Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 34

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 34
122 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Estimated probability of survival $___ 1961-1995 _a_________ 1961-1977 _____ 1977-1995 * Measure points p=0.13 (t-test) Fig. 3. Estimated probability of survival for 17patients with Wilms ’ tumor in lceland in 1961-1995. Tlie average observation-time of patients alive was 11.7 years. við greiningu og er æxlið ívið algengara hjá stúlkum (8,16). Hvort tveggja kemur vel heim við niðurstöður okkar. Skapnaðargalli fannst hjá einum, rangmynd- un í eggjastokkum, en ýmsir gallar eru vel þekktir hjá sjúklingum með Wilmsæxli. Helstu eru lithimnuleysi (aniridia), helftarauki (hemi- hypertrophy) og ýmsir gallar á þvagfærum (17). Þeir sem hafa þessa galla eru auk þess í meiri hættu á að fá sjúkdóminn og sem dæmi má nefna að um þriðjungur barna með lit- himnuleysi fær Wilmsæxli (5). Mælt er með að þessum börnum sé vel fylgt eftir, til dæmis með reglulegum ómskoðunum af nýrum (2,5). Sjúkdómseinkenni voru sambærileg við það sem fram kemur í öðrum rannsóknum (8,18). Fyrstu einkennin voru oftast fyrirferð, sem sást gjarnan þegar börnin voru böðuð, og blóðmiga. Fjórðungur sjúklinganna hafði blóðmigu og því er rétt að hafa sjúkdóminn í huga hjá ung- um bömum með blóðmigu þótt aðrir sjúkdóm- ar séu þar ofar á blaði, eins og nýrnagaukla- bólga (glomerulonephritis) og þvagfærasýk- ingar. Mjög sjaldgæft er að Wilmsæxli greinist fyrir tilviljun, til dæmis við læknisskoðun. en slíkt kemur þó fyrir (8) en enginn greindist á þann hátt í þessari rannsókn. I rannsókninni var fimm ára lifun 42% fyrir allan hópinn. Þetta er lægra hlutfall en í flest- um nýlegum greinum, en taka þarf tillit til þess að hér er um 35 ára tímabil að ræða. Sjúkling- arnir voru of fáir til þess að hægt væri að líta sérstaklega á forspárþætti lífshorfa. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að útbreiðsla, vefjagerð, aldur sjúklings og þyngd (stærð) æxlis skipta mestu máli (2). Meingerð er gjarnan skipt í „góðkynja" og „illkynja“ eftir smásjárskoðun frumna, villivöxtur og sarkmeinsútlit flokkast í

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.