Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 84
168
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Tilkynnið aðseturskipti
Heimilifang á íslandi þýðir að innheimt er féiagsgjald til LÍ, nema viðkom-
andi sé undanþeginn gjaldi.
Mikil brögð eru að því að læknar sem flytja tímabundið til útlanda hafi lögheim-
ili áfram á íslandi. Þau sem þannig eru skráð hjá Læknafélagi íslands eru krafin
um félagsgjöld til LÍ. Starfsmenn LÍ hafa engin tök á að vita að læknir með að-
setur einhvers staðar á íslandi, sem jafnvel tilkynnir aðseturskipti innan íslands,
sé búsettur og hafi jafnvel verið búsettur til einhverra ára í öðru landi.
Læknar sem flytja til útlanda eru því eindregið hvattir til að tilkynna flutn-
ing til skrifstofu LÍ og Læknablaðsins, þannig komast þeir hjá ítrekuðum
rukkunum fyrir félagsgjöld auk þess sem starfsmenn LÍ geta hætt von-
lausum eltingaleik. Allir græða og tími sparast!
Greiðslukort VISA og Eurocard
Allar greiðslur til Læknafélags íslands, svo sem fyrir félagsgjöld, hóptryggingu,
orlofshúsnæði, árshátíðarmiða og vottorðablokkir, er hægt að inna af hendi með
greiðslukortum frá fyrirtækjunum VISA ísland og Eurocard á íslandi.
Áskrifendur erlendis
Skuldfærsluheimild
Ég undirritaður/uð heimila hér með Læknablaðinu að skuldfæra greiðslukort mitt
fyrir áskrift að Læknablaðinu, kr. 6.000 - sex þúsund krónur.
Ég æski þess að upphæðin verði skuldfærð á □ Eurocard DVisa
Númer korts:___________________ Gildistími korts:_______
Korthafi:_______________________________________________
Staður Dagsetning
Undirskrift
\