
geriatric assessment which has been shown to be of
preventive value for the frail elderly. Life expec-
tancy at birth has increased by 20 years over 75 years
and the population ratio of centenarians has more
than doubled for the past 20 years in Iceland. The
demand for tertiary prevention and geriatric assess-
ment will continue to grow.
Correspondence: Ársæll Jónsson, Dpt. of Geriatric Medi-
cine, Reykjavík Hospital, 108 Reykjavík. Tel.: (354) 525
1000 / 525 1532; fax: (354) 525 1552:
e-mail: arsaellj@shr.is
seli@rhi.hi.is
Key words: prevention, geriatrics, risk factors, elderly.
Frá öldrunarlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ársæll Jónsson, öldrunarlækn-
ingadeild Sjúkrahúss Reykjavikur, Fossvogi, 108 Reykjavík.
Sími: 525 1000 / 525 1532; bréfsími: 525 1552.
Lykilorð: forvarnir, öldrunarlækningar, áhættuþættir, aldr-
aðir.
Greinin byggir á erindi sem höfundur hélt í Helsinki árið 1996
(1)-
Ágrip
í þessu stutta yfirliti verður fyrst lýst skil-
greiningum á heitum í titli greinarinnar. Lýst
er marklýsingu sérgreinarinnar en fyrsta sér-
fræðiviðurkenningin í öldrunarlækningum var
veitt árið 1981 á Islandi. Gerð er grein fyrir
þríþátta eðli forvarna í læknisfræði og lýst að-
ferðum við leit að áhættuþáttum. Tekið er
saman með hvaða forvörnum innlendar og er-
lendar rannsóknir mæla, bæði almennt og með
sérstöku tilliti til aldraðra. Um þriðjung af ný-
legri lækkun á dánartíðni vegna kransæðasjúk-
dóma á íslandi má rekja til framfara í lækning-
um og um tvo þriðju til dvínandi áhættuþátta.
Getið er samnorrænnar vinnu um fjölþátta mat
til forvarna í öldrunarlækningum. Sýnt hefur
verið fram á að sérhæfðar öldrunarlækningar
skila marktækum árangri með öldrunarmati.
Ævilíkur íslendinga við fæðingu hafa aukist
um 20 ár á 75 árum og breytingar á lifun yfir 100
ára aldur hefur meir en tvöfaldast á síðasta
áratugi. Þessi þróun eykur þarfir fyrir þriðja
stigs forvarnir og fjölþátta öldrunarmat.
Inngangur
Forvarnir í heilbrigðisþjónustunni eru að-
ferðir til að koma í veg fyrir sjúkdóma og
heilsubrest. Ymsar hugmyndir hafa verið á
reiki meðal lærðra sem leikra um það hvaða
sjúkdóma sé hægt að fyrirbyggja og með hvaða
hætti. Sjúkdómar eiga sér oft langan aðdrag-
anda og þegar aldurinn er orðinn hár breytast
viðhorf til forvarna. Margt sem framkvæmt er í
forvarnarskyni byggir meira á óskhyggju en
vísindalegum rannsóknum, en það er alls ekki
algilt.
Öldrunarlækningar eru ein yngsta sérgrein
læknisfræðinnar á Islandi og er til hennar kraf-
ist sérhæfðrar þjálfunar við almennar lyflækn-
ingar samkvæmt sérfræðireglugerð Heilbrigð-