Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 133 Leiðbeiningar til höfunda um ritun og frágang fræðilegra greina í Læknablaðið Efni Læknablaðsins Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræði og líffræði, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða um er að ræða samantekt á reynslu annarra, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Blaðið birtir efni er varðar málefni LÍ, svæða- og sérgreinafélaga og um hvert það efni annað sem tengt er hagsmuna- og áhugamálum lækna. Þá eru birtar stuttar athugasemdir og les- endabréf. Birting efnis Læknablaðsins annars staðar Læknablaðið mun taka við greinum til mats fyrir birtingu enda þótt efni þeirra hafi verið birt eða hafi verið sent til birtingar í öðrum tímaritum á öðru tungumáli en íslensku, sé eft- irfarandi skilyrðum fullnægt: 1. Ritstjórum beggja tímarita sé gerð full grein fyrir tvíbirtingu og ástæðum hennar; rit- stjórn þess tímarits sem seinna birtir niðurstöð- ur rannsóknarinnar fái í hendur afrit fyrri grein- ar. 2. Að minnsta kosti líði tvær vikur frá fyrri birtingu til hinnar seinni. 3. Önnur greinin sé ekki einföld þýðing hinnar á annað tungumál, heldur sé beint að öðrum lesendahópi; oft nægir að önnur greinin sé styttri útgáfa hinnar. 4. Fram komi neðanmáls á titilsíðu seinni greinar að niðurstöður hafi birst áður, til dæm- is „Grein þessi er byggð á niðurstöðum rann- sóknar sem fyrst birtist í (nafn tímarits, með fullri tilvitnun)“. Læknablaðið mun einnig að sjálfsögðu taka til birtingar efni sem áður hefur verið kynnt á vísindaþingum og birt hefur verið sem ágrip (abstract) í tengslum við þingin. Þar með talið er efni sem hefur hlotið umfjöllun í fjölmiðlum í kjölfar kynningar eða fyrirlestra á vísinda- þingum. Öðru máli gegnir um niðurstöður og efni sem höfundar hafa lýst í almennum orðum eða smáatriðum í fjölmiðlum áður en starfsfélagar hafa haft aðstöðu til að meta vísindagildi þeirra, annað hvort á prenti eða á þingi. Blaðið mun áskilja sér rétt til að hafna efni á þeim for- sendum einum að höfundar hafi kynnt það í fjölmiðlum fyrir birtingu þess í Læknablaðinu („regla Ingelfingers"). Á þessri almennu reglu má gera undantekningar, ætíð í samráði við rit- stjórn blaðsins, einkum ef snemmbær birting er nauðsynleg vegna mikilvægis niðurstaðna og þær varði heill almennings. Vísindagreinar Læknablaðið byggir á reglum Vancouver- hópsins hvað varðar frágang, uppbyggingu og efnistök vísindagreina. Nýjustu reglur, útgefn- ar í janúar 1997, má finna á netinu: http://www.acponline.org/journals/ annals/01 jan97/unifreqr.htm Handrit sent: Allar fræðilegar greinar eru sendar í ritrýni utan ritstjórnar. Ritrýnir fær grein án þess að fram komi hverjir höfundar eru, frá hvaða stofnun greinin komi eða hverj- um sé þakkað, í þeim tilvikum sem slíkt er gert. Á sama hátt fær höfundur ekki að vita hver rit- rýnir. Vegna þessa skal senda tvær gerðir hand- rita, aðra eingöngu með heiti greinar á titilsíðu auk lykilorða, án nafna höfunda, stofnana og þakka sé um þær að ræða. Hin gerð handrits lýtur venjulegum reglum svo sem að neðan greinir. Með greininni þarf að fylgja bréf þar sem fram koma: a. upplýsingar urn fyrri birtingu efnis greinarinnar (tvíbirtingu) sé um slíkt að ræða, b. yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu lokaformi greinar samþykkir og c. að höf- undar afsali birtingarrétti (copyright) til blaðs- ins. Ennfremur þarf að fylgja leyfi útgefanda eða handhafa birtingarréttar til birtingar mynda eða grafa annarra en höfunda. Öllum greinum skal skilað í endanlegum frá- gangi á tölvutæku formi ásamt með útprenti,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.