Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 47
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
133
Leiðbeiningar til höfunda
um ritun og frágang fræðilegra greina
í Læknablaðið
Efni Læknablaðsins
Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um
öll svið læknisfræði og líffræði, hvort sem þær
eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum
eða um er að ræða samantekt á reynslu annarra,
bæði yfirlits- og fræðslugreinar.
Blaðið birtir efni er varðar málefni LÍ,
svæða- og sérgreinafélaga og um hvert það efni
annað sem tengt er hagsmuna- og áhugamálum
lækna.
Þá eru birtar stuttar athugasemdir og les-
endabréf.
Birting efnis Læknablaðsins annars
staðar
Læknablaðið mun taka við greinum til mats
fyrir birtingu enda þótt efni þeirra hafi verið
birt eða hafi verið sent til birtingar í öðrum
tímaritum á öðru tungumáli en íslensku, sé eft-
irfarandi skilyrðum fullnægt:
1. Ritstjórum beggja tímarita sé gerð full
grein fyrir tvíbirtingu og ástæðum hennar; rit-
stjórn þess tímarits sem seinna birtir niðurstöð-
ur rannsóknarinnar fái í hendur afrit fyrri grein-
ar.
2. Að minnsta kosti líði tvær vikur frá fyrri
birtingu til hinnar seinni.
3. Önnur greinin sé ekki einföld þýðing
hinnar á annað tungumál, heldur sé beint að
öðrum lesendahópi; oft nægir að önnur greinin
sé styttri útgáfa hinnar.
4. Fram komi neðanmáls á titilsíðu seinni
greinar að niðurstöður hafi birst áður, til dæm-
is „Grein þessi er byggð á niðurstöðum rann-
sóknar sem fyrst birtist í (nafn tímarits, með
fullri tilvitnun)“.
Læknablaðið mun einnig að sjálfsögðu taka
til birtingar efni sem áður hefur verið kynnt á
vísindaþingum og birt hefur verið sem ágrip
(abstract) í tengslum við þingin. Þar með talið
er efni sem hefur hlotið umfjöllun í fjölmiðlum
í kjölfar kynningar eða fyrirlestra á vísinda-
þingum.
Öðru máli gegnir um niðurstöður og efni
sem höfundar hafa lýst í almennum orðum eða
smáatriðum í fjölmiðlum áður en starfsfélagar
hafa haft aðstöðu til að meta vísindagildi
þeirra, annað hvort á prenti eða á þingi. Blaðið
mun áskilja sér rétt til að hafna efni á þeim for-
sendum einum að höfundar hafi kynnt það í
fjölmiðlum fyrir birtingu þess í Læknablaðinu
(„regla Ingelfingers"). Á þessri almennu reglu
má gera undantekningar, ætíð í samráði við rit-
stjórn blaðsins, einkum ef snemmbær birting er
nauðsynleg vegna mikilvægis niðurstaðna og
þær varði heill almennings.
Vísindagreinar
Læknablaðið byggir á reglum Vancouver-
hópsins hvað varðar frágang, uppbyggingu og
efnistök vísindagreina. Nýjustu reglur, útgefn-
ar í janúar 1997, má finna á netinu:
http://www.acponline.org/journals/
annals/01 jan97/unifreqr.htm
Handrit sent: Allar fræðilegar greinar eru
sendar í ritrýni utan ritstjórnar. Ritrýnir fær
grein án þess að fram komi hverjir höfundar
eru, frá hvaða stofnun greinin komi eða hverj-
um sé þakkað, í þeim tilvikum sem slíkt er gert.
Á sama hátt fær höfundur ekki að vita hver rit-
rýnir. Vegna þessa skal senda tvær gerðir hand-
rita, aðra eingöngu með heiti greinar á titilsíðu
auk lykilorða, án nafna höfunda, stofnana og
þakka sé um þær að ræða.
Hin gerð handrits lýtur venjulegum reglum
svo sem að neðan greinir.
Með greininni þarf að fylgja bréf þar sem
fram koma: a. upplýsingar urn fyrri birtingu
efnis greinarinnar (tvíbirtingu) sé um slíkt að
ræða, b. yfirlýsing þess efnis að allir höfundar
séu lokaformi greinar samþykkir og c. að höf-
undar afsali birtingarrétti (copyright) til blaðs-
ins. Ennfremur þarf að fylgja leyfi útgefanda
eða handhafa birtingarréttar til birtingar mynda
eða grafa annarra en höfunda.
Öllum greinum skal skilað í endanlegum frá-
gangi á tölvutæku formi ásamt með útprenti,