Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 54
140 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Notkun persónuupplýsinga Haraldur Briem læknir og fulltrúi í tölvunefnd Vernd persónuupplýsinga heftir ekki framgang vísindarannsókna „Við vísindarannsóknir standa menn oft frammi fyrir því að vinna með persónulegar upplýsingar og þær þarf að fara með af sérstakri gát, ekki síst þegar svo auðvelt er að safna þeim á rafrænu formi. Ég hef hins vegar ekki séð neina umfjöllun um að menn hafi misnotað slíkar upplýsing- ar í tcngslum við vísindarann- sóknir sínar. Enda hafa flest lönd búið þannig um hnúta að gætt sé fullrar leyndar þegar rannsóknir eru stundaðar og þannig er reynt að hefta ekki framgang vísindanna,“ segir Haraldur Briem læknir í sam- tali við Læknablaðið en hann hefur átt sæti í tölvunefnd síð- ustu fjögur árin. Sækja verður til nefndarinnar ef menn ætla að nota viðkvæmar persónu- legar upplýsingar vegna rann- sókna. Haraldur segir að læknar og aðrir starfsmenn innan heilbrigð- isgeirans hafi um árabil stundað margs konar rannsóknir, til dæmis í tengslum við verkun lyfja, samanburð á meðferðarúr- ræðum og ættgengi sjúkdóma, svo nokkuð sé nefnt. Segir hann að vísindarannsóknir hafi hér- lendis fram til þessa mikið til verið í þessum farvegi og til- gangur þeirra verið sá einn að afla meiri þekkingar í baráttunni við ýmsa sjúkdóma. Hann bendir á að ýmsir aðrir en þeir sem stundi sjúklinga geti sóst eftir heilsufarsupplýsingum: „Þeir sem stunda vísindarann- sóknir, greiðendur heilbrigðis- þjónustu, til dæmis Trygginga- stofnun ríkisins eða tryggingafé- lög, stjórnvöld til að fá upplýs- ingar um umfang og skilvirkni heilbrigðisþjónustunnar, óopin- berir aðilar, heilsufélög svo sem Krabbameinsfélagið og Hjarta- vernd sem safna upplýsingum og halda skrár um tiltekna sjúk- dóma og fyrirtæki sem tengist lyfjaiðnaði. Einnig óviðkomandi aðilar sem gætu viljað notfæra sér upplýsingar um einstaklinga með ólögmætum hætti, til dæmis vegna pólitískra eða viðskipta- legra hagsmuna." Aukin sam- keppni veiti þeim sem búi yfir upplýsingum forskot og vald. „Segja má að viðhorfin hafi breyst dálítið til þessara mála á síðari árum. Er það meðal annars vegna ásóknar þessara aðila sem starfa utan heilbrigðisgeirans eftir upplýsingum og nefna má kannski sérstaklega að menn hafa viljað hugsa málin betur eft- ir að Islensk erfðagreining var stofnuð. Tilgangur fyrirtækisins er fyrst og fremst vísindarann- sóknir en þar koma við sögu fjár- sterkir eignaraðilar sem ætla að reka fyrirtækið með hagnaði. Þá finnst okkur í tölvunefnd ástæða til að vera enn meira á varðbergi án þess að við séum að gefa okk- ur að þar ætli menn sér að gera eitthvað misjafnt. Enda er það fjarri öllum vísindamönnum að tefla á tvær hættur í þessum efn- um.“ Haraldur Briem á sæti í tölvu- nefnd. Ljósm.. -jt- Fá verður samþykki lækna „Vilji læknar kanna aðrar sjúkraskrár en hjá eigin sjúkling- um, til dæmis vegna sjúklinga á öðrum sjúkrahúsum, verða þeir að leita umsagnar viðkomandi lækna, siðanefndar sjúkrahúss- ins, vísindasiðanefndar og tölvu- nefndar. Meðal skilyrða sem tölvunefnd setur er að gögnum sé eytt jafnskjótt og notkun er lokið eða eftir ákveðinn tíma, en hún hefur því miður ekki mikil úrræði til að annast virkt eftirlit í þessum efnunt.“ Haraldur segir að almenna reglan sé sú að við vísindarann- sóknir skuli persónueinkenni af-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.